Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 68
8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR28
menning@frettabladid.is
!
Vegna mikillar eftirspurnar
Lau. 11. feb. kl. 14
Fös. 10. Feb. Örfá sæti laus
Lau. 17. Feb. Örfá sæti laus
Fim. 23. Feb.
Fös. 3. Mars
Mind Camp
eftir Jón Atla Jónasson
Sun. 12. Feb
Sun. 19. Feb
Síðustu sýningar
Námsmenn og Vörðufélagar fá
miðann á Mind Camp á 1000 kr.
í boði Landsbankans
Ef
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
Vestmanneyjar
Þrið. 21. Feb. kl. 9, 11 og 13 Uppselt
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������������������������������������
�������������������������������� ���������������
�������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�����������������������������������������������
������������������������������������������������ �����������������������������
������������������������������������������� ���������
Næsta haust kemur út bók sem
byggð er á hinum sívinsælu hjóna-
námskeiðum sem séra Þórhallur
Heimisson hefur haldið reglulega í
Hafnarfjarðarkirkju í áratug.
Það er JPV útgáfa sem hefur
samið við Þórhall um að skrifa
bók um hjónaband og sambúð,
þar sem námskeiðin vinsælu verða
lögð til grundvallar.
Á námskeiðunum hefur hann
fjallað um sambúðina og hjóna-
bandið, hvernig hægt er að styrkja
það og gera gott betra og hvaða
leiðir er hægt að fara til að viðhalda
ástinni og gleðinni í sambandinu.
Einnig er fjallað um fjármál fjöl-
skyldunnar, framhjáhald, börnin,
kynlífið og margt fleira.
Vinnuheiti bókarinnar er 10 leiðir til að viðhalda
ástinni og hamingjunni í hjónabandi. Í hverjum kafla
er tekin fyrir ein leið til að styrkja
og efla einstaklinginn, fjölskyld-
una og sambúðina. Köflunum
fylgja verkefni og sögur frá nám-
skeiðunum sem pör geta notað til
að vinna áfram að því að styrkja
hjónaband sitt og sambúð, til að
að viðhalda ástinni og hamingj-
unni í hjónabandi.
Vegna mikillar aðsóknar hefur
reynst erfitt að koma öllum að
sem vilja sækja námskeiðin.
JPV útgáfa og séra Þórhallur
Heimisson hafa gengið frá útgáfu-
samningi um bók byggða á hjóna-
bandsnámskeiðum sr. Þórhalls.
Námskeiðin hafa verið haldin um
allt land og í Noregi, en þau fara
reglulega fram í Hafnarfjarðar-
kirkju. Á þessu vori munu um 3700 pör hafa tekið
þátt í þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Hjónanámskeiðin á bók
Kl. 12.00
Sigurbjörg Árnadóttir fjallar um
ferðaþjónustu í erindi sínu á Félags-
vísindatorgi Háskólans á Akureyri,
sem haldið er í stofu L201 á Sólborg
við Norðurslóð. Meðal annars segir
hún frá því hvernig Finnum hefur
tekist að stöðva flótta úr strjálbýli
Lapplands með því að byggja upp
hágæðaferðaþjónustu.
„Það er ástríða mín að uppgötva
fallega liti með ýmsum tæknilegum
aðferðum,“ segir Hulda Vilhjálms-
dóttir myndlistarmaður, sem um
þessar mundir sýnir verk sín í Gall-
erí Fold við Rauðarárstíg.
„Helst vil ég gera þetta eins
og vísindamaður,“ segir Hulda og
vísar til þess þegar menn áttuðu sig
á því að hægt var að nota brenni-
stein til þess að kveikja eldspýtur.
„Þá missti hann bara eitthvað í
gólfið og það kom kássa og þá kom
eldurinn.“
Hulda lauk B.A. gráðu frá Lista-
háskóla Íslands árið 2000 og hefur
verið athafnasöm í list sinni síðan.
Þetta er þrettánda einkasýning
hennar, en auk þess hefur hún tekið
þátt í fjölda samsýninga.
Á þessari sýningu sýnir hún
eingöngu málverk, enda segist hún
vera gjörsamlega heilluð af mál-
verkinu og þeim fjölmörgu mögu-
leikum sem það býður upp á.
„Samt finnst mér ég vera alveg
laus við það að mála í einhverjum
ákveðnum stíl. Mér finnst svo mik-
ilvægt að sýna hvað möguleikar
málverksins eru margir.“
Hulda opnaði málverkasýningu
sína í Baksalnum í Gallerí Fold á
laugardaginn var. Sýningin stendur
til 19. febrúar.
„Þetta er mjög stór salur og eig-
inlega flottasti salur sem ég hef
sýnt í.“ ■
HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR Sýnir málverk sín
í Gallerí Fold.
Uppgötvanir Huldu HVAÐ? HVENÆR? HVAR?FEBRÚAR
5 6 7 8 9 10 11
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Tinna Þorsteinsdóttir flytur
píanóverk eftir Georg Crumb, Greg
Davis, Giacinto Scelsi og Hilmar
Þórðarson á tónleikum Myrkra
músíkdaga í tónlistarhúsinu Ými
við Skógarhlíð.
21.00 Tónleikar á Gauknum með
Pan, Muskat, og Andrúm og
Númer Núll.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Sigurbjörg Árnadóttir
fjallar um ferðaþjónustu í erindi sínu
á Félagsvísindatorgi Háskólans á
Akureyri í stofu L201 á Sólborg við
Norðurslóð.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
> Ekki missa af ...
... óperunni Öskubusku
eftir Rossini sem sýnd er
í Íslensku óperunni með
Sesselju Kristjánsdóttur
í hlutverki Öskubusku og
Garðari Thor Cortes í hlut-
verki prinsins.
... Himnaríki, hinu óborg-
anlega leikriti Árna Ibsens
sem sýnt er í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu.
... farsanum Fullkomnu
brúðkaupi sem Leikfélag
Akureyrar sýnir við miklar
vinsældir.
... Túskildingsóperunni
eftir Bertolt Brecht og
Kurt Weill í Þjóðleikhúsinu.
Sýningum lýkur í þessum
mánuði.