Fréttablaðið - 01.02.2006, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
risaSMÁR er nýtt orð í orðabókinni. Það lýsir því sem er í raun lítið
en hefur eiginleika þess sem er stórt, sérstaklega í tilfinningu,
byggingu, eiginleikum eða útliti. Eða öllu þessu.
Tveggja marka sigur í handbolta telst vanalega afar naumur sigur
og kallast aldrei stórsigur. Það er hins vegar varla hægt að hugsa
sér meira afrek fyrir íslenskan handbolta en 34:32 gegn Rússum.
Sigur Íslendinga gegn Rússum er því risaSMÁR. Við óskum
handboltalandsliðinu til hamingju og vonumst eftir fleiri
risaSMÁUM sigrum.
Nýr Yaris er risaSMÁR. Yaris hefur eiginleika stórs bíls í litlum bíl,
tilfinninguna fyrir stórum bíl í litlum bíl, rými stórs bíls í litlum bíl.
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
www.toyota.is
34:32 risaSMÁR sigur á Rússum
Verð frá 1.359.000 kr.
risaSMÁR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
31
17
6
01
/2
00
6
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Ég er oft spurð að því hvort ég sé ekki með viðstöðulaus-
ar áhyggjur af dóttur minni sem
dvalist hefur í Austurlöndum
nær síðustu mánuði. Ég er vön að
svara því til að það venjist furðan-
lega að eiga fullorðin börn og eitt
af því sem maður verði að læra að
lifa með sé að þau taki sjálfstæð-
ar ákvarðanir um það hvernig þau
ráðstafa lífi sínu, hvert þau vilji
fara og hvenær. Að lokinni þess-
ari ræðu viðurkenni ég þó yfirleitt
að vissulega hafi ég stundum haft
áhyggjur, til dæmis í haust þegar
nokkur hótel voru sprengd upp í
Amman í Jórdaníu þar sem dótt-
ir mín átti einmitt heima á þeim
tíma. Og síðustu daga hef ég líka
fundið fyrir beyg vegna þeirrar
reiði sem nú ríkir meðal múslima
í garð frænda okkar Dana.
IÐULEGA hef ég sagt við vini
mína sem eiga ung börn að þó að
það sé vissulega mikil vinna að
standa í smábarnastússi þá hefjist
áhyggjurnar fyrir alvöru þegar
blessuð börnin vaxi úr grasi. Lífi
ungra barna geti foreldrar að vissu
leyti ráðstafað eða að minnsta
kosti haft yfirsýn yfir meðan börn
sem ráða sér sjálf geti farið út um
hvippinn og hvappinn án þess að
við foreldrar fáum rönd við reist.
Og þá er ekki um annað að gera
en að anda rólega, beita rökvísi
og yfirvegun og minna sjálfan sig
og aðra á að líkurnar á að fara sér
að voða séu nánast jafnmiklar á
heimavelli eins og úti í heimi.
ÞEGAR frumburðurinn tók bíl-
próf var ég algerlega sannfærð
um að ég myndi aldrei aftur líta
glaðan dag, svo magnaður var ótt-
inn við að hún færi sér að voða í
umferðinni. Sömuleiðis var ég
nær vitstola af hræðslu um að
sama dóttir yrði fyrir bíl, ef ekki
henni yrði þá ekki beinlínis rænt,
þegar hún hleypti heimdraganum.
En svo má illu venjast að gott þyki,
eða að minnsta kosti þolanlegt, og
nú á ég þrjár akandi dætur sem
ég áminni bara stundum, áður en
þær setjast undir stýri, um að aka
varlega. Þær fara líka í ferðalög
bæði innan lands og utan án þess
að sliga móður sína af áhyggjum.
ÞAÐ væri þó vissulega ekki annað
en hræsni ef ég viðurkenndi ekki
að ég verð mikið feginn þegar
blessað barnið mitt kemur heim
úr Austurlandadvölinni. Það venst
líklega aldrei alveg að hafa ekki
fulla yfirsýn yfir líf niðja sinna.
Það er vont en
það venst
����������
�����������
�������������
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar