Fréttablaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 75
27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR58
Á ÖLLUM JÓLAVÖRUM
ÚTSALA!
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 - www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is
heimur skemmtilegra hluta og hugmynda
FÓTBOLTI Freddy Shepherd, stjórn-
arformaður Newcastle United,
er allt annað en sáttur við orð
Rafael Benítez, stjóra Liverpool,
sem sagði í viðtali rétt fyrir jól
að Michael Owen gæti einhvern
tímann snúið aftur til félagsins.
Liverpool mistókst að kaupa Owen
síðasta sumar frá Real Madrid
þar sem félagið var ekki tilbúið að
borga uppsett verð fyrir leikmann-
inn. Newcastle greip hins vegar
tækifærið og keypti Owen til sín.
„Heldur Benítez virkilega að
fólk sé svona heimskt og þekki
ekki til málsins? Hann er að reyna
að fá fólk til að trúa því að Liver-
pool hafi reynt allt sem félag-
ið gat til að fá Owen. En það var
Newcastle sem gerði allt til að fá
Owen. Sjálfur er Michael mjög
ánægður hjá okkur. Það er fárán-
legt hjá Benítez að koma með þetta
rétt áður en liðin tvö mætast,“
sagði Shepherd.
Michael Owen hefur játað því
að Liverpool hafi verið sinn fyrsti
kostur þegar hann fór frá Real
í sumar. „Það voru fjórir hlutir
sem komu í veg fyrir að við feng-
um Owen: Verðið, tímaramminn,
ákvörðun hans og sú staðreynd
að við vorum með góða framherja
fyrir,“ sagði Benítez meðal annars
í áðurnefndu viðtali. - egm
Owen aftur til Liverpool:
Shepherd æfur
út í Benítez
ÁNÆGÐUR OWEN Michael Owen er hér
ásamt samherja sínum, Peter Ramage.
Enska úrvalsdeildin
CHARLTON - ARSENAL 0-1
0-1 Jose Antonio Reyes (58.).
CHELSEA - FULHAM 3-2
1-0 William Gallas (3.), 2-0 Frank Lampard (24.),
2-1 Brian McBride (29.), 2-2 Heiðar Helguson
(56.), 3-2 Hernan Crespo (74.).
LIVERPOOL - NEWCASTLE 2-0
1-0 Steven Gerrard (14.), 2-0 Peter Crouch (43.).
MAN. UTD. - WBA 3-0
1-0 Paul Scholes (35.), 2-0 Rio Ferdinand (48.),
3-0 Ruud van Nistelrooy (63.).
MIDDLESBROUGH - BLACKBURN 0-2
0-1 Shefki Kuqi (38.), 0-2 Shefki Kuqi (79.).
PORTSMOUTH - WEST HAM 1-1
1-0 Gary O’Neil (17.), 1-1 James Collins (56.).
TOTTENHAM - BIRMINGHAM 2-0
1-0 Robbie Keane (58.), 2-0 Jermain Defoe (92.).
WIGAN - MAN. CITY 4-3
0-1 Antoine Sibierski (2.), 0-1 Antoine Sibierski
(3.), 1-1 Jason Roberts (11.), 2-1 Lee McCulloch
(23.), 3-1 Jason Roberts (45.), 4-1 Henri Camara
(71.), 4-2 Joey Barton (77.), 4-3 Andy Cole (88.)
STAÐAN:
CHELSEA 18 16 1 1 40-9 49
MAN. UTD. 17 11 4 2 31-14 37
TOTTENHAM 18 9 7 2 27-16 34
LIVERPOOL 15 9 4 2 20-8 31
BOLTON 16 9 3 4 22-14 30
ARSENAL 17 9 2 6 23-15 29
WIGAN 17 9 1 7 19-18 28
MAN. CITY 17 8 3 6 24-17 27
WEST HAM 17 7 4 6 25-22 25
NEWCASTLE 17 7 4 6 18-17 25
CHARLTON 17 7 1 9 21-27 22
BLACKBURN 17 6 3 8 19-24 21
M´BROUGH 17 5 5 7 23-26 20
FULHAM 18 5 4 9 20-25 19
ASTON VILLA 17 4 5 8 16-26 17
EVERTON 17 5 2 10 9-23 17
WBA 17 4 4 9 17-25 16
PORTSMOUTH 17 3 4 10 13-26 13
BIRMINGHAM 17 3 3 11 11-25 12
SUNDERLAND 17 1 2 14 14-35 5
Enska meistaradeildin
BURNLEY - STOKE CITY 1-0
CARDIFF - PLYMOUTH 0-2
DERBY - LUTON 1-1
IPSWICH TOWN - CRYSTAL PALACE 0-3
LEEDS UNITED - COVENTRY 3-1
LEICESTER CITY - MILLWALL 1-1
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn fyrirr
Leicester og skoraði mark liðsins úr vítaspyrnu.
SHEFFIELD UNITED - NORWICH 1-3
WATFORD - SOUTHAMPTON 3-0
WOLVES - READING 0-2
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
léku allan leikinn fyrir Reading.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Chelsea heldur sigur-
göngu sinni áfram en liðið vann
nauman 3-2 sigur á Fulham á
heimavelli sínum í gær. Eftir að
hafa komist tveimur mörkum yfir
náði Fulham að jafna en það var
Heiðar Helguson sem skoraði jöfn-
unarmarkið úr vítaspyrnu þegar
tíu mínútur voru liðnar af seinni
hálfleik. Heiðar var ofursvalur á
vítapunktinum þegar hann skoraði
sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni
fyrir Fulham, hann var í byrjunar-
liðinu en var tekinn af velli þegar
tuttugu mínútur voru eftir.
„Ég verð að hrósa Joe Cole
sérstaklega, hann hefur leikið
stórfenglega að undanförnu á
vængjunum,“ sagði Jose Mour-
inho, knattspyrnustjóri Chelsea.
Hernan Crespo skoraði sigur-
markið á 74. mínútu. Eiður Smári
Guðjohnsen byrjaði á varamanna-
bekknum en kom inn á í hálfleik og
var nálægt því að skora snemma í
seinni hálfleiknum.
Chris Coleman, stjóri Fulham,
var ánægður með frammistöðu
sinna manna. „Á heildina litið spil-
uðum við frábærlega. Við hefðum
vel getað náð stigi og það var aug-
ljóst að John Terry varði knöttinn
með hendi undir lokin og þá hefð-
um við átt að fá tækifæri til að
jafna 3-3 en það hefði komið mér á
óvart ef dómarinn hefði þorað að
dæma tvær vítaspyrnur á Chelsea
í sama leiknum.“
Michael Owen lét ekkert að sér
kveða með Newcastle á Anfield í
gær þar sem Liverpool yfirspil-
aði gesti sína og vann öruggan 2-0
sigur en hann hefði vel getað orðið
stærri. Steven Gerrard braut ísinn
og það var síðan Peter Crouch sem
skoraði sitt þriðja mark á tímabilinu
þegar dómarinn dæmdi að knöttur-
inn hefði farið allur inn fyrir línuna
sem sennilega var rétt.
Tottenham heldur áfram bar-
áttunni um meistaradeildarsæti en
liðið vann 2-0 sigur á Birmingham
í gær. „Það verður að viðurkenn-
ast að við lékum ekki nægilega vel
í þessum leik en fengum þrjú stig
og það er það sem skiptir máli,“
sagði Martin Jol, knattspyrnu-
stjóri Tottenham.
Alan Curbishley var ósáttur
við Steve Bennett dómara þegar
hans menn töpuðu 0-1 á heimavelli
gegn Arsenal. „Hann býr nálægt
Arsenal og það gæti verið ástæð-
an fyrir því hvað hann dæmdi illa.
Ef hann er sáttur við sína frammi-
stöðu þarf hann að endurskoða sín
mál. Ég viðurkenni það þó fús-
lega að Arsenal spilaði betur en
við og átti skilið að vinna,“ sagði
Curbishley. Manchester United
átti ekki í vandræðum með West
Bromwich Albion og Wigan sýndi
enn og aftur hvað býr í liðinu og
vann 4-3 sigur á Manchester City.
Bolton tókst ekki að leggja botnlið
Sunderland. elvar@frettabladid.is
Mark Heiðars ekki nóg
Heiðar Helguson skoraði í gær sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Fulham, sem
dugði þó ekki til gegn Chelsea. Efstu lið úrvalsdeildarinnar unnu öll leiki sína.
TERRY OG HEIÐAR Heiðar Helguson er vanur því að vera í baráttunni og er hér að kljást við
John Terry, fyrirliða Chelsea. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES