Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 16

Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 16
16 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR ATVINNUMÁL Fiskvinnslufyrirtæk- ið Bílddælingur, sem hætti starf- semi í júlí á þessu ári, mun hefja vinnslu aftur um miðjan næsta mánuð. Vinnsla og veiði verður þó með öðru sniði en áður var. „Fiskurinn verður flokkaður um leið og hann er veiddur þannig að allur fiskur sem er yfir fjórum kílóum verður sendur til vinnslu en annar fiskur fer í eldiskvíar þar sem hann verður alinn upp í þá þyngd en þá verður honum slátrað,“ segir Jens Valdimarsson stjórnarformaður. Hann áætlar að 700 tonn af hrá- efni verði unnið á næsta ári og að tólf til fimmtán manns muni starfa við fyrirtækið til að byrja með. „Byggðasjóður hefur lánað Bílddælingi einhverjar fjárhæð- ir og stutt fyrirtækið á ýmsan hátt þannig að nú er ekkert því til fyrirstöðu að hefja rekstur á ný. Við eigum einnig í viðræðum við fjárfesta frá Belgíu og Frakk- landi sem hafa sýnt þessu mikinn áhuga,“ segir hann. Togari sem er í eigu Bílddæl- ings og Gísla Hallgrímssonar verður hins vegar seldur en minni og sérhannaðir bátar fengnir í staðinn. Bílddælingur hefur einnig fest kaup á frystihúsinu og fiski- mjölsverksmiðunni á Bíldudal. Kræklingaeldið Hlein mun einnig sameinast Bílddælingi en það varð fyrir miklu áfalli þegar rannsóknir leiddu í ljós að meira kadmín var í kræklingnum en staðlar Evrópusambandsins heim- ila í neysluvöru. Jens segir að farið verði í frekari rannsóknir á þessu en einnig séu markaðir í Bandaríkjunum og Kanada opnir þar sem staðlarnir séu ekki jafn þröngir þar. Starfsmenn sem sagt var upp í júlí þegar Bílddælingur hætti rekstri hafa ekki enn fengið laun sín greidd að fullu en Jens segir að frá því verði gengið í dag. Útlit er því fyrir að atvinnu- hjólin fari á fulla ferð á Bíldudal á næsta ári því nú er verið að gera grunninn kláran fyrir kalkþör- ungaverksmiðju þar í bæ. Áætl- að er að byggingarframkvæmdir hefjist í mars og taki einungis nokkra mánuði. jse@frettabladid.is Vinna stóra fiskinn og ala þann smærri Rekstur fiskvinnslufyrirtækisins Bílddælings hefst að nýju í næsta mánuði en með gjörbreyttu sniði. Fjölmargir erlendir fjárfestar hafa sýnt áhuga. FISKELDI Á BÍLDUDAL Fiskeldi, fiskvinnsla og fiskveiðar fara á fullt á Bíldudal í næsta mánuði. Erlendir fjárfestar eru spenntir fyrir verkefninu. Kavíar gerður upptækur Lög- reglumenn í Gautaborg gerðu nokkurt magn rússnesks kavíars upptækt í rassíu í vikunni. Leyfi þarf til innflutnings og sölu á rússneskum kavíar í Svíþjóð en það sögðust verslunareigendurnir ekki vita. Rússneskur kavíar þykir algjör lúxus- vara og slagar verðið hátt í 400 þúsund krónur kílóið. SVÍÞJÓÐ HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur um áramót við sjúkraflutningum í Árnessýslu en þeir hafa hingað til verið í umsjá lögreglu. Síðustu mánuði hefur verið unnið að undirbúningi skiptanna, en á vef Heilbrigðisstofnunarinn- ar kemur fram að búið sé að ráða til starfa sjúkraflutningamenn. Umsjónarmaður starfseminn- ar hefur verið ráðinn Ármann Höskuldsson, en hann starfaði áður sem lögreglu- og sjúkraflutning- amaður hjá Sýslumannsemb- ættinu í Árnessýslu. Fram kemur að sjúkra- flutningamenn hafi fyrst um sinn aðstöðu áfram í sjúkrabíla- geymslunni við lögreglustöðina, á heilbrigðisstofnuninni og hjá björgunarfélaginu í Tryggvabúð, en viðræður hafa staðið um bygg- ingu nýs húsnæðis. - óká Heilbrigðisstofnunin tekur við: Sjúkraflutning- ar færast til BETLARAR Konur frá fátækasta hluta Bólí- víu hafa allt þetta ár flust til höfuðborgar- innar La Paz þar sem þær reyna að draga fram lífið á betli. Gefur það þeim mörgum meira í aðra hönd en að dvelja áfram í fjöllunum þar sem lífsbaráttan verður sífellt harðari. HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURLANDS Heilbrigðisstofnunin tekur um áramótin við sjúkraflutningum af lögreglu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.