Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 32

Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 32
 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Þá er daginn tekið að lengja á nýjan leik. Enn höfum við þrauk- að svartasta skammdegið – eða að minnsta kosti stysta daginn og nú lengjast þeir um hænufet, hver af öðrum. Fyrr en varir verður komið vor og svo sumar og að því liðnu haustar á ný og þannig höld- um við áfram, hring eftir hring. Vonandi hefur jólahátíðin sjálf fært landsmönnum gleði og frið í hjarta. Vonandi hafa fjölskyldur fagnað saman og fundið kærleik- ann sem býr innra með hverjum og einum. Og framundan eru áramótin. Þessi undarlega stund milli vita, þegar við lítum til baka, flest vonandi með nokkrum söknuði en einhverjir eru fegnir að sjá erf- itt ár að baki. Þannig er lífið. Og flestir horfa fram á veginn með von í hjarta, von um gott og gæfu- ríkt ár. Margir eru fullir fagurra fyrirheita fyrir nýtt ár. Ætla að bæta sig á ýmsum sviðum, vænt- anlega ætla allir að gera sitt besta – enda gerir enginn betur en það. Það var nokkurt áfall að heyra að nýr útvarpsstjóri ætlaði ekki að flytja þjóðinni áramótaávarp en sjálfsagt tákn nýrra tíma. Ég vænti þess þó að Ríkisútvarpið ætli áfram að lofa okkur að horfa á árið hverfa hægt og hægt síð- ustu mínútuna fyrir tólf og sjá svo nýja árið fæðast á áramótum. Fjölmargir láta flugeldasýningar áramótanna ekki trufla sig frá þeirri klökku stund. En það er þetta með flugelda- sýningarnar. Þetta er víst sér- íslenskur siður. Reyndar skjóta fleiri þjóðir upp flugeldum á hátíðarstundum, ekki síst um ára- mót. Magnið er hinsvegar sérís- lenskur siður eins og varðandi svo margt annað. Við kunnum okkur ekki alltaf hóf, Íslendingar. Við erum svo skotglöð á áramótum að innflutningur ferðamanna á þess- um tímamótum er drjúg tekju- lund, sem er auðvitað bara besta mál. En hingað kemur sem sagt sístækkandi hópur ferðamanna ár hvert til að horfa á ósköpin - eða dýrðina, eftir því hvernig á það er litið. Ég horfi hinsvegar til him- ins með blendnum tilfinningum þessa stund. Það er ótrúlegt að sjá hversu mikil fjárráð fólk hefur til að lýsa upp himininn eina kvöld- stund. Reyndar er þetta bara afar skemmtilegt, eina kvöldstund. Þegar fólk er hinsvegar byrjað að skjóta upp flugeldum á þriðja í jólum, ef ekki fyrr, skothríðin er orðin linnulítil síðasta dag ársins og heldur sleitulítið áfram fram á morgun nýársdags og síðan mætti halda að við byggjum í stríðshrjáðu landi allt fram yfir þrettánda þá er mér eiginlega nóg boðið. Það skal viðurkennt að mér finnst þetta mjög þreytandi nema í 2-3 klukkustundir um áramótin sjálf. Það er þó huggun harmi gegn að bróðurpartur fjármagnsins sem kemur inn fyrir flugeldasölu fer til góðs málefnis. Án björg- unar- og hjálparsveitanna okkar væri mun erfiðara um vik í land- inu. Sjálfboðaliðar á öllum aldri og af báðum kynjum eru reiðu- búnir að hlaupa út fyrirvaralaust hvenær sólarhringsins sem er og hvenær ársins sem er. Við sátum á aðfangadagskvöld fyrir ári síðan yfir steikinni, fjölskyldan, þegar viðstaddur tengdasonur var beð- inn um að vera í viðbragðsstöðu. Ekki kom til þess að hann færi sjálfur út þetta kvöld en fjölmarg- ir félagar hans leituðu drykklanga stund að týndum landa okkar. Sú leit bar góðan árangur, sem betur fer. Menn hlaupa út frá fjölskyld- unni, út úr fjölskylduboðum, afmælum barnanna sinna, rjúka út frá jólasteikinni og jafnvel út úr jólamessunni. Komi útkall er einskis spurt. Hvort sem um er að ræða týnda rjúpnaskyttu eða strandað skip, snjóflóð eða börn á villigötum. Fleiri hundruð manns um allt land eru viðbúin að hlaupa undir bagga og bjarga náungan- um. Oftar en ekki hefur náung- inn komið sér sjálfur í klemmu með gáleysi af einhverju tagi. Hann leggur af stað vanbúinn, án fjarskiptamöguleika og lætur ekki vita af sér. Og hjálparsveit- armenn fara af stað. Eftir að hafa fylgst nokkuð grannt með störfum þessara manna um ára- bil ber ég ótakmarkaða virðingu fyrir þeim. Þess vegna sætti ég mig betur við flugeldafár ára- mótanna en ella. Þegar ég lít yfir upplýstan himininn hugsa ég um mannslífin sem björgunar- sveitarmenn eiga eftir að bjarga á nýju ári vegna þess að við keyptum af þeim flugelda. Þess vegna geta þeir átt nauðsynlegan búnað, sinnt æfingum og hlaupið til þegar við þurfum á þeim að halda. Það er ekki öðrum til að dreifa og ekki nema sjálfsagt að við sýnum þessu fólki þakklæti okkar í verki og kaupum af þeim flugelda – allt í hófi samt. Gleði- leg áramót. ■ Skotglaðir Íslendingar og björgunarsveitir Í DAG ÁRAMÓT INGA RÓSA ÞÓRÐ- ARDÓTTIR Þegar ég lít yfir upplýstan him- ininn hugsa ég um mannslífin sem björgunarsveitarmenn eiga eftir að bjarga á nýju ári vegna þess að við keyptum af þeim flugelda. Kom Sillén 1920? Í nýjasta hefti Þjóðmála gerir Snorri G. Bergsson sagnfræðingur að umtals- efni það sem hann kallar „kostulegan misskilning“ tveggja manna, Árna Snævars fyrrverandi fréttamanns og Jóns Ólafssonar kennara á Bifröst. Þeir hafi haldið því fram, Árni í bókinni Liðsmenn Moskvu (1992) og Jón í Kæru félagar (1999), að Hugo Sillén, þáver- andi foringi sænskra ungkommúnista, hafi komið til Íslands sem fulltrúi Komintern, alþjóðasambands kommún- ista, árið 1920 til að leggja á ráðin um kommúnískt trúboð hér á landi. Snorri segir að þetta hafi alla tíð hljómað undarlega, því engar íslenskar heimildir séu fyrir þessu. Koma sænsks ungkommúnista hefði á þessum tíma vakið mikla athygli og erlendir gestir voru yfirleitt nafngreindir í blöðunum þegar þeir stigu á land af skipsfjöl. Skjal í Moskvu Hver er þá heimild Árna og Jóns? Það er sama heimildin sem þeir vitna báðir í, bréf sem Sillén þessi á að hafa skrifað óþekktum sænskum kommúnista frá Reykjavík. Bréfið fannst í skjalasafni Komintern í Moskvu árið 1992. Snorri G. Bergsson segir að eitthvað hafi þeir félagar verið annars hugar þegar þeir skoðuðu þetta bréf. „Ætla hefði mátt að þeir hefðu haft varann á vegna margs konar ónákvæmni sem kemur fram í bréfinu, auk þess sem ýmsar upplýsingar í bréfinu standast alls ekki ef Sillén hefur haldið um pennann,“ skrifar Snorri. Hann segir að svo skemmtilega vilji til að bréfritarinn, sem Árni og Jón telja vera Sillén ungkommún- ista, hafi upplifað sams konar reynslu og íslenskur kommúnisti, Hendrik nokkur Ottósson, segir frá í bókinni Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands, að lenda í útistöðum við breskan embættismann á leiðinni frá Leith til Íslands. Sillinn Og kemur ekki á daginn að Hendrik er lykillinn að lausn gátunnar. Hann gekk nefnilega undir nafninu Sillinn meðal félaga sinna í gamla kommúnista- flokknum. Vinur hans Einar Olgeirsson var kallaður Ollinn, Brynjólfur Bjarnason Billinn og Ársæll Sigurðsson Sælinn. Og við nánari athugun á bréfinu í Moskvu kemur í ljós að undir því stendur ekki Sillén heldur Sillinn. „Hugo Sillén kom hins vegar til Íslands árin 1928 og 1930, eins og lengi hefur verið kunnugt, í erindum Komintern til að undirbúa stofnun kommúnistaflokksins,“ segir Snorri. gm@frettabladid.is Mörgum finnst að í aðdraganda jólanna gleymist oft til-efni þeirra. Neyslukapphlaupið yfirskyggi allt annað. Jólasveinar séu meira áberandi en Frelsarinn og boð- skapur hans. En þó má ekki gleyma því að kirkjur landsins eru vel sóttar helgidagana. Þessi jól voru þar engin undantekning. Á aðventunni er kirkjustarf einnig öflugt eins og fram kom í viðtali við séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest hér í blaðinu á Þorláksmessu. „Íslendingar eru mjög einhuga í því að halda gleðileg jól, eiginlega alveg óháð því hvaða áherslur þeir hafa að öðru leyti í lífi sínu. Fátt sameinar þjóðina eins vel og jóla- haldið,“ sagði hann. „Ég skynja meiri gleði í kringum jólin og mér finnst vera minna um vandamál. Fólk leyfir sér kannski að gleyma þeim um stundarsakir eða yfirstígur þau jafnvel,“ sagði séra Hjálmar. Þessi orð dómkirkjuprestins eru uppörvandi. Jólin eiga auð- vitað að vera hátíð gleðinnar öðru fremur. Ekki þó neyslugleði heldur hinnar sönnu innri gleði sem leiðir af því að láta gott af sér leiða og rækta uppbyggilegt samband við sína nánustu og náungann. En heldur var hún nú dapurleg forsíðufréttin sem þetta blað flutti á föstudaginn. „Margir í meðferð eftir jól“ sagði þar. Haft var eftir Þórarni Tyrfingssyni yfirlækni á Vogi, meðferðar- stöð SÁÁ, að í janúar mætti eiga von á mörgum nýjum andlit- um. „Þetta er oft fólk sem hefur brugðist skyldum sínum gagn- vart fjölskyldunni yfir hátíðarnar og ekki mætt í jólaboð vegna drykkju,“ sagði hann og bætti við: „Fólk er oft mjög tilfinninga- ríkt um jólin og því verða þessi mál oft að miklu hitamáli sem stundum opnar augu drykkjumannsins fyrir vandanum.“ Það er auðvitað kostur ef jólin hreyfa þannig við fólki sem lent hefur í öngstræti, en betur væri að slík viðhorfsbreyting yrði fyrir hátíðarnar en eftir þær, þegar helgihaldinu hefur verið spillt með tilheyrandi sárindum og vanlíðan. Þó að ástæða sé til að gleðjast yfir sérhverjum ofdrykkjumanni sem leitar sér með- ferðar væri ástæða til meiri gleði ef menn kynnu sér almennt meiri hóf á þessu sviði. Svo má ekki gleyma því að með vaxandi fjölmenningu á Íslandi fjölgar þeim sem ekki halda hefðbundin kristileg jól. „Við gleðjumst og tökum þátt í jólahátíðinni með kristnum bræðr- um okkar, engin spurning,“ sagði Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, í Fréttablaðinu á föstudaginn. Þetta er rétta afstaðan. Um leið og kristnir Íslendingar hljóta að sýna fólki, sem rækir önnur trúarbrögð eða engin, umburðarlyndi, hljóta hinir síðarnefndu að laga sig að hefð og menningu þorra þjóðarinnar. „Þetta snýst að miklu leyti um ljósin og fegurðina í skammdeginu,“ sagði Salmann Tamimi og minnti réttilega á að mikilvægast væri að huga að þeim sem minna mættu sín og þeim sem væru einir yfir jólin. Ólík trúarbrögð og veraldarhyggja eru hluti af nútímanum á Íslandi en hvorugt þarf að spilla jólagleðinni og tækifærum sem jólin færa okkur til að rækta okkar betri hliðar. SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Jólahaldið sameinar íslensku þjóðina: Hátíð gleðinnar Jólin eiga auðvitað að vera hátíð gleðinnar öðru frem- ur. Ekki þó neyslugleði heldur hinnar sönnu innri gleði sem leiðir af því að láta gott af sér leiða og rækta uppbyggilegt samband við sína nánustu og náungann. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Mest lesna vi›skiptabla›i› G al lu p kö nn un f yr ir 36 5 pr en tm i› la m aí 2 00 5. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉ TABLA I I‹VIKUDAGA l vi›skiptabla›i› G al lu p kö nn un f yr ir 36 5 pr en tm i› la m aí 2 00 5.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.