Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 6
6 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Í HIGH COURT OF JUSTICE
CHANCERY DIVISION
COMPANIES COURT
VARÐANDI
The Continental Insurance company
og
CONTINENTAL REINSURANCE COMPANY LIMITED
og
Continental Management Services Limited
MEÐ HLIÐSJÓN AF
Vii. KAFLA BRESKRA LAGA UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -
MARKAÐI (FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT) FRÁ ÁRINU
2000
TILKYNNING UM AÐILASKIPTI AÐ TRYGGINGASTARFSEMI
Hér með er því lýst yfir að skv. gr. 111(1) breskra laga um fjármálaþjónustu-
og markaði frá árinu 2000, á ensku Financial Services and Markets Act 2000,
(hér eftir „lögin“) hefur High Court of Justice („dómstóllinn“) kveðið upp
eftirfarandi úrskurði:
1. Með úrskurði dags. 17. desember 2004, sem tók gildi kl. 23:59 hinn 30.
desember 2004, hefur dómstóllinn heimilað aðilaskipti að almennri
tryggingastarfsemi Continental Reinsurance Company Limited til Continental
Management Services Limited skv. gr. 112(1) laganna; og
2. Með úrskurði dags. 13. desember 2005, sem tók gildi kl. 23:59 hinn 30.
desember 2005, hefur dómstóllinn heimilað aðilaskipti að almennri
tryggingastarfsemi bresks útibús (UK Branch of) The Continental Insurance
Company til Continental Management Services Limited skv. gr. 112(1)
laganna; og
3. Dómstóllinn hefur einnig kveðið upp úrskurð um félagsslit
Continental Reinsurance Company Limited án gjaldþrotaskipta skv. gr.
112(8)(b) í lögunum; og
4. Dómstóllinn kvað einnig upp nokkra viðbótarúrskurði varðandi áhrif
aðilaskiptanna tveggja, sér í lagi að tryggingarhafa hvers kyns beinnar
tryggingar hjá öðru hvoru fyrirtækinu sem framselt er, sbr. ofangreint, sé heimilt
að nýta sér hvers kyns rétt sinn til uppsagnar á tryggingunni, hafi hann slíkan rétt
skv. lögum viðeigandi aðildarríkis EES (sem er EES-aðildarríkið þar sem
áhættan er fyrir hendi), innan 21 dags frá dagsetningu þessarar tilkynningar.
Afrit af skjölum varðandi bæði aðilaskiptin og úrskurðunum sem heimila þau eru
fáanleg gjaldlaust með því að senda beiðni til Reynolds Porter
Chamberlain í Chichester House, 278-282 High Holborn, London,
WC1V 7HA (Tilvísunarnúmer: MLB/CNA3.15) og á vefsíðunni
www.grmsolutions.com/articles/news.asp.
DÓMSMÁL Samkeppniseftirlitið
hafnaði í gær öllum kröfum stóru
olíufélaganna þriggja, Skeljungs,
Olís og Esso, um að úrskurður
Áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála um ólöglegt samráð félag-
anna verði ógiltur. Kröfu félag-
anna um að sektir yrðu felldar
niður eða þær lækkaðar verulega
var einnig hafnað en þær standa
nú í einum og hálfum milljaði
króna eftir að þær voru lækkaðar
um rúman milljarð í lok janúar í
fyrra. Allt stefnir því í flókin og
tafsöm málaferli.
Þegar lögreglurannsókn hófst
á meintum brotum æðstu stjórn-
enda olíufélaganna og þeim milli-
stjórnendum sem tóku þátt í þeim
samskiptum í janúar 2005, var
talið að tíu til fimmtán einstakl-
ingar lægju undir grun. Nú er
ljóst að þessi tala hefur verið stór-
lega vanmetin og að mun fleiri
einstaklingar hafi réttarstöðu
sakbornings en áður var talið.
Aðspurður segir Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari, að alls
hafi 34 einstaklingar réttarstöðu
sakborninga í málinu. Helgi segir
jafnframt að hafa beri í huga
að það sé langt frá því að það sé
búið að ákveða að þeir verði allir
ákærðir og að það sé ekki saman-
sem merki þarna á milli þó það
sé kannski svo í hugum fólks.
Helgi segir að ákærur séu ekki
væntanlegar, „Þetta tekur tíma
því þetta er mjög umfangsmikið
mál og tafsamt eins og gefur að
skilja. Við fengum málið frá rík-
islögreglustjóra núna fyrir jólin
og þetta eru alls 27 möppur. Fyrst
af öllu verður að taka ákvörðun
um hvort gefin verði út ákæra eða
málin fellt niður. Það er verið að
fara yfir rannsóknargögn og taka
þessa ákvörðun“, segir Helgi.
Sá mikli tími sem fer í rannsókn
þessa máls vekur upp spurningar
um það hvaða áhrif það hefur á líf
sakborningana að bíða þetta lengi
eftir niðurstöðu. Blaðamaður bar
það undir þá Kristinn Björnsson,
fyrrverandi forstjóra Skeljungs,
og Þórólf Árnason, fyrrverandi
borgarstjóra og framkvæmda-
stjóra markaðssviðs hjá Esso,
Kristinn gat ekki rætt við blaða-
mann vegna anna en Þórólfur
sagðist aldrei um þetta hugsa
og því ekkert hafa um málið að
segja. svavar@frettabladid.is
34 með stöðu saka-
manna í olíumálinu
Öllum kröfum olíufélaganna þriggja hafnað í gær. Allt stefnir í að langur
tími líði áður en niðurstöður liggja fyrir í málinu. Sakborningar forðast
að tjá sig um áhrif málsins á einkalíf þeirra.
ÞRÖNGT MÁTTU SÁTTIR SITJA Það er ljóst að landsmenn þurfa að bíða lengi eftir því að vita lokaniðurstöðu olíumálsins.
18. desember 2001 Samkeppnisstofn-
un gerir húsleit hjá olíufélögunum.
1. mars 2002 Olíufélagið ákveður að
starfa með Samkeppnisstofnun.
17. júlí 2003 Fréttablaðið birtir ágrip úr
frumskýrslu Samkeppnisstofnunar.
21. ágúst 2003 Ríkissaksóknari fer
fram á að ríkislögreglustjóri afli full-
nægjandi gagna frá Samkeppnisstofn-
un til að unnt sé að athuga hvort hefja
þurfi opinbera rannsókn.
Október 2003 Hafin er opinber rann-
sókn hjá embætti ríkislögreglustjóra
á ætluðum brotum olíufélaganna,
félögunum, æðstu stjórnendum og
millistjórnendum.
26. nóvember 2003 Fjárlaganefnd
Alþingis leggur til aukafjárveitingu
vegna aukins umfangs starfa efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
28. október 2004 Samkeppnisráð
sektar olíufélögin um rúma 2,6 millj-
arða króna fyrir brot gegn samkeppn-
islögum.
1. nóvember 2004 Tölvupóstur fer
eins og eldur í sinu þar sem fólk er
hvatt til að kaupa ekki smásöluvarn-
ing af brotlegum olíufélögum, heldur
einskorða viðskipti sín við bensín.
29. janúar 2005 Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála gefur út úrskurð sinn
og lækkar sektir félaganna um rúman
milljarð, í 1,5 milljarða króna. Ker og
Olíuverslunin fá afslátt fyrir samstarf
við samkeppnisyfirvöld. Skeljungur fær
engan afslátt af sekt sinni.
17. nóvember 2005 Efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra sendir ríkissak-
sóknara niðurstöðu lögreglurannsóknar
á samráði olíufélaganna.
21. nóvember 2005 Ríkislögreglustjóri
sendir út tilkynningu um lok rannsókn-
arinnar og upplýsir að málið sé komið
til ríkissaksóknara.
31. janúar 2006 Samkeppniseftirlitið
hafnar öllum kröfum olíufélaganna
um að úrskurður Áfrýjunarnefndar
samkeppnismála verði ógiltur. Kröfum
félaganna um að sektir yrðu felldar
niður eða stórlækkaðar einnig hafnað.
ÞRÓUN OLÍUMÁLSINS 2001 TIL 2006
STÓRIÐJA „Húsvíkingar eru fjúk-
andi illir vegna ummæla umhverf-
isráðherra þess efnis að umræða
um álver á Norðurlandi verði að
bíða allt þetta ár eða þar til nið-
urstaða fæst í viðræðum Alcan og
Landsvirkjunar vegna stækkun-
ar álversins í Straumsvík,“ segir
Hreinn Hjartarson, stjórnarfor-
maður Þeistareykja. Hann segir
áform um gangsetningu álvers
á Norðurlandi á árunum 2011 til
2012 standa svo framarlega að
samningar náist um orkuverð.
„Ummæli ráðherra eru byggð á
misskilningi sem vonandi verða
leiðrétt,“ segir Hreinn.
Ummælin voru höfð eftir Sigríði
Önnu Þórðardóttur umhverfisráð-
herra í fréttum Útvarps á mánu-
daginn. Jafnframt var haft eftir
henni að ekki væri pláss fyrir
ný álver á Íslandi ef ráðist yrði í
stækkun álversins í Straumsvík
nema með auknum mengunar-
kvóta eða stórfelldum samdrætti
í mengun á öðrum sviðum.
Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra segir að Íslendingar
muni standa við alþjóðlegar skuld-
bindingar sínar þó að ráðist verði
í stækkun álversins í Straumsvík
á sama tíma og reist verði álver á
Norðurlandi. „Alcoa mun á endan-
um taka ákvörðun um hvort álver
rís á Norðurlandi og Alcoa mun
ekki bíða eftir að Alcan taki sína
ákvörðun,“ segir Valgerður. - kk
Umhverfisráðherra segir umræðu um álver á Norðurlandi þurfa að bíða:
Húsvíkingar reiðir ráðherra
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Í kvöld verða
kynntar á Húsavík áfanganiðurstöður í
staðarvalsathugunum vegna hugsanlegs
álvers á Norðurlandi og má vænta þess að
þar verði iðnaðarráðherra krafinn margvís-
legra svara.
KJARAMÁL Guðjón St. Marteinsson,
dómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur, hefur ákveðið að höfða mál
á hendur ríkinu vegna ákvörðun-
ar Alþingis að fella úrskurð kjara-
dóms um hækkanir á launakjörum
æðstu embættismanna úr gildi.
Fleiri íhuga það sama og bera
því meðal annars við að óeðlilegt
sé að Alþingi grípi með þessum
hætti fram fyrir hendur kjara-
dóms þar sem tilgangur hans sé
að úrskurða um laun sem þing-
menn Alþingis hafi ekki viljað
ákveða sjálfir.
Guðjón St. vildi ekki tjá sig við
Fréttablaðið þegar eftir því var
leitað. ■
Dómarar höfða mál:
Láta reyna á
rétt sinn
KJÖRKASSI
Telurðu að íslenska landsliðið í
handbolta vinni til verðlauna á
EM?
Já 46%
Nei 54%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú samkeppni á raforku-
markaði næga?
Segðu skoðun þína á Vísi.is