Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 71

Fréttablaðið - 27.12.2005, Side 71
54 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Jaliesky Garcia, ein helsta skytta íslenska landsliðs- ins í handbolta, segir allar líkur á því að hann muni koma til móts við félaga sína í landsliðinu hér á landi í byrjun árs og reyna að taka þátt í undirbúningi liðsins fyrir EM í Sviss sem hefst í lok janúar. Hann segir að forráðamenn Göpp- ingen hafi brugðist sér þegar þeir létu kollega sína hjá HSÍ ekki vita af aðgerðinni sem hann fór í á fimmtudaginn, en landsliðsþjálf- arinn Viggó Sigurðsson fékk að heyra af aðgerð Garcia í fjölmiðl- um á Þorláksmessu. „Fyrirvarinn var mjög lítill og auk þess þurfti ég einnig að vera á sjúkrahúsinu daginn fyrir aðgerð- ina. Ég bað stjórnendur Göpping- en að hafa samband til Íslands og láta vita hvernig staðan hjá mér væri en svo frétti ég síðar að þeir gerðu það ekki,“ sagði Garcia við Fréttablaðið í gær. „Ég er búinn að tala við Einar (Þorvarðarson, framkvæmda- stjóra HSÍ) og ég veit að menn eru ekki ánægðir með þetta en það er lítið sem ég gat gert. Forráða- menn Göppingen áttu að láta vita en gerðu það ekki og ég er miður mín vegna þess,“ sagði Garcia. Garcia segir að læknar ytra búist við því að það taki hann fjór- ar vikur að ná sér en að hann sé vongóður um að bati sinn verði hraðari en svo. „Ég ætla að gera allt sem ég get til að spila með Íslandi á EM. Ég vona og trúi því að ég verði orðinn góður í tánni áður en mótið hefst,“ segir Garcia og bætir því við að forráðamenn Göppingen muni ekki setja fótinn fyrir þáttöku hans á EM, en lengi hefur verið stirt á milli Göpping- en og HSÍ. „Þjálfarinn minn spurði mig hvort ég vildi fara á EM. Ég sagði já og þá sagðist hann ætla að hjálpa mér að láta það takast.“ Sex vikur eru liðnar síðan Garcia tábrotnaði en þrátt fyrir meiðslin spilaði hann ávallt fyrir Göppingen. Forráðamenn HSÍ og Viggó vilja meina að augljóst sé að Göppingen hafi gripið tæki- færið og látið Garcia fara í aðgerð vegna pásunnar sem fram undan er í öllum keppnum Evrópu vegna EM í Sviss en sjálfur segir Garcia að hann hafi átt kost á öðru. „Ég varð að láta laga tána. Ég hef spilað sárþjáður í margar vikur og ég hefði ekki getað spil- að á EM í þessu ástandi,“ segir Garcia og bætir því við að hann sé strax orðinn mun betri. „Mér líður miklu betur í tánni núna og svo virðist sem að aðgerð- in hafi gengið fullkomnlega upp. Nú vona ég bara að batinn verði jafngóður og ég geti spilað af full- um krafti í Sviss,” sagði Jaliesky Garcia að lokum. vignir@frettabladid.is Göppingen átti að láta HSÍ vita Jaliesky Garcia segist ætla að gera allt sem í sínu valdi standi til að vera með á EM í Sviss þrátt fyrir að hafa farið í aðgerð á fimmtudaginn. Hann segir að Göppingen hefði átt að láta HSÍ vita af aðgerðinni. JALIESKY GARCIA Hefur ekki gefið upp vonina um að spila með íslenska lands- liðinu á EM í Sviss. Einn stærsti leikur ársins í þýska handboltanum verður í kvöld þegar Gummersbach og Kiel eigast við en leikurinn verður sýndur í beinni útsend- ingu á Sýn. Þarna mætast tvö efstu lið deildarinnar en Kiel er í efsta sæti með tveggja stiga forskot. Það seldist upp á leikinn fyrir mánuði síðan og verða 19.250 áhorfendur í höllinni. Íslensku landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson leika með Gummersbach. „Maður reynir að líta á þetta eins og hvern annan leik þó að búið sé að blása hann upp eins og hægt er. Við höfum æft alla daga um jólin en menn hafa passað sig á að detta ekki of mikið í jólasteikina. Þetta er stærsti leikurinn í nokkurn tíma, fjölmiðlar sýna honum gríðarlegan áhuga og menn þurfa að gæta sín á að halda skynsemi. Við höfum áður spilað fyrir sautj- án þúsund manns og ættum ekki að taka eftir neinum mun í þessum leik,“ sagði Guðjón Valur en hann segir að undir- búningur liðsins fyrir leikinn hafi verið mjög hefðbundinn. „Ef við töpum er bilið niður í Lemgo og Magdeburg orðið óþægilega lítið. Ef við vinnum getum við endað í fyrsta sætinu um áramótin en þetta er síðasti leikur Kiel fyrir áramót. Við eigum hins vegar leik gegn Minden eftir og með sigri okkar verður bar- áttan um meistaratitilinn alveg galopin,“ sagði Guðjón, sem er markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar með 131 mark í sextán leikjum. „Ég var fljótari að komast inn í liðið og ná að stilla strengi við nýja liðsfélaga en ég átti von á. Liðinu hefur gengið vel en hefur enn ekki afrekað neitt, við erum enn í öðru sætinu. Yfirlýst markmið okkar er að enda í einu af þremur efstu sætunum og komast í Meistaradeildina en að sjálfsögðu stefnum við eins hátt og hægt er,“ sagði Guðjón. GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON: LEIKUR MEÐ GUMMERSBACH Í STÓRLEIK GEGN KIEL Í KVÖLD Reyni að líta á leikinn eins og hvern annan FÓTBOLTI Brasilíska landsliðið sem varð heimsmeistari í knatt- spyrnu 1970 er besta lið allra tíma samkvæmt könnun sem breska ríkisútvarpið stóð fyrir en niðurstöður voru kynntar nú um jólin. Pele kom, sá og sigraði í heimsmeistarakeppninni sem haldin var í Mexíkó en hann var þá 29 ára gamall. Lið Liverpool sem varð Evrópumeistari 1977, 1978 og 1981 hafnaði í öðru sæti í könnunni. Bob Paisley var knatt- spyrnustjóri liðsins og undir hans stjórn léku snillingar eins og Kevin Keegan, Kenny Dal- glish og Emlyn Hughes. Fimmfalt Evrópumeistaralið Real Madrid á árunum 1956-60 var í þriðja sæti á undan enska landsliðinu sem hampaði heims- meistaratitilinum 1966. Lið Manchester United sem vann þrennuna ógleymanlegu 1999 var í sjötta sætinu. Enska ruðn- ingsliðið frá 2003 varð í sjöunda sæti og efst af þeim liðum sem ekki eru fótboltalið. Brasilíska landsliðið sýndi sambatakta af allra bestu gerð frá upphafi heimsmeistara- keppninnar 1970 til loka hennar en það vann alla sína leiki og er það í eina skipti sem Brasil- ía hefur farið í gegnum heila heimsmeistarakeppni með því að gera það. Tékkóslóvakar voru sigraðir 4-1 í fyrsta leiknum og takturinn var kominn af stað, í úrslitaleiknum unnu Brasilíu- menn einnig 4-1 en þá var Ítalía auðveld bráð. Brasilíumenn léku sér að Ítölum með Pele, Jair- zinho, Rivelino, Gérson og Tostao á fullri ferð. Þá spilaði fyrirlið- inn Carlos Alberto stórt hlutverk í liðinu og lyfti bikarnum í mót- slok sem Brasilía vann til eignar þar sem þetta var í þriðja sinn sem þjóðin varð heimsmeistari. Þetta frábæra lið er talið það besta í sögunni. - egm Hlustendur breska ríkisútvarpsins: Brasilía 1970 er best PELE BESTUR Pele skoraði og lagði upp ófá mörk á HM 1970. GETTY IMAGES BESTU LIÐ ALLRA TÍMA HJÁ BBC 1. Brasilía 1970 2. Liverpool 1977-81 3. Real Madrid 1956-60 4. Heimsmeistaralið Englands 1966 5. Evrópumeistarar Celtic 1967 6. Manchester United 1999 7. Ruðningslið Englands 2003 8. Arsenal 2003-04 9. Krikketlið Ástralíu 1995-2005 10. Krikketlið Englands 2005 FÓTBOLTI Stuðningsmenn spænska liðsins Real Madrid fengu í jóla- gjöf þetta árið fréttir þess efnis að félagið hefði gengið frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Cic- inho. Kaupverðið er í kringum 300 milljónir íslenskra króna en þó Cicinho sé Brasilíumaður er hann með ítalskt vegabréf og telst því ekki vera útlendingur í spænsku deildinni. Cicinho, sem er 25 ára, kemur frá liði Sao Paulo í Brasilíu en félagið varð meistari í heima- landinu og á dögunum heims- meistari félagsliða með því að leggja Liverpool að velli í úrslita- leik. Hann er hugsaður sem fram- tíðarleikmaður í hægri bakverðin- um hjá Real Madrid og þykir búa yfir leikstíl sem svipar mjög til þess sem Roberto Carlos, vinstri bakvörður Real, hefur tamið sér í gegnum árin. - egm Samkeppni í bakverðinum: Cicinho til Real Madrid CICINHO Úr leik Sao Paulo gegn Liverpool. FÓTBOLTI „Þrátt fyrir að ýmsir haldi því fram að tími minn á Old Trafford sé liðinn er ég ekki á leiðinni að hætta, ég er ákveð- inn í að halda áfram,“ segir Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United. Sögur hafa verið í gangi um að hann hyggist hætta eftir tímabilið en United féll út úr Meistaradeildinni eftir riðlakeppnina og er langt á eftir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur nú blásið á þær sögu- sagnir. „Ég mun halda áfram þar til liðið er komið á rétta braut. Það verður ekki auðvelt þar sem enska deildin er sterkari en áður. Ég er að endurbyggja liðið og hlakka mikið til næsta árs því merki eru á lofti um að við verðum betri en við höfum verið í langan tíma,“ sagði Ferguson. - egm Sir Alex Ferguson: Er ekki að fara að hætta HELDUR ÁFRAM Sir Alex ætlar að halda áfram hjá United. Jakob og Anja Ríkey best Jakob Jóhann Sveinsson og Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Sundfélaginu Ægi hafa verið valin sundfólk ársins. Það er Sundsamband Íslands sem stendur fyrir kjörinu en úrslitin voru kunngjörð í gær. > Snorri Steinn meiddur Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guð- jónsson á við meiðsli að stríða í öxl og lék af þeim sökum ekki með liði sínu Minden gegn Magdeburg í þýsku úrvals- deildinni í gær. Snorri meiddist nýlega á æfingu en hafði hugsað sér að taka þátt í leiknum í gær. Hann gat hins vegar lítið beitt sér í upphitun og því lítið vit fyrir hann í að reyna að taka þátt í leiknum sjálfum. Minden tapaði leiknum 31-27 en Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg og Arnór Atlason eitt. Þá skoraði Einar Hólmgeirsson níu mörk og Alexander Peterson sjö þegar Grosswallstadt vann Lemgo 32-27. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.