Fréttablaðið - 01.02.2006, Síða 47
MARKAÐURINN 23MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
����
�������
������
��������
�����
��������
����������
��� ��
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
31
00
5
0
1/
20
06
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn
á Nordica hótel laugardaginn 4. febrúar kl. 14.
Tilkynna skal um framboð til bankaráðs eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá,
endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda liggja frammi í
Aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis. Einnig er hægt að
nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is
Gerð er tillaga um breytingu á samþykktum félagsins um að bankaráði verði heimilt að fela
formanni bankaráðs að sinna ákveðnum verkefnum í þágu félagsins umfram þau sem tengjast
reglulegum fundum bankaráðs. Hluthöfum er bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps
á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði
allt að 10% af eigin bréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Aðalfundur 4. febrúar 2006
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Kynningarfundur um MBA-nám
í Copenhagen Business School
verður haldinn á Hótel Sögu
fimmtudaginn 2. febrúar næst-
komandi milli klukkan 17 og 19.
Á fundinum munu forsvarsmenn
skólans kynna námið auk þess sem
Íslendingar útskrifaðir úr náminu
munu segja frá reynslu sinni.
Connie Tai, sem sér um alþjóð-
lega markaðssetningu CBS, segir
skólann hafa mikinn hag af því
að koma hingað til lands og kynna
námið, enda séu um 15 prósent
þeirra sem stunda fullt MBA-nám
við skólann Íslendingar.
MBA-námið sem um ræðir
hefst í september ár hvert og
tekur eitt ár. Skólinn hefur meðal
annars getið sér gott orð fyrir
að hafa góð tengsl við atvinnu-
lífið og þá sérstaklega fyrirtæki
á Eyrarsundssvæðinu. Það varð
meðal annars til þess að skólinn
var hæstur af viðskiptaháskól-
um Norðurlanda á lista Financial
Times yfir 50 bestu viðskiptahá-
skóla Evrópu. - hhs
Danir lokka til sín Íslendinga
COPENHAGEN BUSINESS SCHOOL
Í KAUPMANNAHÖFN Um það bil
15 prósent nemenda í MBA-nám-
inu þar eru Íslendingar.
Hagvöxtur í Bandaríkjunum var
1,1 prósent á fjórða ársfjórðungi
ársins 2005 og hefur ekki verið
minni í rúm þrjú ár. Rúmlega
fjögur prósent hagvöxtur var á
fyrstu níu mánuðum ársins.
Neysla minnkaði talsvert á þessu
tímabili vegna verðhækkana á
eldsneyti auk þess sem felli-
byljir sem riðu yfir suðurströnd
Bandaríkjanna ollu miklum
framleiðslutruflunum.
„Óviðráðanlegar aðstæður urðu
til þess að hægðist á hagvexti. Ég
hef engar áhyggjur af hagkerf-
inu,“ sagði Mark Zandi, yfirhag-
fræðingur hjá Moody’s. -jsk
Hægari vöxtur núna
FRÁ NEW ORLEANS Talsvert hægðist á
hagvexti í Bandaríkjunum á síðasta árs-
fjórðungi ársins 2005. Hagfræðingar kenna
náttúruhamförum og hækkandi eldsneyt-
isverði um.
N á tali hjá Hemma Gunn
Sunnudaga 16-18:30