Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 65

Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 65
 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR48 Við eignuðumst fáar nýjar stjörn- ur á árinu 2005. Það vantaði þó ekki frumraunirnar í ár, margar þeirra voru afbragðs góðar, en fáar þeirra gripu í feitt. Í breska rokkinu voru það helst Bloc Party, Kaiser Chiefs og Arctic Monkeys sem seldu frumraunir sínar eins og heitar lummur, en aðrir rokkarar þurftu að láta sér nægja góða dóma og hópdýrkun. Nokkrar nýbakaðar hetjur frá síðastliðnum tveimur árum reyndu að halda krúnunni á höfðinu, en tókst ekki sem skyldi. Franz Ferdinand er besta dæmið um vonbrigði í sölu. Ef árið í fyrra var endurreisn- arár framúrstefnunnar var 2005 árið sem meðalmennskan tók aftur völdin. Það færði okkur á plastfati listamenn á borð við James Blunt, Jack Johnson, Katie Melua og Lönu Clarkson og staðfesti Coldplay sem eina stærstu sveit heims. Það var fínt ár fyrir popp því Damon Albarn náði að gera það aftur skemmtilegt og Madonna blés öllum ungu popp- prinsessunum endan- lega í burtu frá hásæti sínu. Hún sýndi þeim líka hversu miklu máli það skiptir að kópera ekki aðra og vera leitandi lista- maður. Idolstjörnur áttu ekki lengur jafn auð- gengt inn á markaðinn og áður, sem sannar að það er ekki nóg að geta sungið í réttum tón til þess að selja plötur. Sem þýðir að enn er von fyrir innlifun, persónu- lega tjáningu og frumkvæði. Það sem þóttu gallar í fyrra eru aftur að verða að helstu söluvörunni. Í heild var árið 2005 einung- is sæmilegt ár fyrir tónlist, en það stefnir allt í að það næsta verði betra. Að minnsta kosti áhugaverðara. Á eftir komu: 11. Ant- ony & The Johnsons: I´m a Bird Now, 12. The Magic Numbers: The Magic Numbers, 13. Bonnie „Prince“ Billy & Matt Sween- ey: Superwolf, 14. The White Stripes: Get Behind Me Satan, 15. Out Hud: Let Us Never Speak of It Again, 16. Four Tet: Everything Ecstatic, 17. Kings of Leon: Aha Shake Heartbreak, 18. Babyshambles: Down in Albion, 19. Queens of the Stone Age: Lullabies to Paralyze, 20. Nine Inch Nails: With Teeth. ■ ERLENDAR PLÖTUR ÁRSINS 2005 Á eftir koma: 11. Depeche Mode: Playing the Angel, 12. Gorillaz: Demon Dayz, 13. José Gonzalez: Veneer, 14. Coldplay: X&Y, 15. Madonna: Confessions on a Dance- floor, 16. The Mitchell Brothers: A Breath of Fresh Attire, 17. Beck: Guero, 18. U2: How to Dismantle an Atomic Bomb, 19. The Rolling Stones: A Bigger Bang, 20. Paul McCartney: Chaos and Creation in the Back Yard. ■ ERLENDAR PLÖTUR ÁRSINS 2005 Á þeim ótrúlegu fjölbreyttu tímum sem við lifum tekur það stundum plötur rúmt ár að ná athygli eftir að þær koma út. Hér eru nokkrar af þeim plötum sem komu út á árinu 2004 eða fyrr, en fáir kveiktu á fyrr en árið 2005. 1. The Knife: Deep Cuts 2. Arcade Fire: The Funeral 3. The Go! Team: Thunder Lightning Strike 4. Joanna Newsom: The Milk- Eyed Mender 5. Death From Above 1979: You‘re a Woman, I‘m a Machine Uppgötvanir ársins 2005 ARCADE FIRE Hljómsveitin Arcade Fire gaf út magnaða plötu undir lok síðasta árs. KANYE WEST: LATE REG- ISTR ATION Rapparinn Kanye West gaf út góða hip-hop plötu þar sem sálaráhrifin voru í fyrirrúmi. Leikarinn Jamie Foxx kom í heimsókn í hinu eftirminnilega Gold Digger. Ekkert tímamótaverk en fín plata engu að síður. NINE INCH NAILS: WITH TEETH Rokk- arinn Trent Reznor gaf út sína fyrstu plötu í langan tíma, aðdáendum hans til mikillar ánægju. Ískaldar lagasmíð- arnar nístu í gegn og svo virðist sem hvíldin hafi fært hann endurnærð- an til baka. DAFT PUNK: HUMAN AFTER ALL Franski dansdúettinn Daft Punk gaf út sína þriðju plötu á árinu. Eftir misjafna aðra plötu sýndu Frans- mennirnir mun heilsteyptari takta á þessari. Textarnir fjölluðu um tengsl mannsins og tækninnar og tónlistin var uppfull af endurtekningum en náði samt að vera grípandi eins og þeirra er von og vísa. SYSTEM OF A DOWN: MEZMERIZE Rokkaranir í System of a Down komu gríðarsterkir til leiks snemma á árinu með fyrri hlutann í tvíleik sínum. Þessi plata var öllu sterkari en sú síðari með grípandi og grjót- hörðum lögum þar sem hið óvænta var í fyrirrúmi eins og svo oft áður. Gagnrýnin á Bandaríkjastjórn var heldur ekki spöruð. ANTONY AND THE JOHNSONS: I AM A BIRD NOW Látúns- barkinn mjúkraddaði Antony, sem hélt nokkra tónleika hér á landi, gaf út tilfinn- ingaþrungna plötu hlaðna einlægum textum þar sem kyn- hneigð hans, æska og frelsi var umfjöllun- arefnið. THE WHITE STRIPES: GET BEHIND ME SATAN Rokkdúettinn bandaríski gaf út mjög góða plötu og tvímæla- laust eina af sínum allra bestu. Þó svo að enginn Seven Nation Army-slagari sé á plötunni bætir dúettinn það upp með flottum lagasmíðum í nánast hverju horni. Tónleikarnir í Höllinni sýndu styrk sveitarinnar svart á hvítu, eða öllu heldur hvítt á rauðu. KINGS OF LEON: AHA SHAKE HEART- BREAK Sveitarokkararnir síðhærðu í Kings of Leon styrktu stöðu sína í rokkinu með sinni annarri plötu. Lögin voru hvert öðru skemmtilegra og stemningin á plötunni var í sér- flokki, rétt eins og á þeirri fyrri. JIM NOIR: TOWER OF LOVE Breski tónlistarmaðurinn birtist eins og þruma úr heiðskíru lofti undir lok ársins með sína fyrstu plötu, sem var aldeilis frábær. Fallegar melódíur og bráðskemmtilegt popp í anda Beach Boys bræddi í manni hjartað á augabragði. FRANZ FERDINAND: YOU COULD HAVE IT SO MUCH BETTER Önnur plata Franz Ferd- inand var uppfull af slögurum. Hún var betri en frumburðurinn, sem þó var virkilega skemmtilegur. Tónleikar sveitarinnar í Kaplakrika voru mögnuð upphitun fyrir útkomu plötunnar, sem stóð algjörlega undir væntingum. FREYR BJARNASON BIRGIR ÖRN STEINARSSON MARS VOLTA: FRANC- ES THE MUTE Helsta prog-rokksveit okkar tíma olli engum von- brigðum á annarri breiðskífu sinni. Eins ýkt og hægt er að vera á öllum sviðum. Frances the Mute er hljóðskúlptúr sem krefst mikils af hlustendum sínum og verðlaunar þá ríkulega sem eru reiðubúnir að stinga sér í hyldýpið. KANYE WEST: LATE REGISTRATION Hip-hop plata ársins hlýtur að vera önnur breiðskífa Kanye West. Hann fylgdi magnaðri frumraun sinni frá því í fyrra eftir með plötu sem er ekkert síðri. Hann varð einnig mikilvægur talsmaður svartra í Bandaríkjun- um þegar hann skaut á ríkisstjórn George Bush í beinni útsetningu eftir að New Orleans var blásið af kortinu af hvirfilbylnum Katarinu. GORILLAZ: DEMON DAYZ Damon Albarn tók sig til og hristi hina fullkomnu poppplötu fram úr ermi sinni með hjálp Danger Mouse. Honum tókst að gera afbragðs sólóplötu og eiga hvern slagarann á fætur öðrum á efstu sætum vinsældalista um allan heim, án þess að þurfa að takast á við það að sjá andlit sitt í öllum slúðurblöðum eða imbakössum. M.I.A.: ARULAR Frumraun innflytjandans frá Srí Lanka hristi allverulega upp í breskri popptónlist á árinu sem var að líða. Mathangi Arulpragasam, eða M.I.A. (Missing In Action) eins og hún kallar sig, blandar saman breskri svefnherbergiselekt- róník við hörð bít klúbbanna og tónlistar frá Srí Lanka. Hún virðist vera mikill uppreisnarseggur, eins og pabbi hennar sem þurfti að flýja land eftir að hafa tekið þátt í uppreisninni á eyjunni. SUFJAN STEVENS: ILLINOISE Fimmta breiðskífa sérvitringsins Sufjan Stevens, á nánast jafn mörgum árum, er algjört meistarastykki. Þetta er önnur breiðskífan tileinkuð ríki í Bandaríkjunum en Sufjan hefur lofað að gera breiðskífu fyrir öll þeirra, nema Texas. Illinois er epísk plata með stórtækum blástursútsetningum. Hér er allt eins og það gerist best, lagasmíðar, flutningur, útsetningar og textar. DEVENDRA BANHART: CRIPPLE CROW Fjórða breiðskífa San Francisco-búans Devendra Banhart á þremur árum er hans besta til þessa. Hann er búinn að hrista af sér feimni fyrstu platna sinna, þar sem lögin náðu sjaldnast upp í aðra mínútu. Hér brýst hann fram sem fullmótaður laga- og textahöfundur og útsetjari. Bob Dylan yrði stoltur. COCOROSIE: NOAH´S ARC Casady- systurnar negldu niður frumlegan naumhyggju stíl sinn á annarri breiðskífu sinni. Það hljómar engin önnur sveit eins og þær og því ekki undarlegt að aðdáendahópur þeirra hafi vaxið jafn ört og raun ber vitni. Ævintýri sem hófst inni í stofu í lítilli íbúð í Paris er núna leikið á sviðum um allan heim. BLOC PARTY: SILENT ALARM Frumraun bresku rokksveitarinnar Bloc Party er skotheld. Beitt og angurvært nýbylgjurokk sem minnir nokkuð á eldri verk The Cure, Joy Division, Gang of Four og samtímasveitir á borð við Interpol. Kröftugur hljóðfæraleikur, draumkenndir textar, frábærar melódíur og söngur gera þetta að bestu rokkplötu ársins. MADONNA: CONFESSIONS ON A DANCEFLOOR Hverjum hefði dottið í hug að Madonna gæti enn, á fimmtugsaldri, gert plötur sem endur- spegla tíðarandann? Hún leitaði í rætur sínar og gerði líklegast bestu plötu ferils síns inni í svefn- herbergi hjá danstónlistarsérvitringnum Stuart Price úr Les Rhythms Digitales og Zoot Woman.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.