Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Franska lögreglan hyggst hætta
að nota Internet Explorer vafr-
ann og byrja að nota
Firefox. Firefox-
vafra má nálgast
ókeypis á internet-
inu og segja tals-
menn lögreglunn-
ar hann síst verri
kost en Internet
Explorer „Firefox
er öruggur vafri og
auðveldur í notkun.
Einfaldlega besti kost-
urinn,“ sagði Christian Brachet,
yfirmaður tölvumála hjá frönsku
lögreglunni.
Lögreglan skipti í fyrra um rit-
vinnsluforrit. Hún lagði Microsoft
Office-pakkanum og hóf
að nota Open Office,
sem einnig má hala
niður ókeypis gegn-
um netið. Talið er
að skiptin komi til
með að spara lög-
reglunni hundrað
og fimmtíu milljónir
króna á ári.
Líklegt þykir að
aðrar opinberar stofnan-
ir í Frakklandi fylgi í kjölfar-
ið og nýti sér ókeypis forrit í
framtíðinni. - jsk
Löggur nota Firefox
Franskar ríkisstofnanir skipta Microsoft-afurðum
út fyrir ókeypis forrit. Tasmaníu-skollum fækkar ört
vegna æxlis sem leggst á and-
lit þeirra og smitast auðveldlega
milli einstaklinga. Jafnvel er talið
að skollarnir, sem einungis lifa á
áströlsku eynni Tasmaníu, séu í
útrýmingarhættu.
Tasmaníu-skollar lifðu áður
fyrr að meðaltali í um fimm ár
en í dag er óvanalegt að sjá ein-
stakling sem er eldri en þriggja
ára. Alls eru nú um áttatíu þúsund
skollar í Tasmaníu, en þeir voru
hundrað og fjörutíu þúsund um
aldamótin. Sjúkdómurinn sem um
ræðir ræðst á andlit skollanna,
þeir afmyndast, fá graftrarsár og
kýli í andlitið og svo fer að lokum
að þeir geta ekki nærst og gefa
upp öndina. Sjúkdómurinn dregur
venjulegan einstakling til dauða á
sex mánuðum.
„Við teljum að sjúkdómurinn
smitist með biti. Tasmaníu-skollar
ærslast mikið og slást, og bíta
þá gjarnan í andlit andstæðinga
sinna. Næsta skref er að finna
bóluefni við þessari óværu,“ sagði
Anne Marie Pearse, vísindamaður
og starfsmaður heilbrigðiseftirlits
Tasmaníu. - jsk
Smitsjúkdómur herjar á Tasmaníu-skolla
Vísindamenn telja að sjúkdómurinn smitist með biti. Tasmaníu-skollum
hefur fækkað um fjörutíu prósent á örfáum árum.
SÁRÞJÁÐUR TASMANÍUSKOLLI Sjúk-
dómurinn leggst á andlit Tasmaníu-skoll-
anna og leikur þá grátt, eins og sjá má á
myndinni. Skollunum hefur fækkað um
fjörutíu prósent á örfáum árum.
Ísmaðurinn Oetzi var líklega
ófrjór, samkvæmt nýrri rannsókn
sem birt var í bandaríska vís-
indatímaritinu American Journal
of Physical Anthropology.
Rannsókn var gerð á DNA-
erfðaefni Oetzis og kom í ljós að
það innihélt efni sem bendir til
ófrjósemi. „Við getum ekki verið
alveg fullviss en það er ýmislegt
sem bendir til þess að Oetzi hafi
verið ófrjór,“ sagði Doktor Franz
Rollo sem stýrði rannsókninni.
Lík Oetzis fannst frosið í jökli
í ítölsku Ölpunum árið 1991 og
þótti hafa varðveist ótrúlega
vel. Rannsóknir hafa áður leitt í
ljós að Oetzi hafi lent í átökum
skömmu fyir dauðann. Örvarendi
var grafinn djúpt í höfuðkúpu
hans auk þess sem hann hafði
aðra áverka á höfði.
Doktor Rollo og félagar telja
að sviplegur dauði ísmannsins
kunni að tengjast ófrjósemi hans
„Við þurfum að komast að því
hvort fólk á þessum tíma hafi
gert sér grein fyrir ófrjósemi
og hvort það kunni að hafa orðið
til þess að Oetzi var útskúfað úr
samfélagi manna.“
- jsk
Ófrjór ísmaður
Hugsanlegt er að ísmaðurinn Oetzi hafi þurft að
gjalda fyrir ófrjósemi með lífi sínu.
OETZI-ÍSMAÐURINN
Opnað var fyrir viðskipti á
bandaríska NASDAQ-mark-
aðnum þann 8. febrúar 1971 og
verður markaðurinn því tuttugu
og fimm ára í dag. NASDAQ
var á sínum tíma fyrsti rafræni
verðbréfamarkaður í heimi.
NASDAQ hefur alla tíð síðan
skipað sér í fremstu röð kaup-
halla þegar kemur að tæknimál-
um og kom árið 1984 í gagnið
svokölluðu SOES-kerfi sem á að
sjá til þess að smærri pantanir
verði ekki út undan þegar mikið
er að gera á markaði.
NASDAQ-markaðurinn er í
eigu hlutafélags sem ber nafn-
ið The Nasdaq Stock Market
Incorporated og er sjálft skráð
á NASDAQ-markaðinn. Í dag
eru rúmlega þrjú þúsund og tvö
hundruð fyrirtæki á NASDAQ
og eru hvergi fleiri fyrirtæki
skráð á einn markað. Hvergi
fara heldur fram meiri viðskipti
daglega en á NASDAQ þótt sam-
anlagt markaðsvirði félaga hinn-
ar kauphallar New York-borgar,
New York Stock Exchange, sé
raunar meira.
Fjöldi vísitalna er á NASDAQ-
markaðnum, þar á meðal
NASDAQ-100, þar sem skráð
eru hundrað stærstu fyrirtæki
á markaðnum, utan fjármála-
fyrirtækja, og NASDAQ-financ-
ial sem hefur að geyma hundr-
að stærstu fjármálafyrirtæki
markaðarins. Auk þess er á
NASDAQ-markaðnum fjöldi sér-
stakra vísitalna, svo sem banka-,
líftækni-, hátækni- og iðnaðar-
vísitölur.
Sú sem allra mestu máli
skiptir er þó NASDAQ-vísitalan
sjálf. Vísitalan fór í fyrsta skipti
yfir þúsund stiga múrinn þann
17. júlí 1995 en hefur hæst farið
í 5.132 stig vorið 2000. Sú gósen-
tíð stóð þó ekki lengi því netból-
an svokallaða sprakk með látum
skömmu síðar og hafði vísitalan
rýrnað um helming fyrir árslok.
NASDAQ-vísitalan hefur
aldrei náð viðlíka hæðum og
vorið 2000 og stendur í dag í
tæpum 2.260 stigum. Forstjóri
NASDAQ-markaðarins er
Robert nokkur Greifeld og hefur
hann gegnt starfinu frá því á
vormánuðum 2003. - jsk
Opnað fyrir viðskipti á
NASDAQ-markaðnum
NASDAQ-MARKAÐURINN Í NEW
YORK Opnað var fyrir viðskipti á NASDAQ
fyrir tuttugu og fimm árum. Hvergi eru
fleiri félög skráð á einn markað.
Jón Skaftason
skrifar
Þýsk vefsíða bílaframleiðandans BMW hefur
verið sett á svartan lista hjá leitarvélinni Google
og kemur því ekki upp á leitarlistum hjá fyrir-
tækinu.
Google segir BMW
hafa brotið reglur um
leitarvélina til
að tryggja að
vefsíða fyr-
i r t æ k i s i n s ,
bmw.de, kæmi
ávallt fyrst upp
þegar þýskir not-
endur Google leit-
uðu notaðra bifreiða.
Forsvarsmenn BMW
hafa viðurkennt
að hafa notað svo-
kallaða hliðarsíðu
sem innihélt ekkert
nema vinsæl upp-
flettiorð. Notendum
var síðan beint þaðan inn á opinbera heimasíðu
BMW.
„Við vissum ekki að þetta væri bannað. Annars
var lítill sem enginn munur á þeirri heimasíðu sem
kom upp og þeirri sem fólki var beint inn á,“ sagði
Markus Sagemann, talsmaður BMW.
Google sendi frá sér yfirlýsingu þar
sem sagði að þeim sem uppvísir
yrðu að svindli yrði umsvifalaust
refsað. Hvergi kom fram hvort
eða hvenær BMW ætti
afturkvæmt af svarta
listanum.
Vefsíða BMW á svart-
an lista hjá Google
Þýski bílarisinn svindlaði á Google-leitarvélinni og var sett-
ur í straff. Forsvarsmenn BMW bera við grandleysi.
BMW KAGGI
Forsvarsmenn BMW
notuðu bellibrögð til að
beina notendum Google
inn á heimasíðu fyrir-
tækisins. Google brást
skjótt við og bannaði
þýska vefsíðu BMW af
leitarlistum sínum.
Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen hefur tilkynnt að fyrirtækið
hyggi á samstarf með bandaríska netrisanum Google. Volkswagen
mun nýta nýjasta útspil Google, Google Earth gervihnattamynda-
forritið, í bifreiðar sínar.
Google Earth sýnir notendum loftmyndir af borgum og getur
flett upp kennileitum og sýnt myndir af þeim úr lofti. Auk Google
mun hátæknifyrirtækið Nvidia Corporation koma að
hönnun búnaðarins.
Google kynnti Earth-forritið síðasta
sumar og sló það strax í gegn. Það
hefur þó farið fyrir brjóstið á stjórn-
um ríkja á borð við Indland
og Suður-Kóreu sem
telja forritið birta
upplýsingar er
varði þjóðar-
öryggi, til að
mynda loft-
myndir af
flugvöllum.
- jsk
Gervihnattarforrit
í bíla Volkswagen
VOLKSWAGEN BJALLA Þýski bílaframleiðandinn ætlar að
nýta sér tækni frá Google við framleiðslu nýrra bifreiða.
S Ö G U H O R N I Ð