Fréttablaðið - 01.02.2006, Page 20

Fréttablaðið - 01.02.2006, Page 20
[ ] Hamraborg 7 Útsölulok um helgina enn meiri verðlækkun Logi Tómasson stefnir að því að verða flugmaður, slökkvi- liðsmaður, þyrlumaður eða löggumaður. Logi er fimm ára strákur á leik- skólanum Skógarborg og finnst skemmtilegast úti. „Mér finnst ekki gaman að púsla en stundum þarf ég að gera það því fóstrurn- ar ráða. Stundum megum við fara í pleymó. Það er ágætt,“ segir hann og bætir við „en Hjalta vini mínum finnst mest gaman að segulkubba.“ Þar sem ein amma er nýbúin að vera í heimsókn á Skógarborg er Logi spurður hvað hún hafi sagt börnunum. „Hún var að segja okkur hvernig var í gamla daga, þá lék hún sér með bein og kjálka og horn, líka hrútshorn.“ Sjálfur hefur hann aldrei leikið sér með svoleiðis en fellst á að kannski væri gaman að prófa að fara inn í gamla tímann í einn dag. Samt er meira gaman að hugsa um framtíðina en Logi er ekki alveg búinn að ákveða hvað hann langar að verða. „Ég ætla að verða flugvélamaður, slökkviliðsmaður, þyrlumaður eða lögga. Svo langar mig líka að spila á hljóðfæri, helst túbu sem er svona bogin niður. Ég vil ekki læra á klarinett og ekki saxófón, bara túbu. Það er líka til óbó, það er svolítið falskt, eins og gömul kerling sé að syngja. Ég kann að spila eitt lag á píanó, eða eiginlega bara hálft. Það er Gamli Nói.“ Logi á þrjú systkini. „Ég á tvo bræður sem eru tvíburar og alveg jafngamlir. Þeir eru bara eins árs og svo á ég stóra systur sem er 10 ára,“ segir hann og bætir við grallaralegur, „hún stríðir mér stundum og ég stríði henni“. Þegar Logi er spurður hvað honum þyki allra skemmtileg- ast að gera stendur ekki á svari: „Spila fótbolta inni!“ En má það? „Nei... eða jú ...ef ég sparka upp stigann!“ Skemmtilegast af öllu að spila fótbolta inni Loga finnst skemmtilegra að leika úti á leikskólanum en vera inni að púsla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Börn hafa gaman af því að tala. Það er ágætt að fara yfir daginn með börnunum á kvöldin og leyfa þeim að segja frá því sem þau upplifðu. Þann 12. febrúar verður Ronja Ræn- ingjadóttir frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins. Eins og flestir vita er þessi vinsæla barnasaga eftir Astrid Lindgren en Þorleifur Hauksson þýðir hana. Sigrún Edda Björnsdóttir leikstýrir verkinu en hún sjálf lék Ronju í uppsetningu Borgarleikhússins fyrir 12 árum síðan. Arftaki hennar er Arnbjörg Hlíf Valsdóttir en Friðrik Friðriksson verður í hlutverki Birkis Borkasonar. Meðal annarra leikara eru Þórhallur Sigurðsson og Sóley Elíasdóttir sem foreldrar Ronju og Eggert Þorleifsson sem öldungurinn Skalla-Pétur. Auk þess verða fimm börn í sýningunni ásamt ýmsum rassálfum og öðrum furðuverum. Af rassálfum og fleiri furðuverum BARNASAGAN RONJA RÆNINGJA- DÓTTIR KEMUR AFTUR Á SVIÐ Í BORGARLEIKHÚSINU. leikhús } Leikstjórinn Sigrún Edda lék Ronju Ræn- ingjadóttur fyrir tólf árum síðan. Mikilvægt er að foreldrar setji börnum sínum mörk hvað varðar tölvunotkun og leyfi ekki tölvur í herbergjum þeirra. Tölvunotkun barna er áhyggju- efni margra foreldra. Þetta kom fram í erindinu ,,Tölvufíkn“ sem sálfræðingurinn Björn Harðar- son hélt á fræðslufundi um áhrif tölvunotkunar á ungt fólk. Strákar eru oftar í tölvuleikj- um en stelpur oftar á spjallrás- um og sagði Björn algengara að strákar ánetjuðust tölvuleikjum. Leikir sem spilaðir eru á netinu geta verið sérlega hættulegir. Þar eru krakkar oftar en ekki að spila við aðra krakka í gegnum netið og eiga erfitt með að ákveða að hætta. Þunglyndi, lágt sjálfsmat og kvíði eru meðal þess sem of mikil tölvunotkun getur leitt af sér. Björn sagði bestu leiðina út úr vandanum að vinna með foreldrum. Þeir þyrftu að setja börnum sínum tímamörk á tölvu- notkun og koma tölvunni út úr barnaherberginu. (Upplýsingar fengnar af lyd- heilsustod.is) Alvarlegir fylgifiskar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.