Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 70
8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
Í Háskóla Íslands fara fram
kosningar til Stúdentaráðs og
Háskólaráðs 8. og 9. febrúar
næstkomandi. Þrír listar eru í
framboði: Háskólalistinn, Röskva
og Vaka. Vaka er félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta og er það elst
af þessum 3 félögum, stofnað
árið 1935. Röskva, sem er samtök
félagshyggjufólks við Háskóla
Íslands, var stofnað árið 1988.
Háskólalistinn, framboð á eigin
forsendum, var stofnað árið 2003.
Í Stúdentaráði Háskóla Íslands,
sem er málsvari háskólastúd-
enta, sitja 20 manns og á síðasta
tímabili höfðu Röskva og Vaka 9
manns hvort í ráðinu en Háskóla-
listinn 2.
Arndís Anna Gunnarsdóttir,
lögfræðinemi, er formannsefni
Háskólalistans til Stúdentaráðs í
ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hún kemur nálægt kosningum
en hún var í 1. sæti listans árið
2005. Einnig hefur hún setið í
framkvæmdastjórn Ungra jafn-
aðarmanna. Arndís segir helstu
málefni Háskólalistans vera það
að virkja Stúdentaráð og auka
trúverðugleika og sýnileika þess
út á við. Hún nefnir einnig að
hækka þurfi grunnfærslu náms-
lánanna. Að mati Arndísar þarf
að bæta aðstöðuna í skólanum
og gera hann samkeppnishæfan
sem vinnustað en segir að þetta
sé ekki hægt að laga nema með
meira fjármagni: „Númer eitt,
tvö og þrjú þarf meiri peninga.
Háskólinn er að standa sig fárán-
lega vel miðað við þann fjárhag
sem hann hefur. Hugmyndir rík-
isstjórnarinnar um skólagjöld
eru sprottnar af því að háskólann
hefur verið sveltur og neyddur út
í slíkt.“
Dagný Ósk Aradóttir er á öðru
ári í lögfræði og skipar 1. sæti
framboðslista Röskvu til Stúd-
entaráðs árið 2006. Hún hefur
ekki verið áður í framboði en
hefur verið í stjórn Röskvu í eitt
og hálft ár. Dagný hefur mikinn
áhuga á hagsmunabaráttu stúd-
enta en að hennar mati er staða
Háskólans ekki eins góð og hún
ætti að vera og því af mörgu að
taka. „Ég tel að mikið af góðu
fólki sé í Röskvu sem er tilbú-
ið að vinna vel að hagsmunum
nemenda, og er ég ein af þeim.“
Dagný segir að Röskva vilji jafn-
rétti fyrir alla til náms og gera
Stúdentaráð að því þrýstiafli sem
það á að vera og þrýsta á stjórn-
völd til að Háskólinn fái meira
fjármagn. Samkeppnismál eru
Dagnýju ofarlega í huga og vill
hún að samkeppnisstaða skól-
anna sé skoðuð. Hún vill einnig
sjá aukinn kraft í Stúdentaráð
því þá verði auðveldara að beita
sér fyrir því sem betur þarf að
fara. Dagný hvetur stúdenta til
að kynna sér málefnin og nýta
sér kosningaréttinn.
Harald Björnsson, á öðru ári
í viðskiptafræði, skipar 1. sæti
framboðslista Vöku til Stúdenta-
ráðs í ár. Þetta er í fyrsta sinn sem
Harald tekur þátt í hagsmunabar-
áttu stúdenta. Hann langar til að
bæta Háskólann og segir að ef það
tekst vel eykst verðmæti mennt-
unar Háskólans: „Eftir 10-20 ár
væri mjög gott að geta sagst vera
úr Háskóla Íslands og það væri
einhvers virði. Orðspor skólans
skiptir þar miklu máli.“ Harald
segir að einnig þurfi að beita sér
fyrir málum sem efst eru á baugi
í dag, eins og að bæta námslánin
og aðstöðu Háskólans. Einnig eigi
að bjóða upp á endurtektarpróf í
janúar og júní og birta próftöfl-
urnar í byrjun annar. Að sögn
Haralds eru einkunnarorð Vöku
framkvæmd og vill flokkurinn
framkvæma hlutina en ekki ein-
ungis benda á vandamálin og
bíða eftir því að Háskólinn leysi
þau. Harald hvetur stúdenta til
að nýta kosningarétt sinn.
-hbv
Hart barist í Háskóla Íslands
TILBÚIN Í SLAGINN Dagný Ósk Aradóttir, Harald Björnsson og Arndís Anna Gunnardóttir munu berjast í stúdentakosningunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Má spara
þér sporin?