Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
1. febrúar, 32. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.08 13.41 17.15
Akureyri 10.06 13.26 16.47
Sonja Stefánsdóttir er að læra nudd í
Nuddskóla Íslands. Hún segist vera í
frábærum hópi í skólanum.
Sonja er búin með bóklega nuddnámið og
klárar verklega námið í vor. Hún segir að
bóklega námið taki þrjú ár fyrir þá sem
hafa aðeins lokið grunnskóla og sé kennt
í Fjölbrautarskólanum í Ármúla. „Ég var
búin með stúdentspróf þegar ég byrjaði
svo ég tók bara viðbótarfögin í fjarnámi
og var í eitt og hálft ár að því,“ segir
Sonja. Hún segir að verklega námið taki
síðan eitt ár og eftir það þurfi nemendur
að vinna ákveðinn fjölda tíma áður en þeir
útskrifast. „Það tekur að minnsta kosti ár í
viðbót því það þarf að ljúka þúsund tímum
til þess að geta útskrifast.“
Sonja segir að nemendur geti unnið
heima hjá sér á meðan þeir safna tímum
ef þeir eru með aðstöðu til þess og svo
geti þeir fengið að nota aðstöðuna í
skólanum. „Margir fara að vinna á stofum
og það gengur venjulega best að safna
tímum þannig. Þegar ég klára verklega
námið í vor fer ég væntanlega að vinna á
snyrtistofunni Hrund í Kópavogi og safna
tímum þar,“ segir Sonja.
Sonja segir að þeir sem vilji geti
fengið ódýra nuddtíma hjá nemendum
í Nuddskóla Íslands. „Það er hægt að
finna nöfn og símanúmer allra nemenda
á heimasíðu Nuddskólans og svo getur
fólk bara hringt í okkur og pantað tíma.“
Hún segir að hópurinn sem hún er með í
skólanum sé alveg frábær. „Við erum að
upplifa svo margt skemmtilegt saman og
erum búin að eignast vini fyrir lífstíð í
skólanum.“
Sonja er mjög ánægð með námið og
segir að nuddið sé gefandi. „Mér finnst
gaman að geta hjálpað fólki. Þetta snýst
ekki bara um að fá fólk inn og senda það
svo út aftur heldur að fást við vandamál
þess og klára dæmið.“ emilia@frettabladid.is
Gefandi að nudda fólk
Sonja Stefánsdóttir lýkur verklegu námi í nuddi í vor.
Rýmingarsala
Verslunin hættir
Videospólan
Holtsgötu 1. S. 551 6969
Opið 17 - 23
Videospólur frá 100 kr.um 8000 titlar
Allir
DV
D di
skar
um
100
0 tit
lar
500
kr.
Nýir ferðabæklingar hinna
dönsku ferðaskrifstofa Apollo og
Kuoni má nálgast í útibúi þeirra
hér á landi en það er staðsett í
Hlíðasmára í Kópavogi.
Byrjað er að taka við framboð-
um fyrir lausar stöður í stjórn
ferðaklúbbsins 4x4 en kosið
verður um lausar stöðar á aðal-
fundi félagsins í maí næstkom-
andi. Sæti munu losna í stjórn
og öllum nefndum.
Bílaleigubíla er hægt að fá á
veglegu tilboði hjá Hertz bílaleig-
unni. Um er að ræða svokallað
helgar- og einnig flugvallartilboð.
Má þar fá ýmsa bíla á hagstæð-
um kjörum.
Doktorsvörn verður í hátíðarsal
Háskóla Íslands á föstudaginn
klukkan 13. Þar mun Þórunn
Ósk Þorgeirsdóttir verja ritgerð
sína Mónóglýseríð til meðferðar
á húð- og slímhúðarsýkingum:
þróun lyfjaforma. Allir eru
velkomnir.
ALLT HITT
[NÁM, FERÐIR, BÍLAR OG
BÖRN]
SCANIA R500
KRANABÍLL
Einn sá glæsilegasti á
landinu að innan sem
utan
BÍLAR 5
LOGI
TÓMASSON
Hress og skemmti-
legur fimm ára
strákur segir frá.
BÖRN 2