Fréttablaðið - 01.02.2006, Page 36
MARKAÐURINN 1. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
JÓN KARL ÓLAFSSON FORSTJÓRI
ICELANDAIR GROUP Jón Karl er að
vonum ánægður með gott gengi félagsins
og uppgang síðustu ára, þrátt fyrir að ytri
aðstæður flugrekstrar séu erfiðar á margan
hátt. Hér heima er við hátt gengi krónunnar
að eiga og svo eru flugfélög um heim allan
plöguð af háu eldsneytisverði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á síðasta ári voru gerðar margháttaðar breyt-
ingar á skipulagi og uppbyggingu félaganna
sem áður voru undir hatti Flugleiða. Á sama
tíma var slegið met
þegar flutt var rúm
ein og hálf milljón
farþega í millilanda-
flugi. Einstakt leiða-
kerfi er sagt lykillinn
að velgengninni.
„Gömlu Flugleiðir
urðu FL Group og
fyrri hluta ársins
voru rekstrarfélögin
öll hluti af sömu sam-
stæðunni. Á seinni
hluta ársins var svo
gerð mjög veiga-
mikil breyting og FL
Group breytt í hreint
fjárfestingafyrirtæki og rekstrarfélögin gerð
algjörlega sjálfstæð. Daglegur rekstur ein-
inga á borð við Icelandair er því ekki lengur
í höndum FL manna, heldur okkar hér sem til
þess erum ráðin,“ segir Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair Group og Icelandair.
Icelandair Group er samheiti yfir fyrirtækin
sem sinna alþjóðarekstri flugfélagsins. „Það
er Icelandair sjálft, Icelandair Cargo sem
annast fraktflutningana, Loftleiðir-Icelandic
sem er leiguflugið, Icelandair
Ground Services sem er tækni-
stöðin á Keflavíkurflugvelli.
Þessi fyrirtæki mynda það sem
við köllum Icelandair Group,
fyrirtæki með samtals 2.200
starfsmenn og 33 til 34 millj-
arða króna veltu á ári,“ segir
hann og telur breytinguna hafa
orðið til að skerpa á áherslum
hjá hverri einingu fyrir sig,
enda þurfi menn þá ekki, til
hliðar við hefðbundinn fyrir-
tækjarekstur, að vera að velta
fyrir sér fjárfestingum og fjár-
festingarkostum. „Það eru aðrir
menn í því, enda næg vinna að
reka flugfélag sem flytur eina
og hálfa milljón farþega á ári.“
LEIÐAKERFIÐ ER LYKILLINN
Jón Karl segir að mörgu að hyggja í jafn
umsvifamiklum rekstri auk þess sem sam-
keppni sé mjög hörð, en Icelandair njóti
þar þó ákveðinnar sérstöðu. „Það er algjör-
lega með ólíkindum að fyrirtæki skuli árlega
flytja fimmfalt magn heimamarkaðar. Í
heiminum þekkjast engin dæmi um annað
eins fyrirbæri. Umsvifin eru því gríðarlega
mikil á erlendum mörkuðum.“ Lykilinn að
þessum miklu umsvifum segir Jón Karl
felast í leiðakerfinu, en með því að hafa
Keflavíkurflugvöll sem tengipunkt sé hægt
að fjölga svo möguleikum í teng-
ingum áætlunarstaða. Fyrst í
stað segir hann umræðuna hjá
félaginu hafa snúist nokkuð um
hvort raunhæft væri nota Ísland
sem lendingarstað í millilanda-
fluginu, en svo, fyrir um 20 árum,
hafi verið tekin ákvörðun um að
líta á lendingu hér sem styrk-
leika í stað kvaðar. „Með því að
fljúga um Ísland og nota þetta
ótrúlega kerfi verður sveigjan-
leikinn í markaðnum svo mikill.
Til dæmis ef opnaður er nýr
áfangastaður, svona eins og San
Fransiskó í fyrra, þá er ekki
bara verið að setja upp leið milli
einhverra tveggja borga, heldur
fjölda áfangastaða með Ísland
sem tengipunkt. Þetta þýðir að
áhættan sem tekin er gagnvart
því að eitthvað eitt markaðs-
svæði sé nægilega sterkt til að
standa undir áætlunarflugi er
miklu dreifðari. Við erum að
opna nýjan áfangastað fyrir fyrir Íslendinga
og um leið opnum við leið frá vesturströnd
Bandaríkjanna til fimmtán borga í Evrópu
og frá borgunum til baka.“ Jón Karl segir
fá flugfélög státa af sambærilegu kerfi, en
Finnair hefur í Finnlandi byggt upp svipað
kerfi í kringum flug til Asíu.
KYNSLÓÐASKIPTI EIGA SÉR STAÐ
Jón Karl segir óvarlegt að vanmeta mikil-
vægi öflugra samgangna til og frá landinu.
„Ég á sæti í Verslunarráði og þar höfum við
verið að velta fyrir okkur hvað skapar útrás
íslenskra fyrirtækja og hvað kemur til með
að halda þeim í landinu. Af hverju heldur
KB banki áfram að vera hér þegar 70 pró-
sent umsvifa hans eru í útlöndum? Auðvitað
spilar skattaumhverfi og fleira þar inn í, en
allir sem reka hér stórfyrirtæki eru sammála
um að miklir möguleikar á flugsamgöngum
í allar áttir, bæði austur og vestur um haf,
þýði að hér sé hægt að skapa aðstöðu til að
reka fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum,“ segir
hann og bendir á að á degi hverjum séu fleiri
ferðir frá Keflavík til Bandaríkjanna, en eru
samanlagt frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Þá segir Jón Karl mikla tíðni ferða inn í land-
ið hafa skapað hér möguleika til
frekari markaðsetningar á ferð-
um hingað til lands og þar komi
að annarri sérstöðu Icelandair, að
auk hefðbundinna fólksflutninga
starfi félagið einnig sem ferða-
skrifstofa í raun og hafi lengi
rekið mjög öflugt markaðsstarf í
útlöndum. Hann segir öra fjölg-
un farþega síðustu ár byggja á
markvissu starfi sem löngu var
hafið. „Ef verið er að leita að
grunninum sem félagið byggir á í
dag er hægt að fara alveg aftur til
ársins 1988 eða 1989 þegar tekin
var ákvörðun um að endurnýja
flugflotann,“ segir hann og bætir
við að á þeim tíma hafi heyrst
jafnvel raddir um að Sigurður
Helgason, þáverandi forstjóri,
væri kolruglaður að fara í þau
kaup á nýjum vélum. „Breytingar
upp á síðkastið eru í sjálfu sér
kannski bara eðlilegt framhald af
þessu.“ Verið er að ljúka við stór-
tækar breytingar á skrifstofum Icelandair
við Reykjavíkurflugvöll, en þar sem áður
voru mjóir gangar og margar litlar lokaðar
skrifstofur eru nú komnir glerveggir og opin
vinnusvæði. Jón Karl segir kynslóðaskipti
hafa átt sér stað hjá félaginu. „Hér eru
komnir nýir stjórnendur og menn horfa hér
á flugmarkað sem er ótrúlega breytilegur
og slík hreyfing á honum að varla þekkist
annað. Hluti af þessu er hversu hreyfanlegar
fasteignir flugvélar eru og auðvelt að verða
sér úti um þær,“ segir hann og bendir á að
bankar séu líklegri til að lána peninga í flug-
vélakaup, en margvíslegan annan rekstur.
„Verksmiðjan verður þar sem hún er reist, en
flugvélin getur elt viðskiptin.“
F A R Þ E G A R
I C E L A N D A I R
Ár Þúsundir farþega
2005 1.526
2004 1.332
2003 1.133
2002 1.199
2001 1.358
2000 1.432
1999 1.327
1998 1.322
1997 1.086
1996 958
1995 830
Heimild: Icelandair Group
Ætla að halda í horfinu eftir metár í farþegaflutningum
Icelandair sló á nýliðnu ári met í farþegaflutningum milli landa. Fyrirtækið hefur verið í örum vexti síðustu ár og nýafstaðnar eru
umfangsmiklar skipulagsbreytingar hjá móðurfélaginu. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér starfsemi Icelandair Group, en félagið
stefnir á að halda sínu á þessu ári þrátt fyrir hátt olíuverð og hátt gengi krónunnar.
Leiguflug Icelandair Group er rekið undir merkj-
um Loftleiða-Icelandic og hefur verið mjög
vaxandi þáttur í starfsemi félagsins síðustu ár.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group,
segir árstíðarsveiflur einkenna nokkuð farþega-
flutninga Icelandair og því komi leiguflugið inn
sem nokkurs konar leið til sveiflujöfnunar, auk
útrásar. „Í júlí flytur Icelandair þrisvar sinnum
fleiri farþega en í febrúar,“ segir hann. Um
þessar mundir eru Lofleiðir með tvær vélar í
reglubundnu flugi milli Kúbu og Venesúela, auk
þess að fljúga í Evrópu, Afríku og víðar. „Allan
ársins hring eru meira og minna 4 til 6 vélar að
fljúga erlendis á okkar vegum,“ segir Jón Karl.
L O F T L E I Ð I R - I C E L A N D I C
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Forstjóri Icelandair og
Icelandair Group segir horfur á miklum vexti í flugiðnaði
næstu ár þegar nýir markaðir opnast í Kína og á Indlandi.
Þá segir hann að á næstu árum megi gera ráð fyrir tölu-
verðri fjölgun ferðamanna hingað til lands.
Fréttablaðið/Valli