Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 22

Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 22
22 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR �������������������������������� ��������������� DAVÍÐ KVEÐUR Á LANDSFUNDI Davíð Oddsson kvaddi flokksmenn sína formlega á landsfundi í lok október og lauk þar með rúmlega fimmtán ára setu á formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Merkustu tímamót ársins í íslenskum stjórnmálum og kannski það sem af er öld- inni eru án efa brotthvarf Davíðs Oddssonar af hinu pólitíska sviði. Svo stóran sess hefur Davíð skipað á vettvangi stjórnmálanna að fæstir Íslendingar undir tuttugu og fimm ára aldri muna aðra tíð en með Davíð sem forsætisráðherra og síðast utanríkisráðherra. Davíð tilkynnti hinn 7. sept- ember að hann myndi láta af þingmennsku og starfi utanrík- isráðherra hinn 28. september. Samtímis var tilkynnt að hann tæki við starfi seðlabankastjóra 20. október og yrði ekki í fram- boði til formennsku í Sjálfstæð- isflokknum á landsfundi síðar í þeim mánuði. Þar með var ljóst að einhver glæsilegasti stjórnmála- ferill eins manns á Íslandi var á enda runninn. Stjórnmálin líf og yndi Frá því að Davíð Oddsson tók við embætti borgarstjóra í Reykjavík 1982 var valdaferillinn óslitinn; formaður Sjálfstæðisflokksins 1991, þingmaður og forsætisráð- herra sama ár allar götur fram á haustdaga 2004 og síðan utanrík- isráðherra í tæpt ár. Um ferilinn sagði Davíð: „Ég hef verið afar fyr- irferðarmikill í þessu öllu saman, meira að segja stundum svo að ýmsum hefur þótt nóg um.“ En Davíð kvaddi pólitíkina með eftirsjá. „Ég kveð auðvitað stjórn- málin með miklum söknuði því þau hafa verið líf mitt og yndi,“ sagði hann þegar hann kynnti ákvörðun sína. Eftirsjá af samstarfi Geir Haarde tók við starfi Davíðs sem utanríkisráðherra og hann kvaddi formann sinn með söknuði. „Það er auðvitað mikil eftirsjá í Davíð Oddssyni sem nú ákveður að hætta afskiptum af stjórnmál- um. Við höfum verið samherjar frá því í menntaskóla og höfum undanfarin fjórtán ár starfað þétt saman. Það er eftirsjá af því sam- starfi,“ sagði Geir. Traustur og úrræðagóður Aðrir stjórnmálaforingjar, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, lýstu sömuleiðis yfir eftirsjá af Davíð. Halldór Ásgrímsson, for- maður Framsóknarflokksins, sem tók við forsætisráðherrastólnum af Davíð haustið 2004, bar lof á forvera sinn í starfi. „Davíð Odds- son á mjög farsælan feril að baki í stjórnmálum. Hann hefur verið í forystu íslenskra stjórnmála um langt skeið og reynst bæði traust- ur og úrræðagóður,“ sagði Hall- dór. Verðugur andstæðingur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, og Davíð Oddsson hafa tekið marga snerruna um pólitík gegnum árin og ekki alltaf verið mjög vinsam- lega í hvors annars garð í orðum. Ingibjörg sagðist þó mundu sakna Davíðs. „Það eru auðvitað heil- mikil pólitísk tíðindi þegar maður sem hefur sett jafnmikinn svip á stjórnmálin og Davíð Oddsson hefur gert er að hverfa af sjón- arsviðinu. Davíð er mjög öflugur og verðugur andstæðingur og ég mun auðvitað sakna hans af hinum pólitíska leikvangi,“ sagði Ingi- björg Sólrún. Skarð hans vandfyllt Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, var stuttorður og gagnorður um brottför Davíðs. „Þetta eru heilmikil tímamót og ég óska Davíð Oddssyni og hans fjöl- skyldu alls góðs og fyrst og síðast góðrar heilsu og langra lífdaga.“ Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins og fyrr- um samherji Davíðs í Sjálfstæðis- flokknum, hafði þetta að segja um brottför Davíðs: „Það verður nátt- úrlega mikil breyting í Sjálfstæð- isflokknum við brottför Davíðs. Hann hefur lengi setið sem óumd- eildur leiðtogi flokksins þannig að hans skarð verður vandfyllt eins og oft vill verða þegar öflugir leið- togar hverfa af vettvangi.“ Eitt af stóru nöfnunum Lítið fór fyrir viðbrögðum erlendra stjórnmálaforingja við brotthvarfi Davíðs en Göran Pers- son, forsætisráðherra Svíþjóðar, kvaddi Davíð þó með virktum í samtali við Fréttablaðið. „Davíð Oddsson er eitt af stóru nöfnunum í norrænum stjórnmálum síðari ára. Ég hef haft mikla ánægju af því að vinna með Davíð um margra ára skeið og mun sakna hans af sviði norrænna stjórnmála,“ sagði Göran Persson. ssal@frettabladid.is Skarð Davíðs vandfyllt DAVÍÐ FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð Odds- son varð forsætisráðherra á vordögum árið 1991, þegar hann og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, mynduðu ríkisstjórn sem oft var kennd við Viðey. DAVÍÐ Á ÚTLEIÐ Davíð Oddsson gengur út úr Valhöll að loknum blaðamannafundi þar sem hann tilkynnti um brotthvarf sitt af hinu pólitíska leiksviði. DAVÍÐ BORGARSTJÓRI Sjálfstæðisflokkurinn vann glæsilegan sigur í borgarstjórnarkosn- ingum vorið 1982 undir forystu Davíðs Oddssonar, sem þar með varð borgarstjóri aðeins 34 ára að aldri. Fáir einstaklingar vöktu meiri athygli fyrri hluta ársins hér á landi en skákmeistarinn Bobby Fischer. Skömmu fyrir síðustu jól veitti Alþingi Fischer dval- arleyfi á Íslandi en hann sat þá í varðhaldi í Japan við illan kost. Vakti þessi gjörð íslenskra yfir- valda nokkra athygli víða um heim enda styr búinn að standa um Fischer vegna harðorðra yfirlýsinga hans í garð gyðinga og Bandaríkjamanna. Íslendingar létu þó athuga- semdir annarra sem vind um eyru þjóta og upp úr miðjum mars afgreiddi Alþingi ríkis- borgararétt til handa Fischer á litlum þrettán mínútum. Þar með var leiðin greið fyrir Japani að láta Fischer lausan og að kvöldi 24. mars lenti einkaþota Stöðvar 2 með Fischer á Reykjavíkurflug- velli. Með í för voru helstu stuðnings- menn Fischers og fór þar fremstur í flokki Sæmundur Pálsson eða Sæmi rokk, sem verið hefur í per- sónulegu v i n - fengi við Fischer frá heimsmeist- araeinvíginu fræga við Spassky hér á landi 1972. Fischer var að vonum ánægð- ur við komuna hingað til lands og lýsti væntumþykju sinni til Sæmundar Pálssonar sérstak- lega og sagðist fyrst hafa fundist hann vera frjáls þegar hann sá Sæmund í Kaupmannahöfn. Fischer kvaðst jafnframt vera afar sæll með að vera kominn til Íslands. „Hér er hreint og gott loft, nóg rými og góður matur,“ sagði kappinn. Ýmsir urðu til að hnjóða í Íslendinga fyrir að hafa tekið við Fischer, þannig sagði leiðarahöf- undur Washington Post: „Þetta er sorglegur dagur fyrir Ísland, sem leggur nafn sitt með virkum hætti við mann sem fyrir löngu hefur yfirgefið allt velsæmi.“ Lítið hefur hins vegar farið fyrir Fischer eftir að hann kom; hann veitir ekki viðtöl og reynir eftir megni að forðast sviðsljósið. Hann sést iðulega á ferð í miðborg Reykjavíkur og heimsækir þar verslanir og veitingahús eins og hver annar góð- borgari. Fyrst frjáls þegar hann sá Sæmund HELSTU FRÉTTIR ÁRSINS > 2005
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.