Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 22
[ ]
“Ekki eingöngu les ég hraðar. Ég les með
...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“Ég hef margfaldað lestrarhraða minn.”
Monika Freysteinsdóttir, 22 ára Háskólanemi.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, áhugavert, krefjandi,
skemmtilegt, mjög gott, þægilegt, lipurt, skipulagning, einbeiting, jákvæðni,
mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
...næsta námskeið 15. febrúar
Námsflokkar Hafnafjarðar – hraðlestrarnámskeið – 16. febrúar
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Heimanám er mikilvægur hluti alls náms. Nú er janúar að enda og ástæða
til þess að fara að taka heimanámið alvarlega aftur eftir jólafrí.
Í vetur eru kennd námskeið í
samkynhneigðum fræðum á
vegum námsbrautar í kynja-
fræðum. Samhliða námskeið-
inu verða fluttir fyrirlestrar í
Odda, Háskóla Íslands, sem
eru opnir öllum.
Á vegum námsbrautar í kynja-
fræðum er kennt inngangs-
námskeið þar sem varpað er
ljósi á sögu samkynhneigðra á
Íslandi. Samhliða þeim kúrsi
er fyrirlestraröðin Kynhneigð
– menning – saga.
Þann 27. janúar mun Halldór
Guðmundsson ræða um hug-
leiðingar Halldórs Laxness um
kynhneigð á þriðja áratugnum.
Föstudaginn 10. febrúar ræðir
Þorgerður H. Þorvaldsdóttir um
samkynhneigð og refsilöggjöf
árin 1869 til 1992. Einnig verða
fyrirlestrar 24. febrúar, 10. mars
og 7. apríl en þann 24. mars mun
Anna Einarsdóttir fjalla um stað-
festa samvist samkynhneigðra.
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum
og hefjast klukkan tólf. Að þeim
loknum gefst áheyrendum kostur
á að bera fram fyrirspurnir og
taka þátt í stuttum umræðum. ■
Kynhneigð, menning og saga
Í Odda verða haldnir fyrirlestrar um stöðu
og sögu samkynhneigðra á Íslandi.
Gerður Kristjánsdóttir ætlar
að bjóða upp á prjónanám-
skeið heima hjá sér og byrjar í
næstu viku.
„Nemendur koma með garnið og
prjónana sjálfir því það þurfa þeir
að eiga. Ég sé fyrir mér að þeir
geti líka komið bæði með sýnis-
horn og blöð sem þeir vilja fara
eftir og ef þeir hafa einhverjar
hugmyndir sjálfir sem þeir vilja
hrinda í framkvæmd þá er ég til-
búin að hjálpa þeim við það,“ segir
Gerður Kristjánsdóttir sem er að
setja upp prjónanámskeið þar
sem hún kennir bæði byrjendum
og lengra komnum. Hún leiðbeinir
þeim í gegnum alla örðugleika og
vill ekki skilja við þá fyrr en þeir
eru búnir að læra að ganga frá
flíkinni. En hvernig verður fyrir-
komulagið og hversu langan tíma
heldur hún að það taki að koma
hverjum og einum inn í prjóna-
skapinn?
„Ég miða við að vera með sex
nemendur í einu og að hver og
einn verði hjá mér í fimm kvöld.
Tímarnir verða frá 20-23 á þriðju-
dögum og fimmtudögum og byrja
næsta þriðjudag.“
- Hjá þér segirðu. Þú ætlar að
vera með þetta heima hjá þér í
Jörfalindinni? „Já, ég legg bara
stofuna undir námskeiðið og þar
ættum við að geta haft það huggu-
legt,“ segir Gerður brosandi og
kemur símanúmerinu á framfæri,
það er 860 8858. Hún tekur líka
fram að hún prjóni eftir pöntun.
Sjálf hefur Gerður iðkað prjóna-
skap lengi að eigin sögn. „Ég var
svo heppin að alast upp við margs
konar hannyrðir þannig að ég til-
einkaði mér fljótt ýmsar aðferðir.
Ég prjóna peysur bæði á sjálfa
mig og aðra, bæði með útprjóni og
bekkjamynstri – lopapeysur þess
vegna. Undanfarið hef ég mest
verið í barnafötunum þar sem ég
á nú barnabarn. Svo hef ég fengist
við dúkaprjón líka og get veitt til-
sögn í því ef áhugi er fyrir hendi.
Ég bind mig ekki við neitt sérstakt
heldur vona að ég geti orðið þeim
að liði sem vilja auka færni sína í
prjónaskap.“
gun@frettabladid.is
Kennir byrjendum og
lengra komnum að prjóna
Gerður nýtur þess að prjóna fallega kjóla á ömmubarnið.
Gerður Kristjánsdóttir með prjónana sína. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI