Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 64

Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 64
 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR47 Að breyta miðbæ Akureyrar er náttúrlega bara þjóðþrifaverk. Það er löngu kominn tími til að breyta þessu ömurlega steintorgi sem hefur ósjaldan komið mér í vont skap. Það fólk sem bar ábyrgð á því að því var breytt í þennan óskapðnað á sínum tíma ætti að skammast sín. Ég man eftir torginu eins og það leit út þegar ég bjó á Akureyri sem barn; grænt gras, gamla lága járngrind- verkið sem auðvelt var að príla yfir á sólskinsdögum og Pési pulsa með vagninn sinn góða. Þetta var svona mannlegt torg þar sem fólk hall- aði sér saman og spjallaði. Ég vona að þið sem standið nú í þeirri vinnu að endurnýja miðbæ Akur- eyrar hafið vit á því að endurreisa gamla torgið og gera miðbæ Akur- eyrar aftur að stað sem mann langar að heimsækja. Hvers vegna er verið að segja okkur að allt mögulegt sé hættulegt? Salt, Freska, sólin og allt annað nánast. Persónulega held ég að best væri bara að sleppa þess- um fréttum og losa okkur við áhyggjurnar sem fylgja því að vera stöðugt að vera að gera eitt- hvað eða borða eitthvað sem gæti hugsanlega valdið okkur snögg- um dauða. Hvað með stressið sem fylgir stöðugum heimsendafrétt- um og öðrum almennum leiðinda- frásögnum, maður gæti hæglega misst hárið ef ekki vitið af því að fá þetta allt yfir sig stanslaust. Það er alveg merkilegt hvað mann langar alltaf að kaupa eldrauðan sportbíl, sem rúmar sirka rass- inn á sjálfum manni, svona bíl sem eyðir lítra á hvern ekinn kílómetra og kostar lágmark hundraðþúsund kall að gera við ef eitthvað smotterí bilar. Fyrir utan þessi smá- atriði kostar svona bíll í kringum fjórar milljónir og maður getur ekki keyrt hann á veturna. Já, svona er karlmaðurinn hannaður, þetta gerist svona. Maður sér töff- ara á rauðum sportbíl og starir þar til hann hverfur fyrir næsta horn, Næsta sem maður veit er að maður er búinn að kaupa Formúla 500 blaðið sem inniheldur fátt annað en rauða sportbíla, Með blaðið í kjöltunni er svo strætóinn tekinn heim og reiknað í hugan- um þar til sú niðurstaða er komin að ef þú tekur bílinn á kaupleigu, flytur til mömmu og hættir að borða þá er bíllinn þinn! Jæja, þá eru jólin að nálgast og ég var að tala við vinkonu mína um allt stússið þegar hún sagði að það væri sem fólk væri ekki að njóta jólanna heldur neytti það jólanna. Þetta fannst mér góð setning, Annars væri ég alveg til í flatskjá ef einhver er að lesa! Þessa vikuna er miðbær Akureyrar, hættulegt salt, sportbílar og flatskjáir efst í huga Friðriks Weiss- happel. FRIKKI SEGIR Akureyri og sportbílar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.