Fréttablaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 25
Ekki skoðuð | Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hefur komist
að þeirri niðurstöðu að FL Group
hafi ekki verið skylt að tilkynna
um kaupin á Sterling hér á landi.
Sagan endalausa | Old Mutual
hefur greint frá því að félagið hafi
eignast um 72 prósent atkvæða
og hluta í Skandia og ætli enn að
framlengja yfirtökutilboðið.
Þriðjungsaukning | Svo virðist
sem fjárfesting hafi aukist um
tæpan þriðjung frá fyrra ári. Svo
hröð aukning hefur ekki átt sér
stað síðan 1998.
Fjórði stærsti | Tryggingamið-
stöðin er orðin fjórði stærsti
hluthafinn í sænska fjármálafyr-
irtækinu Invik og er hlutur fyrir-
tækisins 4,5 prósent.
Tólfta hækkunin | 0,25 prósenta
stýrivaxtahækkun Seðlabankans á
fimmtudag var tólfta vaxtahækk-
un bankans frá því í maí árið
2004.
Yfir spám | Tæplega 50 millj-
arða hagnaður varð af starfsemi
KB banka fyrir árið 2005 og var
síðasti fjórðungur sá besti í sögu
bankans.
Methagnaður | Landsbanki
Íslands skilaði methagnaði upp á
25 milljarða króna fyrir árið 2005
sem var í samræmi við spár grein-
ingaraðila.
Novator kaupir | Fjárfesting-
afélag Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, hefur keypt hlut í
næststærsta fjarskiptafyrirtæki
Breta, Cable & Wireless.
H&M hagnast | Tískuverslunar-
keðjan H&M hagnaðist um 110
milljarða króna á árinu 2005 sem
er 23 prósenta aukning frá fyrra
ári.
Icelandair
Halda í horfinu eftir metár
12-13 Fyrirkomulag gengismála
Krónan betri
en evran
22
General Motors
Þjóðartákn
í vanda
10
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 1. febrúar 2006 – 4. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
KB banki er kominn í hóp 25 stærstu skráðra fyrir-
tækja á Norðurlöndum og er það fyrirtæki sem vex
hvað hraðast á lista hinna stærstu. Um áramótin
var virði bankans um 490 milljarðar króna en í jan-
úar hækkaði gengi bankans um rúman fimmtung
sem svarar til 110 milljarða króna.
Þessi mikla hækkun á árinu þýðir að bankinn
hefur skotist fram úr þekktum skandinavískum
félögum og er orðinn stærri en Electrolux, Orkla og
Scania. Fyrir rétt rúmu ári var virði KB banka um
320 milljarðar króna og hefur því þannig stækkað
um 90 prósent.
Á listanum yfir tíu stærstu fyrirtækin eru þrjú
sænsk fyrirtæki, þrjú dönsk, tvö norsk, eitt finnskt
og eitt fyrirtæki sem skilgreinir sig sem skandin-
avískt.
Langefst trónir finnski farsímaframleiðandinn
Nokia en fyrirtækið er metið á rúma fimm þús-
und milljarða króna og er þar með átta sinnum
verðmætari en KB banki. Nánast jöfn í öðru og
þriðja sæti eru norski olíuframleiðandinn Statoil og
sænski farsímafyrirtækið Ericsson, sem eru metin
á um 3.500 milljarða króna.
Danska fyrirtækjasamsteypan A.P. Møller-
Mærsk, sem seldi Maersk Air til Sterling á síðasta
ári, er fjórða stærsta félagið en nokkuð á eftir koma
orkufyrirtækið Norsk Hydro, tískuverslunarkeðjan
Hennetz & Mauritz (H&M) og Nordea Bank.
Athygli vekur að Nordea, sem er stærsti bankinn
á Norðurlöndum, vermir aðeins sjöunda sæti list-
ans en virði bankans er um 1.800 milljarðar króna.
Nú vantar um tólf prósenta hækkun á markaðsvirði
KB banka til að hann nái sjöunda sætinu af Sampo
yfir stærstu fjármálafyrirtæki Norðurlanda.
Inn á listann vantar risafyrirtæki sem eru ekki á
hlutabréfamarkaði eins og til dæmis IKEA.
KB banki í hópi 25
stærstu á Norðurlöndum
Einn áttundi af markaðsvirði Nokia, stærsta fyrirtækis
Norðurlanda. Stekkur upp um fimm sæti frá áramótum.
S T Æ R S T U F Y R I R T Æ K I N O R Ð U R L A N D A N N A
Land Markaðsvirði
1 Nokia Finnland 5.034
2 Statoil Noregur 3.514
3 Ericsson Svíþjóð 3.414
4 A.P Möller-Maersk Danmörk 2.621
5 Norsk Hydro Noregur 1.833
6 Hennes & Mauritz Svíþjóð 1.808
7 Nordea Skandinavía 1.799
8 Teliasonera Svíþjóð 1.573
9 Danske bank Danmörk 1.400
10 Novo Nordisk Danmörk 1.224
11 Volvo Svíþjóð 1.222
20 TDC Danmörk 792
23 Sampo Finnland 671
25 KB banki Ísland 594
30 Electrolux Svíþjóð 498
Lítillega hefur dregið úr vænt-
ingum neytenda til efnahags-
ástandsins, samkvæmt nýútkom-
inni væntingavísitölu Gallup.
Vísitalan lækkaði lítillega í jan-
úar frá fyrri mánuði og mælist
nú 126,5 stig.
Væntingar eru engu að síður
í sögulegu hámarki, segir í
Morgunkornum Íslandsbanka,
og er vísitalan langt yfir hundr-
að stigum sem táknar að mun
fleiri svarendur horfa jákvæðir
til framtíðar.
Tæp fimmtíu prósent svarenda
töldu efnahagsástand í landinu
gott en tæplega fjórtán prósent
sögðu það slæmt. Tuttugu pró-
sent þátttakenda töldu að efna-
hagsástandið yrði verra eftir
hálft ár, en fjórtán prósent að
það ætti eftir að batna. -jsk
Dregur úr
væntingum
VERSLAÐ Í MATINN Væntingar neytenda
minnkuðu lítillega í janúar frá fyrri mán-
uði en standa engu að síður í sögulegu
hámarki.
Íslendingar keyptu erlend verð-
bréf fyrir 123,5 milljarða króna
á síðasta ári og hafa aldrei keypt
meira. Erlend verðbréfakaup
námu tæpum 76 milljörðum
árið 2004. Lífeyrissjóðirnir eru
stærstir einstakra fjárfesta en
eign þeirra hafði vaxið um 68
milljarða króna í lok nóvember
og nam þá tæplega fjórðungi
eignasafns þeirra.
Fram kemur í Morgunkornum
Íslandsbanka að í ljósi hás geng-
is krónunnar megi búast við að
fjárfestingar innlendra aðila á
erlendum verðbréfum verði
áfram töluverðar en að úr dragi
með lækkandi gengi krónunnar.
-jsk
Erlend kaup
aldrei meiri
Gott til síðasta dropa
Uppgjör Íslandsbanka var nokkuð
undir áætlunum greiningadeilda
KB banka og Landsbankans og
lækkuðu hlutabréf bankans í
verði í gær. Hagnaður bankans
á fjórða ársfjórðungi var 3.741
milljónir króna sem er 42 pró-
sent undir meðaltalsspánni.
Það kemur á óvart að gengis-
tap varð af fjáramálastarfsemi á
fjórða ársfjórðungi sem skýrir
frávikið á milli hagnaðar bank-
ans og spár markaðarins. Að
öðru leyti var afkoman í takt
við væntingar. Fyrir árið í heild
hagnaðist Íslandsbanki um 19,1
milljarð króna en til samanburð-
ar nam hagnaður bankans árið
2004 tæpum tólf milljörðum
króna. Það er um 60 prósenta
aukning.
Hreinar vaxtatekjur voru um
24 milljarðar króna og hækk-
uðu um 83 prósent á milli ára.
Þóknanatekjur námu 8,8 millj-
örðum sem er þriðjungshækk-
un en gengishagnaður var um
3,6 og lækkar um helming.
Kostnaðarhlutfall af tekjum
lækkar úr 48 prósentum árið
2004 í 38 prósent á síðasta ári.
Heildargjöld ársins voru um
15,7 milljarðar króna sem er níu
prósenta aukning.
Arðsemi eigin fjár var 30 pró-
sent en 44 prósent árið 2004.
Heildareignir samstæðunnar
námu 1.472 milljörðum í árslok
2005 og höfðu aukist um 795
milljarða eða 117 prósent frá
fyrra ári.
- eþa
Íslandsbanki undir væntingum
Óvænt gengistap á fjórða ársfjórðungi. Hagnaður tæpum þremur
milljörðum minni en greiningardeildir bankanna spáðu.