Fréttablaðið - 01.02.2006, Qupperneq 26
MARKAÐURINN 1. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá áramótum
Actavis Group 1% 9%
Atorka Group -2% -3%
Bakkavör Group 3% 9%
Dagsbrún -3% -6%
Flaga Group 0% -12%
FL Group 7% 19%
Íslandsbanki 3% 15%
KB banki 8% 20%
Kögun -1% 4%
Landsbankinn 2% 9%
Marel 0% 8%
Mosaic Fashions 0% -5%
SÍF -1% -1%
Straumur 10% 23%
Össur -4% -5%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Nokkur stofnfjárframsöl bíða
afgreiðslu hjá stjórn SPH og
Fjármálaeftirlitinu samkvæmt
heimildum Markaðarins. Nýir
kaupendur hafa þegar greitt
fyrir bréfin. FME skoðar hvort
virkur eignarhluti hafi mynd-
ast í viðskiptum með stofnfé
í sparisjóðnum. Eftir því sem
næst verður komist er stefnt
að því að halda aðalfund í SPH
seinni partinn í febrúar og þá
er vonast til að FME hafi fyrir
sitt leyti fallist á eigendaskipt-
in.
- eþa
Bréf í SPH enn óafgreidd
G E N G I S Þ R Ó U N
VÍS Invest International fjárfest-
ingarfélag móðurfélags VÍS hér
heima er nú að taka við rekstri
breska tryggingafélagsins IGI
Group Ltd. Breska fjármálaeftir-
litið hefur lokið lögbundinni könn-
un á kaupunum, sem gengið var
frá 5. nóvember síðastliðinn, án
athugasemda. VÍS keypti 54 pró-
senta hlut í félaginu. Kaupverðið
hefur ekki fengist upp gefið.
Eggert Á. Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri VÍS Invest, segir
að farið hafi verið í kaupin eftir
talsverða könnun á breska trygg-
ingamarkaðnum. Hann segir
grunnstarfsemi félagsins og innri
uppbyggingu henta vel hugmynd-
um VÍS. „Félagið er með alhliða
tryggingastarfsemi, en sérhæf-
ir sig þó í ákveðnum tegundum
eignatrygginga,“ segir hann og
bætir við að þeim hjá VÍS Invest
hafi strax litist vel á stjórnend-
ur félagsins, auk þess sem fyrri
hluthafar hafi deilt framtíðarsýn
VÍS og verið tilbúnir að starfa
áfram með félaginu.
Hjá IGI, sem er með aðalskrif-
stofu í miðborg Notthingham,
vinna um sextíu manns og nema
iðgjöld félagsins um 2,5 milljörð-
um króna á ári. VÍS á þess kost
að auka hlut sinn í félaginu í 75
prósent innan þriggja ára. - óká
FORSVARSMENN VÍS Eggert Á.
Sverrisson, framkvæmdastjóri VÍS Invest og
Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, í höfuð-
stöðvum IGI.
Gengið frá kaupum á IGI
Breska fjármálaeftirlitið gerði ekki athugasemdir
við kaup VIS á bresku tryggingafélagi
Hlutabréf í breska fjarskiptafé-
laginu Cable & Wireless hríðféllu
um fjórtán prósent í gær eftir
að félagið gaf út viðvörun um að
hagnaður yfirstandandi rekstr-
arárs yrði minni en vonir hefðu
staðið til.
Einnig greindi félagið frá
miklum skipulagsbreytingum á
rekstri félagsins og brotthvarfs
Francescos Caio úr stóli
forstjóra. Enn er verið að ganga
frá starfslokasamningi hans, en
honum bera að minnsta kosti
árslaun, sem nema tæpum 80
milljónum króna, auk fríðinda .
Novator, félag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, hefur und-
anfarið fest kaup á hlutabréfum
í Cable & Wireless, en félagið á
enn sem komið er minna en þrjú
prósent hlut í félaginu. Eignist
félagið stærri hlut er hann til-
kynningaskyldur í Kauphöllinni
í Lundúnum.
Ekki er vitað hvað Björgólfur
ætlar sér með kaupum í félaginu,
en hann hefur í viðtölum lýst
trú sinni á öran vöxt og vægi
fjarskiptaiðnaðar. Hann kann því
að vera að koma sér í vænlega
stöðu innan fyrirtækisins með
það fyrir augum að ná þar ráð-
andi hlut. Eins er þó hugsanlegt
að hann ætli sér ekki annað en
að innleysa hagnað þegar gengi
Cable & Wireless hækkar á ný,
fari svo.
Þá kann að vera að nýjustu
fregnir af endurskipulagningu
félagsins og brotthvarf for-
stjórans hafi dregið úr áhuga
Björgólfs á fjarskiptafyrirtæk-
inu, sem er það næststærsta í
Bretlandi. Fyrirtækið hefur átt
við rekstrarörðugleika að stríða.
-óká
FRANCESCO CAIO Fráfarandi forstjóri
Cable & Wireless var áður í forsvari fyrir
ítalska fjarskiptafyrirtækið Olivetti, en
myndin er tekin árið 1996 þegar stjórnend-
ur þess sættu rannsókn vegna misferlis.
Nordicphotos/AFP
Verð bréfa Cable &
Wireless hríðfellur
Fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar
hefur undanfarið keypt í félaginu.
ECM á Íslandi hefur gert sam-
starfssamning við kanadíska
fyrirtækið Open Text. Lausnir
ECM eru sagðar notaðar til að
halda utan um „ómótuð gögn“
fyrirtækja.
„Open Text er leiðandi í svo-
kölluðum Enterprise Content
Management gagnalausnum fyrir
stórfyrirtæki víða um heim,“
segir Sverrir Geirdal fram-
kvæmdastjóri ECM á Íslandi og
bætir við að með lausn fyrirtæk-
isins fái fyrirtæki tækifæri til að
meðhöndla upplýsingar með mun
einfaldari hætti en áður. - óká
ECM og Open
Text semja
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hagnaður Íslandsbanka, KB banka, Landsbankans
og Straums-Burðaráss nam 120 milljörðum króna
á síðasta ári sem er um 145 prósenta aukning frá
árinu 2004 þegar samanlagður hagnaður þessara
félaga var um 49 milljarðar.
Árshagnaður Straums jókst hlutfallslega mest
eða um 300 prósent, en þess ber að geta að bank-
inn stækkaði gríðarlega síðastliðið haust þegar
Burðarás rann inn í hann. Hagnaður Landsbankans
tvöfaldaðist en hagnaður KB banka jókst um 180
prósent. Afkoma Íslandsbanka var um 60 prósent
meiri.
Bankarnir uxu gríðarlega á öllum sviðum og
langt umfram langtímamarkmið þeirra. Arðsemi
eigin fjár hækkaði á milli ára og var á bilinu 34
til 47 prósent. Arðsemi Straums var mest eða 46,5
prósent en Landsbankinn kom skammt á eftir með
45,8 prósenta arðsemi. Arðsemi KB banka var um
34 prósent en Íslandsbanka um 30 prósent og var
aðeins í tilfelli hins síðastnefnda sem arðsemin
lækkaði á milli ára.
Hreinar vaxtatekjur námu um 79 milljörðum
króna sem er aukning um 33 milljarða króna á
milli ára eða um 70 prósent. Hreinar vaxtatekj-
ur hækkuðu mest hjá Íslandsbanka eða um 83
prósent, um 79 prósent hjá KB banka og um 56
prósent hjá Landsbankanum. Hreinar vaxtatekjur
Straums voru neikvæðar árið 2005 um 250 millj-
ónir króna.
Efnahagsreikningar bankanna þöndust út á síð-
asta ári og voru komnir í tæpa 5.700 milljarða
króna í árslok. Þeir voru um 3.060 milljarða í
lok árs 2004 án þess að tekið sé tillit til samruna
Straums og Burðaráss. Sú aukning sem varð á
heildareignum nemur meira en tvöföldum eignum
lífeyrissjóðanna.
Heildar eigið fé fjármálafyrirtækjanna fjög-
urra var komið í 503 milljarða króna og jókst um
235 milljarða króna á árinu.
HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON, FORSTJÓRI KB BANKA Bankinn skilaði mesta hagnaði sem nokkurt íslenskt fyrirtæki hefur náð.
Hagnaðurinn nam 49,3 milljörðum króna. Metár er að baki hjá öllum bönkunum. Markaðurinn/Heiða
Eignir bankanna
5.700 milljarðar króna
Hagnaður um 120 milljarðar á síðasta ári. Eignaaukning
nemur tvöfaldri eign lífeyrissjóða.