Tíminn - 06.02.1977, Qupperneq 30

Tíminn - 06.02.1977, Qupperneq 30
30 Sunni iagur 6. febrúar 1977 Nú-Tíminn ★ ★★★★★★★ Lárus: Það er misjafnt. Viö semjum mikið saman, t.d. mik- ið á æfingum. Nútlminn: En hvers vegna enskir textar? Lárus: Söngvararnir hjá okk- ur hafa mikið ráðið þvi, þykir sennilega erfiðara að syngja is- Ienzkuna. Nútiminn: Þið litiö að sjálf- sögðu á ykkur sem tónlistar- menn, — teljið þið ykkur ekki hafa skyldur við textann? Haraldur: Jú að sjálfsögðu! Lárus: Jú, en það er kannski eitt i þessu. Textarnir við þessi lög voru margir til áöur en plat- an var gerð. T.d. er Stormy Monday gamalt, erlent lag og textinn fyrir hendi. Haraldur: Yfirleitt segja textarnir i Islenzka poppinu ekki neitt. Þetta er svona til aö ýta undir fólk við drykkju i heima- húsum og dans á diskótekum. Sennilega höfðum viö eitthvaö svipaö i huga, þegar textarnir uröu til. Við vildum einfalda skemmtitexta og leggja siöan meiri áherzlu á tónlistina. Nútiminn: Og vinsældir plöt- unnar? Þorsteinn: Ætli danstónlistin sé ekki vinsælli, á diskótekum t.d. Haraldur: Við leikum náttúrulega meira danstónlist þar sem við komum fram. Nútiminn: Leikið þið ein- göngu danstónlist á böllum? Haraidur: Nei, við byrjum á henni og skjótum hinu inn, ann- ars fer þetta mest eftir fólkinu. Það þekkja allir dansleiksand- ann. Eins og einhver góður maður sagöi i útvarp um dag- inn: Brennivinið er númer 1, 2, 3, 4.... og tónlistin kannski I tuttugasta sæti. Þorsteinn: Ég gæti samt trú- að, að platan seljist fremur vegna hljóðfæratónlistarinnar. Nútiminn: Og þið leggiö lika alla áherzlu á tónlistina, ekki ljóðin? Lárus: Við geröum það á siö- ustu plötu já. Gunter: En góðir islenzkir textar eru framtiðin. Lárus: Við stefnum að þvi. Haraidur: Já, við erum a.m.k. farnir að tala um þaö og reynum að gera okkur grein Nútiminn tók sig nýlega til og hitti að máli hljóm- sveitarmeðlimi Eikar. Tilefnið var fyrsta breið- skífa þeirra félaga, Speglun, sem út kom um jólin. Þessi plata, þokkaleg í alla staði og stórgóð á köfl- um, er ágæt þverskurðarmynd af því, sem Eik hef- ur verið að gera, a.m.k. síðastliðið ár. Þegar nýskipaður spyrill Nútímans kom á vett- vang, voru þrir meðlimir af fimm mættir, og það látið gott heita. Þessir voru: Lárus Halldór Gríms- son, leikur einkum á píanó, orgel, synthesizer og flautu, Haraldur Þorsteinsson, sem leikur á bassa, og Þorsteinn Magnússon á raf magnsgifar, kassa- gítar og hifli. Auk þeirra starfa i hljcmsveitinni: Sigurður Kristmann Sigurðsson, söngvarinn, og ólafur Júlíusson Kolbeins, trommuleikari hljóm- sveitarinnar. Þorsteinn: Jú.kannski, en það er ekki sama hverjir það eru. Það var trommuleikari með Rifsberja einu sinni, og þó að hann hefði ekki atvinnuleyfi, var hann ekki rekinn úr landi. Ekki gekk spyrli Nútimans vel að fá strákana i Eik til að ræða persónuleg efni, þeir voru hógværir i meira lagi. Einn maður var þarna i stofunni ónefndur.Hánn kalTaðiisig Gunt- er og vildi engu öðru nafni heita, en kynnti sig að ööru leyti sem hugmy ndafræðing hljóm- sveitarinnar. Nútiminn: Þið eruð atvinnu- menn i tónlist, ekki satt? Lárus: Jú, siðastliðin tvö ár a.m.k. Haraidur: Nákvæmlega tvö ár, frá áramótunum ’74-’75. Brennivínið er númer 1, 2, 3, 4, og tónlist- in kannski í 20. sæti Nei, strákarnir í Eik hafa ekki þessa skoðun, en hins vegar er þetta haft eftir einhverjum góðum manni í þessu viðtali við hljómsveitina Nútiminn: Hvað er þá að segja um feril Eikar? Haraidur: Eik var stofnuð um páskaleytið 1972 og voru þá I hljómsveitinni ólafur Sigurös- son á trommur, Gestur Guðna á gitar og ég á bassa. Hálfu ári seinna eða svo bættist Þorsteinn Magnússon i hópinn, þá leið enn hálft ár unz Lárus Grimsson og negrarnir tveir komu inn. Negrarnir hættu stuttu siðar, einnig Gestur, og Arni kom til okkar sem söngvari. Þannig starfaði hljómsveitin i um það bil tvö ár eða þangað til Arni hætti. i svona tvo til þrjá mán- uði þar á eftir vorum viö bara fjórir og lékum eingöngu hljóö- færa — („instrumental”) tón- list. Siðan söng Herbert með okkur i stuttan tima, en Sigúrð- ur Sigurösson tók svo við af hon- um. Um áramótin ’75-’76 hætti Ólafur trommuleikari, I hans stað kom ólafur Kolbeins, og þannig hefurhljómsveitin starf- að sfðan. Nútiminn: Var Eikin vinsæl i upphafi? Haraldur: Já, kannski hjá ákveðnum hópi fólks.Við lékum mikið á hljómleikum, einnig skóladansleikjum hjá mennta- skólanemum. Þegar Herbert kom, urðum við vinsælli hjá al- menningi. Þorsteinn: Þá fórum við að leika meira danstónlist og flökkuðum um allt land. Haraldur: Aður, þegar Arni var með okkur, voru 99% af lögunum frumsamin. Nútiminn: Hvernig hefur hljómsveitin annars þróazt og breytzt? Þorsteinn: Við vorum eigin- lega miklu þyngri. Haraldur: Ég man eftir þvi, aö þegar við vorum þrir og Steini bættist I hópinn, æfðum við á hverju einasta kvöldi i heilan vetur, og það var ekki eitt einasta lag á efnisskránni. Þorsteinn: Og þá lékum við aldrei opinberlega. Haraldur: Það voru jafnvel aðrir meö okkur, þetta wvar eiginlega hóplifun (,,jam sessi- on”). Nútiminn: Negrarnir, hvers vegna komu þeir til ykkar? Þorsteinn: Það var alveg óvart. Haraldur: Þeim var bent á okkur og voru bara allt i einu mættir þarna. Við vorum að æfa og þeir fóru strax að syngja. Lárus: Þeir sungu báðir og annar lék á „percussion”. Nútiminn: Var þetta skemmtilegt timabil? Haraldur: Ja, sól Eikar byrj- aði að skina, þetta var sem sagt auglýsing. Lárus: Maður kynntist þvi lika hvað Islendingar eru miklir svertingjahatarar. Þorsteinn: Móttökurnar, sem þeir fengu hjá yfirvöldum, bentu a.m.k. ekki til annars. Haraldur: i Klúbbnum var lika öskrað á þá: Komið þið ykkur i burtu svertingjafifl. Lárus: Þeir fengu ekki at- vinnuleyfi, og þegar þeir komu fram opinberlega, voru þeir reknir úr landi meö sólarhrings fyrirvara. Nútiminn: Var þá ekki veriö aö gæta hagsmuna islenzkra tónlistarmanna? Nútiminn: Og er eitthvað upp úr þessu að hafa annað en ánægjuna? Gúnter: Blóö, svita og tár. Haraldur: Orugglega ekki mikla peninga. Þetta er sjálf- sagt fyrst og fremst hugsjón. Nútiminn: Náðargáfa eða vinna? Þorsteinn: Hvorutveggja. Haraldur: Einkum og aðal- lega þó vinna. Nútiminn: Æfiö þið mikið? Haraldur: Við byrjum klukk- an tiu á morgnana og erum að fram eftir degi. Lárus: Og svo þarf að sjá um rekstrarhliðina á þessu. Gunter:Þeir sjá um allt sjálf- ir, hljómtækin, uppsetningu og piötuútgáfu. T.d. sáu þeir alveg um brot og limingu á plötuum- slagi, sem flestir kaupa fullunn- ið að utan. Nútiminn: Enginn rótari? Lárus: Nei, rótarar eru bara ljótirog leiðinlegir strákar, sem eyðileggja fyrir manni hljóð- færin. Þorsteinn: Það undrast lika allir hvað litið sér á tækjunum hjá okkur. Nútiminn: En hvar liggja ræturnar? — Einhver uppá- halds tónlist og tónlistarmenn? Haraldur: Bandariskur nú- timadjass væntanlega. Gunter: Og „funk”. Nútiminn: Og hvenær byrjuð- uð þið á þessum ósköpum? Haraldur: Tiu ára var ég far- inn að glamra áklassiskan skáta- gitar, sem ég stal frá systur minni. Arið 1967 byrjaði ég i Sókrates, svo fór ég i Litla mat- jurtagarðinn, siðan i Pops og loks I Eik. Þorsteinn: Já maður byrjaði náttúrulega fyrir lifandi löngu. Ég var svona 14-15 ára, þegar ég fór að leika með Halla, Lalla og Arna Sigurðs, það var Mat- jurtagarðurinn. ' Nútiminn: Matjurtagarður- inn? Haraidur: Hann var stofnað- ur ’69 af mér og Þórði Arnasyni, Kristmundi Jónassyni og Egg- ert ólafssyni. Við vorum fast- ráðnir i heilan vetur hjá Las Vegas. Matjurtagarðurinn lagð- ist svo niður, þegar ég fór i Pops, en við stofnuðum hann aftur ’72. Spiluðum litið opin- berlega en þó t.d. á fermingar- hátiö i Templarahöllinni. Lárus: A miðnætti sagði presturinn: Börnin min farið þið nú beina leið heim. — Þakka ykkur fyrir strákar minir. Nútiminn: Þú ert tónskóla- menntaður Lárus? Lárus: Já svolitið, ég lærði á flautu i fimm ár. 1 Matjurta- garðinum lék ég á gitar, en ein- göngu á flautu fyrsta árið i Eik. Fyrir svona þremur árum byrj- aði ég að leika á hljómborð. Nútiminn: Hlustarðu eitthvað á sigilda tónlist? (Spyrillinn þóttist sjá slik plötuumslög uppi' i hillu). Lárus: 1 skólanum lék ég eðli- lega og hlustaði mikiö á klass- iska tónlist, en ekki upp á sið- kastiö. Nútiminn: Nú er þessu haldið að okkur I útvarpi, — telurðu að þetta sé ekkert fyrir okkur? Lárus: Ég er ekkert ofsalega hlynntur þvi að verið sé aö halda mikið uppá þessa gömlu tónlist. Þaö er svo mikið samið af alls kyns tónlist i dag, bæði fyrir sinfóniuhljómsveitir og aörar, sem enginn fær að heyra af þvi alltaf er verið að hamra á Strauss-völsunum og annarri tónlist eldri. Þessi tónlist á ekki mikiö erindi til okkar I dag og tilheyrir liðinni tið. — Þó ekki alveg. Nútiminn: Platan ykkar nýja hefur tvær fremur ólikar hliðar, þetta er af vilja gert er ekki svo? Haraldur: Jú. Gunter: Hún heitir Speglun og speglar tvær hliðar á hljóm- syeitinni. Nútiminn: Fellur ykkur önnur hliðin betur? Lárus: Ja, manni finnst kannski hljóðfæralögin skemmtilegri. Viö hlustum meira á svoleiðis tónlist, • sem þýöir þó ekki að okkur leiðist hin. Nútiminn: Nú eru öll lögin nema eitt frumsamin og yfir- leitt einn ykkar skrifaður fyrir hverju lagi. Þýöir þetta, að þið semjið mest i einrúmi?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.