Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 8
1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND
UM ÆVI JOHNNY CASH
FRUMSÝND 3. FEBRÚAR
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
VIÐ BJÓÐUM Í BÍÓ
!
SENDU SMS SKEY
TIÐ JA VJC Á
NÚMERIÐ 1900 O
G ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ MIÐA FYRI
R TVO.
9. HVER VINNUR.
VINNINGAR ERU:
BÍÓMIÐAR FYRIR
TVO, GEISLADISK
AR,
WALK THE LINE B
OLIR, DVD MYNDI
R
OG MARGT FLEIR
A
TILNEFND TIL 5ÓSKARSVERÐLAUNAM.A. BESTI LEIKARI OG BESTA LEIKKONA.
VANN
GOLDEN GLOBE SEMBESTA MYND ÁRSINS, BESTI LEIKARI OG BESTA LEIKKONA.
SJÁÐU
MYNDINA OG
HLUSTAÐU
Á TÓNLISTINA!
DANMÖRK Ritstjórnarskrifstof-
um Jótlandspóstsins í Árósum og
Kaupmannahöfn var lokað síð-
degis í gær vegna sprengjuhótana
sem lögregla taldi ástæðu til að
taka alvarlega þar til ráðrúm hefði
gefist til að rannsaka þær nánar.
Vart er um annað rætt í Dan-
mörku þessa dagana en þær alvar-
legu afleiðingar sem deilurnar um
birtingu teikninga af Múhameð
spámanni í Jótlandspóstinum síð-
astliðið haust hafa haft í för með
sér.
Reiði vegna málsins hélt í
gær áfram að breiðast út um
arabaheiminn. Innanríkisráð-
herrar sautján arabaríkja hvöttu
á fundi í Túnis í gær stjórnvöld
í Danmörku til að refsa þeim
sem ábyrgð bæru á birtingu
Múhameðsteikninganna.
Trúarleiðtogar múslima í Írak
hvöttu þarlend stjórnvöld til að
rjúfa stjórnmálasamband við Dan-
mörku og hryðjuverkamenn gáfu
út „fatwa“ – trúarlega fordæmingu
– á hendur dönsku herdeildinni
sem þjónar í Írak. Danska blaðið
Politiken hefur eftir varnarmála-
ráðherranum Sören Gade að full
ástæða sé til að taka hótunina
alvarlega. Fatwa getur þýtt allt frá
sniðgöngu til líflátshótana (eins og
Salman Rushdie varð fyrir af hálfu
klerkanna í Íran).
Samtök múslima í Danmörku,
sem áttu frumkvæði að því að
stjórnvöld í múslimaríkjum blönd-
uðu sér í málið, lýstu því yfir í
gær að þau tækju afsökunarbeiðni
ritstjórnar Jótlandspóstsins gilda.
Blaðið birti afsökunarbeiðnina á
mánudag og ritstjórinn sendi frá
sér opið bréf á arabísku þar sem
hann útskýrir málið og biður þá
afsökunar sem töldu blaðið hafa
að sér vegið með birtingu teikn-
inganna. Á mánudag endurtók
Anders Fogh Rasmussen að það
væri ekki í verkahring ríkis-
stjórnarinnar að biðjast afsök-
unar fyrir hönd dagblaðs, en tók
fram að hann „hefði sjálfur aldrei
birt myndir af Múhameð, Jesú
eða hvaða trúarlegri persónu sem
er, með hætti sem væri til þess
fallinn að særa annað fólk“.
Talsmaður Íslamska trúar-
sambandsins í Danmörku, Kasem
Ahmad, tjáði danska útvarpinu í
gær að samtökin „þökkuðu með
skýrum og afdráttarlausum hætti
forsætisráðherranum og Jótlands-
póstinum fyrir viðbrögð þeirra“.
Óljóst var þó í gær hvort við-
urkenning samtaka múslima í
Danmörku á afsökunarbeiðninni
breytti nokkru um atburðarásina
í múslimaríkjunum. Talsmenn
danska mjólkurvöruframleiðand-
ans Arla Foods, sem varð mjög
fyrir barðinu á sniðgönguákall-
inu gegn dönskum vörum í Sádi-
Arabíu, sögðust bíða þess með
óþreyju hvort ekki færi að rætast
úr ástandinu úr þessu.
audunn@frettabladid.is
MÓTMÆLT VIÐ DÖNSK SENDIRÁÐ Mótmælt var við sendiráð Danmerkur í höfuðborgum
múslimaríkja í gær, hér í Damaskus í Sýrlandi. Mótmælendurnir kröfðust heimslaga sem
gerðu það refsivert að svívirða það sem múslimum væri heilagt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sprengjuhótun hjá
Jótlandspóstinum
Reiðileg viðbrögð vegna Múhameðsteikninganna í Jótlandspóstinum ætla
engan enda að taka. Litlu virðist breyta þótt samtök danskra múslima tækju
afsökunarbeiðni gilda. Ritstjórnin var rýmd vegna sprengjuhótunar í gær.
DÓMSMÁL Fíkniefnamálum á Akur-
eyri hefur fjölgað um 15 til 20
prósent á milli ára undanfarin ár.
Í fyrra voru alls 179 einstakling-
ar ákærðir fyrir fíknefnabrot í
umdæmi lögreglustjórans á Akur-
eyri. Lögreglusátt var gerð við
29 einstaklinga til viðbótar og því
hlutu 208 manns refsingu fyrir brot
á fíkniefnalöggjöfinni árið 2005.
Þetta kom fram í fyrirlestri
sem Eyþór Þorbergsson, lögfræð-
ingur hjá sýslumannsembættinu
á Akureyri, flutti á lögfræðitorgi
Háskólans á Akureyri í gær.
Flestir hinna ákærðu voru
dæmdir til greiðslu sektar eða 81.
Í 31 máli var niðurstaðan skilorðs-
bundið fangelsi og 22 einstaklingar
hlutu óskilorðsbundna fangavist. Í
11 tilvikum var ekki gerð sérstök
refsing og 10 mál bíða enn dóms.
Eyþór segir að mismunurinn
í fjölda ákæra og dóma liggi í að
mál eru oft sameinuð eftir þing-
festingu. „Fíkniefnaheimurinn á
Akureyri fer harðnandi, líkt og í
Reykjavík, og fátt í farvatninu sem
bendir til breytinga þar á,“ segir
Eyþór. - kk
Alls voru 179 ákærðir fyrir fíkniefnabrot á Akureyri í fyrra:
Fíkniefnamálum fjölgar
EYÞÓR ÞORBERGSSON Lögfræðingur
sýslumannsembættisins á Akureyri segir
fíkniefnaheimana norðan og sunnan heiða
fara harðnandi. FRÉTTABLAÐIÐ/KK