Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 2
2 8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma
410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á
www.landsbanki.is. Í boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir
út með lítilli gjöf.
410 4000 | www.landsbanki.is
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Fyrirlestur í Vesturbæjarútibúi Landsbankans, Hagatorgi
á morgun kl. 20
- Efnahagsmál í upphafi árs
- Hvar liggja fjárfestingatækifærin?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
11
57
02
/2
00
6
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
DÓMSMÁL Tuttugu og sex ára göml-
um manni er gefið að sök að hafa
notað greiðslukort og peninga sem
hann fann á göngu á leið frá Hverf-
isgötu að Fjarðargötu í Hafnarfirði,
en mál mannsins var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Maðurinn fór með seðlaveskið
í verslanir Lyfju og Herra Hafn-
arfjarðar og verslaði fyrir rúm 50
þúsund, bæði lyf og fatnað. Þá var
maðurinn tekinn með lítilræði af
amfetamíni og LSD.
Þess er krafist að maðurinn
verði dæmdur til refsingar fyrir
að hafa í fórum sínum fíkniefni,
þjófnað og fyrir að aka próflaus.
- mh
Síbrotamaður fyrir dómi:
Fann veski og
keypti lyf og föt
UMFERÐARSLYS Á milli þrjú til sjö
prósent allra banaslysa í umferð-
inni má rekja til sjálfsmorða eða
sjálfsmorðatilrauna. Þetta sýna
rannsóknir sem hafa verið gerðar
í Finnlandi, Svíþjóð og á Írlandi og
danska blaðið Politiken segir frá.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarnefnd umferðarslysa
má áætla að þetta hlutfall sé um
eitt til tvö prósent hér á landi þó
ávallt sé erfitt að sýna fram á töl-
fræði í þessum efnum. „Það eru
tilfelli nánast á hverju ári þar
sem leiða má líkur að því að um
sjálfsmorð sé að ræða og jafnvel
að það liggi alveg ljóst fyrir eftir
rannsókn á bílslysinu að sú hafi
verið raunin,“ segir Einar Magn-
ús Magnússon, upplýsingafulltrúi
á Umferðarstofu.
„Ég veit dæmi þess að fórn-
arlömb hafi hlotið alvarleg lík-
amstjón af svo ekki sé talað um
þann andlega miska sem menn
verða fyrir í svona tilfellum. Það
er mikil kvöl fyrir hvern sem er
að hafa átt þátt í því að einhver
beið bana þó menn beri enga sök,“
segir hann.
„Það er ekki hægt að segja
neitt ákveðið um þessi slys. Þau
geta verið afar ólík en stundum
er margt í aðdraganda þeirra sem
rannsakendur heyra frá aðstand-
endum sem vekur upp þennan
grun. Einnig geta slysin verið
með þeim hætti að það vekur upp
þessar grunsemdir. Það er angi af
stærri umræðu að brýna það fyrir
fólki að fylgjast vel með hvort
öðru svo hægt sé að minnka lík-
urnar á því að fólk grípi til þess-
ara óyndisúrræða hvort sem það
er í umferðinni eða annars staðar.
Þó er ekki hægt að kenna aðstand-
endum um þegar svona fer því oft
fer þetta mjög leynt,“ segir Einar.
Ágúst Mogensen, forstöðumað-
ur Rannsóknarnefndar umferð-
arslysa, segir að vissulega gerist
þetta hér á landi. „Við höfum einu
sinni skrifað það í skýrslu hjá
okkur að grunur léki á því að um
sjálfsmorð hafi verið að ræða. En
það er mjög erfitt að segja til um
þetta. Við heyrum einnig af því
að gerðar hafi verið tilraunir til
sjálfsvíga í umferðinni en farið
betur en til stóð,“ segir Ágúst.
Einar Guðmundsson, forvarn-
arfulltrúi hjá Sjóvá, segir að
tryggingafélögin sjái einungis
lögregluskýrslur þar sem skýrsl-
ur rannsóknarnefndar séu trún-
aðarmál. „Samt segir tilfinningin
mér það að þegar ég les lögreglu-
skýrslurnar að þar hafi sjálfs-
morð eða sjálfsmorðstilraun átt
sér stað þó ekki sé hægt að sanna
slíkt.“ Hann segir ennfremur
mikla þörf á umræðunni en þó
sé það afar vandasamt þar sem
samfélagið sé lítið og slysin þar
af leiðandi fá.
jse@frettabladid.is
Mörg banaslys má
rekja til sjálfsmorða
Erlendar rannsóknir sýna að sjálfsmorð eða sjálfsmorðstilraunir eru orsök
margra banaslysa í umferðinni á hverju ári. Ekki eru til rannsóknir á þessu hér
á landi en ýmis dæmi eru um að hér megi einnig rekja banaslys til sjálfsvíga.
BANASLYS Í UMFERÐINNI Kannski fæst það aldrei sannað hversu mörg banaslys í umferð-
inni megi rekja til sjálfsmorða eða sjálfsmorðstilrauna en slík slys eiga sér stað hér á landi
líkt og í nágrannalöndum okkar.
Sakaður um fjölföldun Fertugum
starfsmanni fyrirtækisins Tölvutækja er
gefið að sök að hafa afritað hugbúnað
frá Microsoft inn á tölvur sem seldar
voru úr versluninni. Málið var tekið fyrir í
gær í Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Amfetamín í bíl Nítján ára gömul
stúlka á Akureyri er ákærð fyrir að hafa
verið með lítilræði af amfetamíni í duft-
formi og átta amfetamíntöflur í fórum
sínum. Efnin fundust á stúlkunni þegar
lögreglan stöðvaði bíl sem hún var í og
leitaði á farþegum í bílnum.
DÓMSMÁL
HNATTFLUG Leki sem greindist í
eldsneytiskerfi tilraunaflugvélar
bandaríska ævintýramannsins
Steve Fossett olli því að fresta
þurfti flugtaki í nýrri metflugstil-
raun á Flórída í gær. Fossett, sem
varð í fyrra fyrstur manna til að
fljúga einsamall viðstöðulaust og
án eldsneytisáfyllingar umhverfis
jörðina, hyggst nú bæta um betur
og fljúga umhverfis jörðina og yfir
Atlantshafið að auki, alls rúmlega
43.300 kílómetra, til að slá heims-
met sem staðið hefur í tvo áratugi.
Fossett sagði að auðvelt hafi
verið að gera við bilunina en hann
myndi ekki reyna flugtak aftur
fyrr en í lok vikunnar vegna óhag-
stæðrar veðurspár. Flugtakið er
einn hættulegasti áfangi metflugs-
tilraunarinnar þar sem þá er vélin
með 8,1 tonn af eldsneyti um borð.
Gangi allt að óskum mun Fossett
fljúga í um 13.500 metra hæð í
um 80 tíma og lenda í grennd við
Lundúnir. Í metfluginu í fyrra
láku nærri 1.400 kíló af eldsneyti
úr vélinni í flugtaki og eldsneytis-
leki var eitt helsta áhyggjuefnið á
meðan á fluginu stóð. - aa
FOSSETT OG BRANSON Steve Fossett, t.h.,
og Richard Branson, aðalfjármagnandi
metflugstilraunarinnar, eftir að hætt var við
flugtak á Kanaveralhöfða í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandaríski ævintýramaðurinn Steve Fossett gerir nýja hnattflugstilraun:
Flugtaki frestað á Flórída
UTANRÍKISMÁL „Það var einn Íslend-
ingur í Meymana þar sem aðsúgur
var gerður að búðum friðargæslu-
liða,“ segir Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra. Æstir múslimar
gerður aðsúg að Endurreisnar-
búðum NATO í Afganistan í gær.
Íslenskur friðargæsluliði, Friðrik
Jónsson, var staddur í búðunum.
„Hann var að búa tvo bíla sem
Íslendingar eiga til flutnings til
Kabúl en við vorum með friðar-
gæsluliða í þessum búðum þar til
í nóvember. Hann var í búðunum
þegar þetta atvik gerðist en hann
slasaðist ekki. Hann er óhultur í
búðunum en liðsauki var fenginn
til að gæta búðanna.“
Sex norskir friðargæsluliðar
slösuðust í árásinni en æsinga-
mennirnir voru á þriðja hundr-
að. Hvorki friðargæsluliðarnir
norsku né heldur aðrir í þeirra
hópi beittu vopnum sínum.
Afganskir lögreglumenn hófu
aftur á móti skothríð og drápu
fjóra árásarmannanna.
Liðsaukinn sem ver búðirnar
er breskt herfylki og beita þeir
meðal annars herþotum við eft-
irlit sitt. Búðirnar eru á erfiðu
svæði, í miðbæ Meymana, en
allir aðrir úr hópi íslensku frið-
argæsluliðanna eru nú í búðum
sunnar í landinu. Þær búðir eru
rammgirt virki og því stafar
engin hætta að þeim.
-shá
ÍSLENSKIR FRIÐARGÆSLULIÐAR Í AFGANISTAN Einn níu Íslendinga sem eru í Afganistan
slapp með skrekkinn þegar æstur múgurinn gerði áhlaup á Meymana búðirnar.
Aðsúgur gerður að búðum friðargæsluliða í Meymana í Afganistan:
Íslendingur var hætt kominn
FLUG Sjötíu flugmenn ljúka störf-
um hjá flugfélaginu Air Atlanta
um þessar mundir.
Guðný Hansdóttir, fram-
kvæmdastjóri starfmannassviðs,
segir 56 þeirra flugmenn sem
starfað hafi hjá fyrirtækinu sam-
kvæmt verktakasamningum í Mið-
Austurlöndum. „Pílagrímaflugið
er árlegt tímabundið verkefni
sem Atlanta hefur sinnt á undan-
förnum árum. Þessum verkefnum
fylgir alltaf aukinn mannskapur
sem aðeins vinnur fyrir félagið
nokkra mánuði í senn.“
Guðný segir hina fjórtán einnig
á verksamningum sem ekki verði
framlengdir vegna nýrra flugvéla
félagsins sem krefjist færri flug-
manna í áhöfn. - gag
Flugfélagið Atlanta:
Flugmönnum
fækkar um 70
BREYTTAR ÁHERSLUR Flugmönnum fækkar
hjá Atlanta enda Pílagrímsfluginu lokið.
RÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍSRAEL, AP Ehud Olmert, starfandi
forsætisráðherra Ísraels, sagði
í gær að Ísraelar myndu sleppa
tökunum á landi á Vesturbakkanum
sem er aðskilið annarri samhang-
andi byggð gyðinga en halda fast í
rótgrónustu landtökubyggðirnar.
Í fyrsta sjónvarpsviðtalinu frá
því hann tók við embætti sagði
Olmert að ef Kadima-flokkur
hans sigraði í kosningunum í mars
myndi Ísrael halda yfirráðum yfir
Jerúsalem og þremur helstu land-
tökubyggðunum á Vesturbakkan-
um, ásamt hinum hernaðarlega
mikilvæga Jórdandal. ■
Ehud Olmert í viðtali:
Fleiri landtöku-
byggðir rýmdar
Vegna bilunar í Ísafoldarprent-
smiðju var Fréttablaðið í dag
prentað í prentsmiðju Morgun-
blaðsins. Dreifingu blaðsins í
einstaka hverfum kann að seinka
vegna þessa. ■
Fréttablaðið:
Bilun í
prentsmiðju
SPURNING DAGSINS
Oddur Helgi, er fylgi L-listans
mælt í ellimörkum?
Nei, það er svo mikið að það er mælt í
extra large.
Oddur Helgi Halldórsson mun leiða L-listann
en tilkynnt var í fyrradag að sá listi myndi
bjóða fram á ný á Akureyri í sveitarstjórnar-
kosningunum .