Fréttablaðið - 01.02.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 01.02.2006, Síða 10
10 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR ÍRAK Annar æðsti maður hryðju- verkasamtakanna al Kaída, Ayman Al-Zawahiri, kallar George Bush, forseta Bandaríkjanna, slátrara og aumingja í nýju myndbandi sem sýnt var á sjónvarpsstöðinni Al Jazeera á mánudag. Þetta er í fyrsta sinn sem mynd- ir birtast af Zawahiri opinberlega síðan Bandaríkjamenn reyndu að granda honum með flugskeyti fyrr í mánuðinum í litlu þorpi í Pakistan. Hann ber skýr skilaboð til Bush í myndbandinu. Kallar hann forsetann slátrara og segir hann lygara þegar hann segir að Íraksstríðið gangi vel. Endar hann skilaboðin á hótunum. „Þú hefur fært ógæfu og hamfarir yfir þjóð þína og þær munu verða enn fleiri í framtíðinni.“ ZAWAHIRI Segir bandarískum mæðrum að komi sonur þeirra heim frá Írak í líkkistu skuli þær minnast Bush sem virti að vettugi boð al-Kaída um vopnahlé fyrr í mánuðinum. Sömu skilaboð fá mæður í Bretlandi. AFP/NORDICPHOTOS.AFP Annar æðsti maður al-Kaída sendir skilaboð: Kallar George Bush slátrara og lygara MÆÐINNI KASTAÐ Á þriðja degi kínverska nýársins hvílir þessi Kínverji lúin bein við auglýsingaveggspjald með mynd úr kínverskri óperu í Peking í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PRÓFKJÖR Stjórn Samfylkingarinn- ar í Ísafjarðarbæ hefur samþykkt í samræmi við niðurstöðu flokks- vals að tilnefna fjóra fulltrúa í sameiginlegt prófkjör þriggja flokka undir merkjum Í-listans, Ísafjarðabæ. Fulltrúar flokksins á listan- um verða Arna Lára Jónsdóttir verkefnisstjóri, Björn Davíðsson þróunarstjóri Snerpu ehf. og vara- bæjarfulltrúi, Kolbrún Sverris- dóttir verkakona og fyrrum bæj- arfulltrúi og Sigurður Pétursson sagnfræðingur. - mh Prófkjör Í-listans á Ísafirði: Samfylking til- nefnir fjóra LITHÁEN, AP Þótt Litháar taki ísdans mjög alvarlega, létu landa- mæraverðir í Litháen ekki gabb- ast af afar útsmognum smyglara um helgina. Maðurinn hafði íklæðst hvít- um kímónó og dansaði yfir Nem- unas-ána (Memel) með sleða í eft- irdragi. Þegar landamæraverðir tóku manninn höndum, kom í ljós að hann hafði dansað alla leið frá Kaliníngrad með 10.000 ólöglegar sígarettur faldar í sleðanum. Félagi hans, sem einnig var á skautum þótt ekki væri hann íklæddur kímónó, var einnig hand- tekinn og sígaretturnar gerðar upptækar. Félagarnir reyndu að komast undan á flótta, en festust í snjósköflum á frosinni ánni. Kaliníngrad-hérað er rússnesk hólmlenda innikróuð af Evrópu- sambandslöndunum Litháen og Póllandi. Þar er mikil fátækt og margir íbúanna reyna að bjarga sér með smygli yfir landamærin. Fram til ársins 1945 hét Kalin- íngrad Königsberg og var hér- aðshöfuðborg þýska héraðsins Austur-Prússlands. - smk Útsmognir smyglarar handteknir í Litháen: Reyndu að blekkja tollverði með ísdansi LANDAMÆRIN Margir íbúar Kaliníngrad reyna að bjarga sér með smygli. Sjórinn iðaði af hval Flugmenn Sýnar, flugvél Landhelgisgæslunnar, komu auga á mikla hvalamergð við mynni Vopnafjarðar í fyrradag. Það þykir vísbending um að loðna sé á ferð en rannsóknarskipið, Árni Friðriksson, var á þessum slóðum í gær við loðnuleit. LANDHELGISGÆSLA LÍKNARMÁL Forráðamenn A. Karls- son komu færandi hendi til MND félagsins, félags fólks með hreyfi- taugahrörnun, á dögunum þegar þeir færðu þeim 250.000 krónur. Gjöf A. Karlsson var síðan færð Landspítala-háskólasjúkrahúsi í tilefni opnunar nýrrar dagdeildar á taugalækningadeild. MND-félagið, MG-félagið, Parkinsonsamtökin og Heilaheill, færðu hinni nýju deild búnað að virði 1.300.000 króna. Meðal þess sem gefið var er súrefnismettun- armælir, blóðþrýstingsmælir og hitamælir. Einnig voru deildinni færðar tvær vökvadælur og kaffi- stöð með tveimur hitabrúsum. - shá A. Karlsson: MND-félagið fékk góða gjöf FERÐAMÁL Samkvæmt mati Econ- omist Intelligence Unit (EIU) telst Reykjavík nú þriðja dýrasta ferðamannaborg heims en hún mældist áttunda dýrasta borgin fyrir tveimur árum. Magnús Oddsson ferðamála- stjóri segir styrk evrópska gjald- miðla gagnvart bandaríkjadal vega þungt þar sem evrópskar borgir eru í átta af tíu efstu sæt- unum. „Allar höfuðborgir Norð- urlandanna fyrir utan Stokkhólm eru á þessum lista og það segir mikið um það kostnaðarumhverfi sem þekkist á þessu norður-evr- ópska svæði. Við vitum því að við þurfum að haga kynningarmálum okkar eftir þessu.“ Magnús leggur einnig á það áherslu að það sé ekki verið að taka afstöðu til þess hvernig ferðamönnum líkar hér á landi. „Það er ekki verið að kanna hug ferðamanna til staðanna í þessari könnun heldur einungis verðið. Hingað til lands hafa verið að koma fleiri ferðamenn á milli ára heldur en í mörgum öðrum lönd- um og það hlýtur að vera vegna þess að neytandinn fái mikið út úr því að ferðast hingað.“ Könnun EIU er gerð annað hvert ár og er þar tekinn saman dvalarkostnaður ferðamanna í hverri borg fyrir sig. Tókýó hefur verið í efsta listans síðustu fjórtán ár en Ósló hefur nú kom- ist upp fyrir Tókýó en hún hefur verið ofarlega á listunum í síðustu verðkönnunum EIU. - mh Ósló telst nú dýrasta borg í heimi fyrir ferðamenn: Reykjavík þriðja dýrasta borgin FERÐAMENN VIÐ SÓLFARIÐ Erlendum ferðamönnum hér á landi hefur fjölgað mikið á undanförnum áratug. Ferðamennirnir láta hátt verðlag ekki á sig fá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÝRUSTU BORGIR HEIMS 1. Ósló, Noregur 2. Tókýó, Japan 3. Reykjavík, Ísland 4. Ósaka Kóbe, Japan 5. París, Frakkland 6. Kaupmannahöfn, Danmörk 7. London, England 8. Zürich, Sviss 9. Genf, Sviss 10. Helsinki, Finnland ÍRAN, AP Íranar hóta að hefja kjarnorkuvinnslu af fullum krafti á ný og banna óvæntar eftirlitsheimsóknir Sameinuðu þjóðanna í verksmiðjurnar verði kjarnorkumálum þeirra vísað til Öryggisráðs SÞ. Í kjölfar árangurslítils fund- ar með fulltrúum Írans, Bret- lands, Kína, Frakklands, Bandaríkjanna og Rússlands á mánudagskvöld var ákveðið að biðja Alþjóðakjarnorkumála- stofnunina, IAEA, um að vísa málinu til ráðsins. Ekki var ákveðið hvort refsiaðgerðum verður beitt, en ráðið mun líklega taka málið fyrir í mars. Íranar halda því hins vegar fram að fundurinn á mánudags- kvöld hafi skilað miklum árangri og vilja halda viðræðum áfram. Íran hefur leyft IAEA að koma í skyndieftirlitsferðir, en nýverið setti þingið lög sem banna þessar eftirlitsferðir komi til afskipta öryggisráðsins. Segja ráðamenn í Teheran að kjarnorkuáætl- unin sé eingöngu ætluð til raf- orkuframleiðslu, en óstaðfestar fregnir herma að stjórnvöld þar í landi hafi afhent IAEA uppskrift að kjarnaoddi sem á að hafa verið fengin á svörtum markaði. Íransstjórn hélt kjarnorku- rannsóknum sínum leynilegum í 18 ár og greindi ekki frá þeim fyrr en árið 2002. - smk Íranar gramir yfir erlendum afskiptum af kjarnorkuáætlun: Vilja hefja kjarnorkuvinnslu BEÐIST FYRIR Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, biðst fyrir við gröf Ayatollah Khomeini í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1.550.000,-* ����������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������ Nýr, fallegri og miklu betri Opel. ���������������� ����������������� *Ódýrasta leiðin til að líta vel út ����������������� �������������������������������������������� ��������������������� �������������������������� Beinskiptur - 1.6 lítra vél – Mánaðargreiðsla 18.583,-** ��������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������ �������������������������������� ������������������������������������� ����������� ����������������

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.