Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 34

Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 34
[ ] Vertu fallega sólbrún(n) - innan frá Vísindalega staðfest. Imedeen Tan Optimizer - hylki verka innan frá og veita gylltan húðlit, sem helst lengur en þig hefur nokkurn tímann dreymt um. Hylkin undirbúa húðina fyrir sólina, minnka roða og viðkvæmni fyrir sól, verja húðina gegn öldrun af völdum sólar og örva myndun á fallegri sólbrúnku. Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára, Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi. S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn Póstsendum um land allt Betra úthald Góð næring • Brennsluaukandi Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Ef maginn fer í ólag þá getur Silicol hjálpað. Silicol bindur bakteríur og önnur skaðleg efni í maga og gerir óvirk. Silicol fæst í apótekum um allt land. Þú borðar þær með uppáhalds álegginu, kannski ylvolgar úr ofninum, ristaðar, með hvítlauksolíu, stundum eins og pizzur ... eða eins og Strandamenn, glænýjar með íslensku smjöri. Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í næstu matvöruverslun. Hollara brauð finnst varla. Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum 100 ára hefð og ekkert nema hollusta Gönguferðir eru góð líkamsrækt. Það getur verið sniðugt að fara út að ganga seinni partinn eða á kvöldin fyrir jólin og skoða jólaskreytingar í leiðinni. Birna Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, stefnir á að taka þátt í Vasa-skíðagöngunni sem haldin verður í Svíþjóð í mars á næsta ári. Hún hyggst leggja snjó undir fót og ganga alls níutíu kílómetra á einum degi. „Fyrir tveimur árum síðan fór faðir minn í þessa göngu ásamt fjórum bræðrum sínum og þótti það mikið afrek,“ segir Birna. „Nú var ákveðið að endurtaka leikinn og eru margir úr fjöl- skyldunni að fara saman. Þetta verður hátt í tuttugu manna hópur.“ Sumir göngugarpanna ætla sér að fara hálfa göngu en sumir ætla sér alla níutíu kíló- metrana. „Við frændsystkinin erum flest á svipuðum aldri og frekar óreynd á gönguskíðum. Ég er eina stelpan sem fer níu- tíu kílómetrana, ég gat ekki látið það eftir frændum mínum að það væri engin stelpa sem færi sem fulltrúi fjölskyldunnar,“ segir Birna og hlær. „Þannig að þrátt fyrir að vera þekkt fyrir margt annað en að kunna og vera góð á gönguskíðum ætla ég að taka þátt í þessari geggjun.“ Vasa-skíðagangan er öllum opin og á hverju ári taka um fimmtán þúsund manns þátt. Fólk getur valið sér vegalengdir til að fara og segir Birna fyrir- komulagið svipað því að skrá sig í Reykjavíkurmaraþonið. Níutíu kílómetrarnir sem hún ætlar sér að ganga verða skíðaðir í einum rykk og því gott að vera vel undir- búinn. „Ég held að heimsmetshaf- arnir séu að fara þessa vegalengd á einhverjum þrem eða fjórum tímum,“ segir Birna. „Ég sé fram á að gera þetta á einhverjum tíu eða tólf tímum,“ bætir Birna við og skellihlær. Birna segir undirbúninginn fyrir ferðina hafa verið skemmti- legan og fjölskyldan stundi mikla útivist saman meðan hún komi sér í form. „Um leið og það byrjar að snjóa tökum við stífar göngu- skíðaæfingar,“ segir Birna „Ég læri þá á gönguskíði eftir þetta allt saman.“ johannas@frettabladid.is Vasast í Vasagönguna Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, er á leið í kraftmikla skíðagöngu í Vasa í Svíþjóð. 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10 Landsbjörg, í samvinuu við Blindrafélagið, Odda og Póst- inn, gefur öllum fjórðu til sjöttu bekkingum hlífðargleraugu fyrir áramótin. Landsbjörg hefur sent fjórðu til sjöttu bekkingum gjafabréf fyrir öryggisgleraugum en bréfin gilda á öllum sölustöðum Landsbjarg- ar. Þetta er þriðja árið sem þetta er gert en vel hefur tekist til að fækka augnslysum. „Þetta er hagsmunamál allra aðila. Tekist hefur að fækka öllum augnslysum nema þeim er tengjast fikti,“ segir Jón Ingi Sig- valdason, yfirmaður flugeldasölu Landsbjargar. „Þess vegna gefur Oddi okkur prentunina, Póstur- inn dreifir bréfunum frítt og við gefum gleraugun.“ Landsbjörg gefur öryggisgleraugu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.