Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 12

Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 12
12 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR �������� ��� ��� ��������� ��������� ������� �� ���������������� �������� ������� ������� ���� �� ���� ���� �� ����� � �� ������� ������� ��� ����������� �������������� �������� ���� ��� �� ��� ������������������������ JERÚSALEM, AP Ísraelsmenn hafa boðið mótmælendum bút af land- inu helga og vilja forystumenn mótmælendakirkna byggja þar trúarmiðstöð og skemmtigarð. Forystumenn mótmælendanna hafa samþykkt að leggja and- virði rúmlega þriggja milljarða íslenskra króna til verkefnisins og vonast þeir til þess að miðstöðin dragi tugi þúsunda pílagríma að ár hvert. Fjórtán hektarar af klettóttum ströndum við norðurenda Galíleu- vatns standa mótmælendunum til boða, en svæðið hefur mikil- væga skírskotun til lífs og starfa Jesú Krists. Þar hyggjast kristnir byggja kapellu og sal fyrir mess- ur og samkomur þar sem ræður Jesú verða settar á svið. Ísraelsmenn undirbúa einnig uppbyggingu svæðanna umhverf- is þorpið, þar sem þeir vilja byggja göngustíga og styttur sem minna á helgisagnirnar. Tugþúsundir araba búa á svæð- inu og voru viðbrögð þeirra við fregnunum blendin. Þeir óttast að framkvæmdirnar geti raskað við- kvæmu jafnvægi sem ríkir á milli trúarhópa á svæðinu. Hópar kristinna mótmælenda gefa árlega milljónir Bandaríkja- dala til Ísraelsríkis. - ht BEÐIÐ Í BETLEHEM Fjöldi fólks safnast saman í Fæðingarkirkjunni í Betlehem um jólin en kristnir menn trúa því að Jesús Kristur hafi fæðst þar. Ísraelsmenn ætla að auðvelda fólki að komast til Betlehem yfir jólahátíðirnar. Ísraelsmenn bjóða mótmælendum landsvæði við Galíleuvatn: Mótmælendur vilja reisa trúarmiðstöð AFGANISTAN Dómstóll í Kabúl hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að ræna ítölska hjálparstarfsmann- inum Clementinu Cantoni, halda henni í gíslingu í þrjár vikur og myrða son kaupsýslumanns frá Afganistan. Ítalskir fjölmiðlar herma að þegar móðir eins mannræn- ingjanna var leyst úr varðhaldi vegna rannsóknar á mannrán- inu hafi Cantoni fengið frelsi. Cantoni, sem er 32 ára, sagði mannræningjana ekki hafa farið illa með sig. Hún var í landinu á vegum alþjóðlegu hjálparsamtak- anna CARE og aðstoði hún einkum ekkjur og fjölskyldur þeirra. ■ Afganskir misindismenn: Dauðadómur fyrir mannrán Kennari í framboð Sólveig Pálsdótt- ir, framhaldsskólakennari og leikkona, gefur kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir bæjarstjórnar næsta vor. Hún hefur verið formaður menningarnefndar Sel- tjarnarness og varabæjarfulltrúi í tvö ár. SELTJARNARNES Ný sjúkdómaflokkun Landlæknir hefur gert aðgengilegar á vef sínum nýjar uppfærslur tveggja flokkunar- kerfa sem notuð eru við skráningu í heilbrigðiskerfinu. Um er að ræða ICD-10, Alþjóðlega tölfræðiflokkun sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvand- amála, og NCSP, Norræna flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum. Uppfærslurnar taka gildi um áramótin. HEILBRIGÐISMÁL NÝSKÖPUN Íslenskir grunnskóla- nemendur hlutu í gær verðlaun í nýsköpunarsamkeppni sem haldin var á meðal grunnskóla í Finnlandi, Noregi, Bretlandi og Íslandi. Hvert land hélt landskeppni og svo voru bestu hugmyndirnar dæmdar af fjölþjóðlegri dómnefnd. Fjórar íslenskar hugmyndir hlutu verðlaun í keppninni og afhenti Gylfi Magnússon, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, verðlaunin. - sk Alþjóðleg nýsköpunarkeppni: Íslendingar hlutu verðlaun VERÐLAUNAAFHENDING Verðlaunahafar í nýsköpunarsamkeppni á meðal grunnskóla í fjórum Evrópulöndum. ÖRYGGISMÁL Starfshópur á vegum umhverfisráðs Reykjavíkur- borgar hefur undanfarið unnið að tillögum til að draga úr notk- un nagladekkja til að sporna við svifryksmengun. Niðurstaðna frá starfshópnum er að vænta fljót- lega í janúar og er búist við að starfshópurinn leggi til við borg- arstjórn að upp verði tekið sér- stakt gjald fyrir þá sem kjósa að aka á nagladekkjunum. Árni Þór Sigurðsson, formaður umhverfisráðs, segir Norðmenn hafa tekið upp svipað kerfi til að bregðast við mengunarvandanum þar. Hann segir sem dæmi að í Ósló geti ökumenn keypt sér dagskort sem veitir þeim leyfi til að aka um höfuðborgina á nagladekkjum og svipað kerfi gæti hugsanlega verið tekið upp hér á landi. Gjald- ið myndi hafa fælingaráhrif á fólk og þá myndu frekar einstakling- ar sem virkilega teldu nagladekk nauðsynleg kaupa sér leyfi. Árni Þór segir að umferðar- lagabreyting þurfi að koma til svo að takmarka megi notkun nagla- dekkja og því sé mikil vinna óunn- in. Reikna megi með því að þetta ferli muni taka nokkurn tíma ef ákveðið verði að fara þessa leið. Runólfi Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, líst afar illa á þessa hugmynd og segir að með þessu, ef af verði, sé verið að selja fólki öryggi. Hann segir að hug- myndin blasi við sér sem aukin leið til skattheimtu með öfugum formerkjum, hér sé verið að skatt- leggja öryggi fólks. Hann telur að til séu margar betri leiðir til að draga úr notkun nagladekkja í borginni sem skila myndu mun betri árangri. Ein þeirra sé að uppfræða ökumenn og fá þá til að velta fyrir sér hvort nagladekk séu í raun nauðsyn- leg fyrir daglegar akstursleiðir þeirra. Hann segir að fjöldi öku- manna þurfi ekki nagladekk og með fræðslu myndu þeir kjósa að leggja ekki út í aukakostnaðinn sem því fylgir að kaupa nagladekk ef þeir teldu að þau væru ekki nauðsynleg. Runólfur telur að fæl- ingaráhrifin sem þessari gjald- töku fylgir geti haft alvarleg áhrif þegar fólk sem virkilega þurfi á nagladekkjum að halda veigri sér við að fjárfesta í þeim því það horfi í viðbótaútgjöldin sem kaup- unum fylgi. aegir@frettabladid.is Gjald fyrir að aka á nagladekkjum Starfshópur sérfræðinga á vegum umhverfisráðs mælir hugsanlega með því að sérstakt gjald verði lagt á þá sem vilja aka á nagladekkjum til að sporna við svifryksmengun. Framkvæmdastjóri FÍB segir öryggi fólks skattlagt. KÚBA Mikill uppgangur ríkir um þessar mundir á Kúbu enda er hag- vöxtur þar sagður með eindæmum. Fidel Castro, forseti kommún- istaríkisins, segir að umtalsverður efnahagsbati hafi orðið á síðustu misserum og að Kúba hafi náð sér eftir efnahagskreppu. Á þessu ári sé hagvöxturinn nærri því tólf pró- sent. Heldur hefur verið þröngt í búi hjá Kúbverjum eftir hrun Sov- étríkjanna en þaðan hlaut stjórn Castros stuðning og áttu Kúbverj- ar mikil viðskipti við ríki austan járntjaldsins. ■ Ástandið á Kúbu: Efnahagurinn með ágætum SÁTTUR VIÐ HAGVÖXTINN Castro segir horfurnar sjaldan hafa verið bjartari. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÚR JÓLAUMFERÐINNI Gjald gæti orðið til þess að þeir sem þurfa nagladekk veigri sér við að fá sér þau, segir formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. MÓTMÆLI Hópur fólks frá Úkraínu mót- mælir þeirri ákvörðun Rússa að allt að því þrefalda verð á því gasi til húshitunar sem selt er til Úkraínu. Krafa Rússa hefur vakið hörð viðbrögð og spennan milli þjóðanna tveggja er mikil. AFP.NORDICPHOTOS/AFP RUNÓLFUR ÓLAFS- SON, FORMAÐUR FÍB Segir gjald fyrir nagladekkjanotkun vera skattlagningu á öryggi. ÁRNI ÞÓR SIGURÐS- SON Segir að bregð- ast verði við aukinni svifryksmengun vegna nagladekkja.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.