Fréttablaðið - 01.02.2006, Síða 55
MIÐVIKUDAGUR 1. febrúar 2006
Fjármálafyrirtækin leggja fyrir
aðalfundi sína að greiddir verði 22
milljarðar í arð til hluthafa vegna
síðasta árs. Arðgreiðslur í þess-
um fyrirtækjum verða auknar um
tíu milljarða á milli ára samþykki
hluthafar tillögur stjórna.
Straumur-Burðarás leggur til
hæsta arðinn eða 6.679 milljón-
ir króna sem samsvarar 65 pró-
sentum af nafnverði hlutafjár. Að
hluta til verður arðurinn greiddur
með eigin bréfum Straums.
KB banki ætlar að greiða 6.646
milljónir til sinna hluthafa sem
samsvarar 10 krónum á hvern
hlut. Það er í raun 100 prósent af
nafnverði. Íslandsbanki ætlar að
greiða 38 prósenta arð af nafn-
verði eða alls 5.371 milljónir
króna. Landsbankinn leggur til að
greiddur verði 30 prósenta arður
af nafnverði sem eru alls um 3.306
milljónir króna.
Stærstu hluthafarnir fá auð-
vitað mest í sinn hlut. Exista
fær 1,4 milljarða frá KB banka,
Samson um 1.328 milljónir frá
Landsbankanum og 1.076 milljón-
ir frá Straumi og Milestone fær
að minnsta kosti 800 milljónir frá
Íslandsbanka. - eþa
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.272 +0,80% Fjöldi viðskipta: 533
Velta: 8.709 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 54,30 -0,20% ... Atorka 6,25 +0,00% ... Bakkavör
55,00 -0,70% ... Dagsbrún 5,61 -0,20% ... FL Group 22,10 -2,60% ... Flaga 4,01 -1,00% ...
Íslandsbanki 19,40 -2,50% ... KB banki 890,00 -0,50% ... Kögun 63,10 -1,40% ... Lands-
bankinn 27,40 -1,10% ... Marel 69,80 -0,40% ... Mosaic Fashions 17,70 -1,10% ... SÍF 3,98
-1,50% ... Straumur-Burðarás 19,60 +0,50% ... Össur 105,00 -2,80%
MESTA HÆKKUN
Atlantic Petroleum +0,71%
Straumur-Burðarás +0,51%
MESTA LÆKKUN
Össur -2,78%
FL Group -2,64%
Íslandsbanki -2,51%
Umsjón: nánar á visir.is
Bandaríski tölvurisinn Dell hyggst
fjölga starfsmönnum sínum á
Indlandi um fimmtíu prósent.
Tíu þúsund manns starfa nú hjá
indverska hluta Dell.
Dell áætlar að setja upp
verksmiðju í borginni Bangalore
og á hún að vera tilbúin árið 2008.
Flestir starfsmanna Dell á
Indlandi starfa í þjónustumið-
stöðvum þar sem þeir sjá um að
svara fyrirspurnum bandarískra
viðskiptavina „Indverjar eru upp
til hópa frábærir starfskraftar
sem nýst hafa okkur vel. Þróunin
verður líklega sú að við færum
starfsemi okkar í auknum mæli
til Indlands,“ sagði Kevin Rollins
forstjóri Dell. - jsk
Dell til
Indlands
Kauphöll 31. janúar
Eiga neðangreind atriði við um þig:
• Þarftu að semja við aðra?
• Viltu bæta samkeppnishæfni þína?
• Viltu auka hæfni þína í samningaviðræðum?
• Langar þig að vita meira um samningatækni?
Þá átt þú erindi til okkar!
Samningatækni I
7. febrúar - 16. febrúar kl. 16:15-19:15
Á námskeiðinu er farið yfi r grundvallaratriði í
samningatækni. Þátttakendur læra m.a. að skilgreina
jaðarverð, fi nna samningsfl eti, ákveða samnings-
viðmót og takast á við erfi ða einstaklinga.
Þátttakendur þurfa að fi nna sinn samningsstíl, glíma
við verkefni og dæmi einir og í hóp.
Verð kr. 30.000,-
Leiðbeinandi:
Sigurður Gíslason, viðskiptafræðingur og ráðgjafi hjá
Grow Consulting ehf.
Samningatækni I
Upplýsingar og skráning:
Lóa Ingvarsdóttir
Sími: 599 63 50
li@ru.is
www.ru.is/simennt
SÍMENNT HR
www.ru.is/simennt
ARÐGREIÐSLUR FJÁRMÁLAFYRIR-
TÆKJA ÁRIÐ 2005
Heildarupphæð Hlutfall
arðgreiðslu* af hagnaði
Íslandsbanki 5.371 28,0%
KB banki 6.646 13,5%
Landsbankinn 3.306 13,0%
Straumur-Burðarás 6.679 25,0%
Alls 22.002
* Í milljónum króna
ARÐGREIÐSLUR HÆKKA Exista, sem Bakkabræður eiga mest í, fær 1,4 milljarða í arð vegna
ársins 2005 gangi tillaga stjórnar KB banka um arðgreiðslur eftir.
Arður til hluthafa bankanna stóreykst