Fréttablaðið - 01.02.2006, Qupperneq 30
MARKAÐURINN 1. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR6
E R L E N T
������������
������������������������������ ����������������������
���
�����
����
�����������������������������
����������� � ���������
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Jón Skaftason
skrifar
Ensku meistararnir í knattspyrnu, Chelsea, töpuðu
15,4 milljörðum króna á síðasta rekstrarári. Er það
mettap hjá ensku knattspyrnuliði en Chelsea tapaði
tæpum tíu milljörðum króna árið 2004.
Rússneski ólígarkinn Roman Abramovich hefur
dælt peningum í Chelsea undanfarin ár en yfirlýst
markmið félagsins er að árið 2009 verði afgangur af
rekstrinum.
„Það er mikið uppbyggingarstarf í gangi og nauð-
synlegt að færa fórnir til að ná settu marki,“ sagði
Peter Kenyon, forstjóri Chelsea.
Chelsea rifti á árinu samningi við íþróttavöru-
framleiðandann Umbro og sá þar á eftir tæpum
þremur milljörðum króna. Þá sagði félagið upp samn-
ingum við stjörnuleikmennina Adrian Mutu og Juan
Sebastian Veron og lagði mikið fé í uppbyggingu
unglingastarfs.
Hins vegar minnkaði launakostnaður milli ára, úr
þrettán milljörðum króna í tæpa tólf auk þess sem
minna fé var notað til leikmannakaupa.
Chelsea gerði tvo risasamninga á árinu; við far-
símaframleiðandann Samsung og íþróttarisann
Adidas. „Samningurinn við Samsung er sá stærsti í
sögu úrvalsdeildarinnar og mun færa okkur miklar
tekjur. Auk þess kostaði mikið að rifta samningnum
við Umbro en ég lofa því að fjárhagslegur ávinningur
af samningum við Adidas verður gríðarlegur,“ sagði
Peter Kenyon.
Chelsea hefur eytt tæpum þrjátíu milljörðum
króna til leikmannakaupa síðan Roman Abramovich
keypti liðið og vann í fyrra enska meistaratitilinn í
fyrsta skipti í fimmtíu ár. Meðal leikmanna Chelsea er
Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði Íslands.
Mettap hjá Chelsea
Roman Abramovich hefur varið þrjátíu milljörðum króna
til leikmannakaupa. Stefnt er að því að koma rekstrinum á
réttan kjöl árið 2009.
ROMAN ABRAMOVICH ÁSAMT JOHN TERRY OG FRANK LAMPARD Chelsea tapaði 15,4 milljörðum króna á síðasta rekstrarári. Peter
Kenyon, forstjóri félagsins, segir allt á réttri leið, nauðsynlegt sé að færa fórnir til að ná settum markmiðum.
Joseph Deiss, fjármálaráðherra
Sviss, hefur hækkað hagvaxt-
arspá fjármálaráðuneytisins.
Spáir ráðuneytið nú tvö prósent
hagvexti á árinu en gamla spáin
hljóðaði upp á 1,8 prósent.
Ástæðan er aukin eftirspurn
Þjóðverja eftir svissneskum
varningi en Þýskaland er
langstærsti útflutningsmark-
aður Svisslendinga. „Ég er
bjartsýnni en áður og spái því
tvö prósent hagvexti á árinu,“
sagði Deiss.
Það er ýmislegt
sem bendir til þess að
góð tíð sé framundan
í Sviss. Framleiðni í
landinu hefur aukist
undanfarin misseri og
hefur ekki verið meiri í
sautján mánuði, atvinnu-
leysi mælist 3,7 prósent.
Þá hefur svissneski frank-
inn veikst gagnvart helstu gjald-
miðlum og gert það að verkum að
skilyrði til útflutnings eru einkar
hagstæð. -jsk
SVISSNESKUR
OSTUR Skilyrði til
útflutnings eru einkar
hagstæð í Sviss. Þýskaland
er langstærsti útflutnings-
markaður Svisslendinga.
Hagnaður þýska bílaframleið-
andans Porsche nam 20,4 millj-
örðum króna á síðari helmingi
ársins 2005. Er það ellefu pró-
senta aukning frá sama tímabili
árið áður.
Fyrirtækið seldi tæplega
fjörutíu og tvö þúsund bifreiðar
á tímabilinu, sem var sautján
prósenta aukning.
Í yfirlýsingu frá Porsche
sagði að miklar væntingar
væru gerðar til nýrra gerða
á borð við Cayenne Turbo og
Cayman S. Stefnt væri að því
að selja níutíu þúsund bifreiðar
árið 2006. „Við munum halda
áfram á sömu braut, vonandi
verður áframhald á velgengni
okkar,“ sagði doktor Wendelin
Wiedekling, forstjóri Porsche.
-jsk
Porsche á góðu skriði
PORSCHE 911 TURBO COUPE Porsche skilaði
methagnaði árið 2005 og stefnir að því að selja níutíu
þúsund bifreiðar á þessu ári.
Stjórnvöld í Venesúela íhuga
að gjaldfella gjaldmiðil lands-
ins, bólívarinn. Verðbólga í
landinu hefur verið að með-
altali tíu prósent á ári í rúm
tuttugu ár.
Í dag fást meira en tvö
þúsund bólívarar fyrir hvern
bandaríkjadal en árið 1983
fengust 4,3 bólívarar fyrir dal.
„Ég veit ekki hvort við
klippum einhver núll af bólí-
varnum eða hversu mörg. Hins
vegar er ljóst að eitthvað verð-
ur að gera, peningaviðskipti
eru orðin allt of flókin,“ sagði
Ricardo Sanguino, formaður
efnahagsnefndar venesúelska
þingsins.
Big-Mac hamborgari kost-
ar rúma sex þúsund bólí-
vara í Caracas, höfuðborg
Venesúela. -jsk
Flókin peningaviðskipti
HUGO CHAVEZ FORSETI VENESÚELA
Chavez er væntanlega ekki mikið fyrir Bic-
Mac hamborgara enda svarinn andstæðingur
alþjóðlegas kapítalisma. Bic-Mac hamborgari
kostar nú rúma sex þúsund bólívara en kostaði
tæpa þrettán árið 1983.
Bjart framundan í Sviss
Spáð er tvö prósent hagvexti í Sviss á árinu.
Eftirspurn eftir svissneskum varningi hefur aukist.