Fréttablaðið - 01.02.2006, Side 41
MARKAÐURINN
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
17MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
Þinn eigin fyrirtækjafulltrúi
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Frítt greiðslukort fyrsta árið
Sérstakur sparnaðarreikningur, þrepaskiptur,
óbundinn með hærri innlánsvöxtum
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu
Afsláttur á lántökugjaldi
Sérstök bílalán á betri kjörum
Vildarþjónusta fyrirtækja
Vildarþjónusta fyrirtækja
Í meira en 100 ár höfum við aðstoðað fyrirtæki við fjármálin. Við leggjum áherslu á langtímasamband
og sérhæfðar lausnir sem taka mið af sérstökum aðstæðum og starfsumhverfi viðskiptavina okkar.
Leyfðu okkur að aðstoða þig og nýttu tímann í annað.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Alltaf að vinna?
S K O Ð U N
Fyrir stuttu stöðvaðist rekstur
fyrirtækis eins í nokkurn tíma
vegna þess að gleymst hafði
að skrúfa fyrir slöngu við upp-
þvottavél þegar fyrirtækið var
yfirgefið á föstudagskvöldi.
Slangan hafði gefið sig og kalt
vatn hafði lekið um gólf fyr-
irtækisins í rúman sólarhring.
Mikið tjón hlaust af auk þess
sem starfsemin lá niðri um hríð.
Óhöpp af þessu tagi eru mjög
algeng og má gera ráð fyrir að
40-45% tilkynntra tjóna til trygg-
ingafélaga úr fasteignatryggingu
séu af þessum toga. Í þessari
grein verða raktar helstu ástæð-
ur fyrir tjónum af þessu tagi:
Í fyrsta lagi eru algengustu
tjónin vegna hulinna lagna þ.e.
vatnsröra inni í vegg eða í gólf-
um. Ástæður þeirra eru margvís-
leg t.d. að raki kemst að rörum
og veldur ytri tæringu og rörin
ryðga sundur. Það getur komist
raki undir eða með glugga, undir
svalahurðir og gegnum sprungur
í veggjum. Það er því nauðsynlegt
að fylgjast með ástandi húseign-
ar utanhúss. Í öðru lagi verður
bilun í samskeytum röra. Í þriðja
lagi verða vatnstjón vegna bilun-
ar eða tæringar í hitaofnum. Loks
verða tjón af þessu tagi vegna
bilunar í frárennslisrörum. Með
árunum tærast þessi rör eða þau
síga og stíflast í kjölfarið. Fá
óhöpp eru jafn hvimleið og bilun
í frárennsli bæði hjá einstakling-
um og fyrirtækjum.
Til að draga úr óhöppum af
þessu tagi má nefna eftirfarandi
fyrirbyggjandi aðgerðir:
• Sem flestar vatnslagnir verði
sýnilegar eða í utanáliggjandi
stokkum. Það minnkar tjón
og auðveldar viðgerð. Gott
aðgengi þarf að vera að hita-
veitugrind og inntakskrönum
fyrir heitt og kalt vatn.
• Reglubundið eftirlit þarf að
eiga sér stað með lögnum,
vatnslásum og samskeytum.
• Starfsmenn þurfa einnig að
hafa vitneskju um hvernig
bregðast eigi við ef vatn fer að
flæða. Þeir þurfa að vita hvar
er skrúfað fyrir inntakskrana,
en reynslan er sú að flest-
ir starfsmenn hafa ekki vitn-
eskju um það. Fá má aðstoð
frá slökkviliði og trygginga-
félögum viðkomandi til að fá
búnað til að hreinsa upp vatn.
Verulega má draga úr vatnstjón-
um í fyrirtækjum með fyrir-
byggjandi aðgerðum. Að mæta í
vinnuna að morgni og vaða elginn
á skrifstofunni er ekki einung-
is afar hvimleitt heldur einnig
kostnaðarsamt fyrir fyrirtæki.
Sigurður Ingi Geirsson,
deildarstjóri munatjóna hjá Sjóvá.
Vatnstjón í fyrirtækjum
Átak Marka›arins og Sjóvá
ÖRUGG FYRIRTÆKI
Nú fer að líða að því að maður
taki krakkana úr skólanum í tvær
vikur og skelli sér til Flórída eða
á skíði í smá frí. Ég geri þetta
venjulega eftir uppgjör og aðal-
fundi. Annað hvort þangað, eða á
skíði í Aspen eða Austurríki.
Það sem er sniðugt við þetta
er meðal annars það að á þessum
tíma taka margir forstjórar smá
frí og eru þá einmitt á þess-
um sömu slóðum. Maður nær
því venjulega að fá einhverja
tilfinningu fyrir því sem menn
eru að gera með því að spjalla
við þá, alla vega á leiðinni út og
í endalausri bið eftir að kom-
ast í gegnum öryggishliðin hjá
Kananum. Mér reyndar leiðist
alveg svakalega þessi hystería
sem er á amerískum flugvöllum.
Skíðasvæðin eru að mörgu
leyti betri staður til þess að fá
ferskar upplýsingar. Það er alveg
magnað hvað Stroh í kakói getur
opnað miklar gáttir þegar menn
eru líkamlega þreyttir eftir erf-
iðið í skíðabrekkunum. Ég reynd-
ar gæti mín vel á því að ofreyna
mig ekki á skíðunum, en maður
verður náttúrlega að sýna sig og
sjá aðra.
Ég er alveg sallarólegur yfir
markaðnum hér heima í bili.
Bankarnir voru að skila dúndur
uppgjörum og það verður áfram
spenna í þessu sem betur fer.
Enda þótt ég sé iðinn við að taka
stöður til skemmri tíma, og taki
þá oft mikla áhættu, þá er ég
alltaf með gott safn þar sem ég
horfi til lengri tíma. Ég endur-
raða reyndar alltaf aðeins í safn-
inu. Bakkavör hefur verið þar í
allmörg ár og Össur og Marel.
Actavis var stærst á tímabili, en
ég innleysti hagnað af því fyrir
tveimur árum. Það var eftir að
Gunna frænka sagði mér í boði
að Parmakó væri góð fjárfesting.
Hún og karlinnn hennar hafa allt-
af tapað á öllu sem þau hafa gert.
Síðasta hálfa árið hef ég verið að
stækka það aftur í safninu, hægt
og bítandi.
Ég er alveg rólegur yfir þessu
ári hjá Actavis, en ég mun taka
ákvörðun um framtíðina eftir því
sem skýrist hvernig þeir höndla
kaup síðasta árs á fyrirtækjum,
Ég hef reyndar fulla trú á stjórn-
endunum, en reynslan hefur
kennt mér að maður eykur þung-
ann í fjárfestingu eftir því sem
árangurinn kemur skýrar í ljós.
Spákaupmaðurinn á horninu
Minglað með
forstjórunum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI