Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 37

Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 37
[ ]Skór skipta máli um áramótin. Það er mjög flott að vera í sérstökum og eftirtektarverðum skóm í áramótapartíinu. Dökkbleikur síðkjóll á 32.900 kr. í Mondo á Laugaveginum. Glamúrinn ræður ríkjum um áramótin og tilvalið að klæð- ast glæsilegum síðkjól og muna eftir pallíettunum. Tækifærið til að klæðast glæsi- kjólum er um áramót, þá er eng- inn kjóll of fínn, of glitrandi eða of glansandi. Glamúr ræður ríkj- um og pallíettur, fjaðrir og glit- steinar ráða ríkjum. Glæsileg- ur síðkjóll er framtíðareign, og þegar ekki verið er að nota hann er tilvalið að setja hann upp á gínu í svefnherberginu í stað þess að láta hann hanga á herðatré inni í skáp. Svartir einfaldir kjólar geta nýst vel við fleiri tækifæri, en um áramót er hægt að skreyta þá með nælum og loðfeldum og sauma í þá pallíettur og fjaðrir. Fjaðrir eiga líka að rata í hárið og flott að festa þær í spennur eða hár- spangir. Við fórum á stúfana og fundum nokkra flotta glæsikjóla sem eru flottir fyrir áramótin. Skreyttir kjólar & fjaðrir í hárið Svartur síðkjóll á 62.000 kr. í Mondo á Laugaveginum. Grænn Charleston-satínkjóll á 19.990 kr. í Evu á Laugaveginum. Svartur glamúrkjóll með hvítum kraga frá Aganovich Yung á 64.800 kr. í Kronkron. Svartur flauelskjóll á 25.990 kr. í Evu. Hlírakjóll með eldtungum frá Elly Kishimoto á 58.800 kr. í Kronkron. Grár kjóll með stórum rósum á frá Rok- sanda Illimcic á 56.800 kr. í Kronkron. Útsölur eftir allt jólabrjálæðið eru nú þegar hafnar. Flestar útsölurnar byrja þó ekki fyrr en eftir áramót í útsölumánuðin- um mikla. Janúarútsölurnar hafa alltaf verið föst hefð hér á Íslandi. Eftir alla jólaösina er kominn tími fyrir verslanir að hafa ham- skipti. Útsölurnar sem oftast byrja í janúar hefjast nú jafn- vel í desembermánuði. Sumar verslanir hafa jafnvel tekið upp á því að hefja útsölurnar strax á öðrum eða þriðja degi jóla. Ýmsar verslanir má þar nefna, til dæmis Ikea, Debenhams og Topshop. Flestar verslanir halda þó enn í þann sið að hefja útsölurnar í jan- úar. Er það helst gert til þess að gefa fólki tíma til þess að skila jóla- gjöfum og líka til þess að verslun- um gefist tími til að ganga frá eftir jólaösina. Verslunarkjarnarnir tveir, Kringlan og Smáralind, hefja sínar útsölur í byrjun jan- úar. Hermann Guðmundsson, markaðsstjóri Kringlunnar, segir að útsölur þar hefjist formlega fimmtudaginn 5. janúar. Hann hefur þó sterkan grun um að nokkrar verslanir munu hefja útsölur fyrr, jafnvel strax eftir jól. Theódóra Þorsteinsdóttir hjá Smáralind tekur í sama streng en þar hefjast útsölurnar tveimur dögum fyrr en í Kringlunni, hinn 3. janúar. Ekki halda þó allar verslanir útsölur í janúar því stórar versl- anir eins og til dæmis Skífan bíða þangað til janúarútsöluflóð- inu lýkur. Það er þó alveg víst að á næstu vikum ættu útsölur að vera auðfundnar. Því er vonandi að fólk hafi ekki eytt öllu sínu fé í jólagjafir því oft má gera mjög hagstæð kaup á útsölum. Spurn- ing um að kaupa jólagjafir næsta árs strax? Hvenær byrja útsölurnar? Janúarútsölurnar hafa verið föst hefð hjá kaupóðum Íslendingum um langa hríð. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI 30% ICETREND OUTLET Síðumúla 34 Leiðbeiningar ICETREND OUTLET Síðumúli Fe lls m úl i ÚTSALA frá 27. des – 6. jan. 30% afsláttur á öllum vörum í búðinni. Föt og fylgihlutir fyrir börn, unglinga og konur. Verð frá 140, – til 2.625, – Verið velkomin á þriðjudaginn 27. des. eftir kl. 11:00.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.