Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 62
8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR22
Norræn könnun hefur leitt í ljós
að matarverð á Íslandi er 42 pró-
sentum hærra en í ESB-löndunum.
Hátt verð á mat er sláandi og gefur
til kynna að fara þurfi rækilega í
gegnum niðurstöður þessarar könn-
unar og fylgja henni eftir. Í sjálfu
sér er ekki hægt að lækka verðið
á matnum með einhverjum patent-
lausnum, eins og að ganga í ESB.
Einhverjir hafa gert því skóna en
fleira hangir á spýtunni, s.s. styrkir
sem við þurfum sjálf að greiða inn í
sambandið að því ógleymdu að lítil
þjóð eins og okkar gæti tapað yfir-
ráðum yfir helstu auðlindinni, fiski-
miðunum. Einnig hefur verið bent á
að fákeppni á matvörumarkaði gæti
verið höfuðorsakavaldur hás verð-
lags. Ein leið til þess að skoða áhrif
samþjöppunarinnar er að bera sér-
staklega saman verð á innfluttum
vörum sem ekki eru háðar neinum
innflutningstakmörkunum.
Það er mín skoðun að fara þurfi
rækilega í gegnum matvörumarkað-
inn og líta til fleiri þátta en verðlags,
s.s. stöðu innlendra framleiðenda og
minni innflytjenda gagnvart risum
á smásölumarkaðnum.
Sú höfuðmeinsemd sem einna
helst hefur verið nefnd til sögunnar
sem skýring á háu verðlagi á mat-
vælum er styrkjakerfi í landbún-
aði sem felst í innflutningshöftum
á erlendum landbúnaðarafurðum.
Í sjálfu sér getur þetta verið ein
orsökin en ég hallast að því að þetta
sé ofureinföldun, ekki verði síður
litið til þess hvernig kerfið hér inn-
anlands hefur færst til miðstýring-
ar og ýmissa tæknilegra viðskipta-
hindrana.
Landbúnaðarráðherra eykur
kostnað
Eitt dæmið er hvernig landbún-
aðarráðherra jók kröfur til slátur-
húsa og þar með kostnað þeirra.
Kröfurnar sem ráðherra gerir til
allra sláturhúsa á Íslandi eru sam-
bærilegar þeim sem ESB gerir til
sláturhúsa sem ætla að flytja kjöt
inn í sambandið. Þær kröfur eru
lítið annað en tæknilegar viðskipta-
hindranir sem auka tilkostnað við
slátrun. Minni sláturhúsum hefur
verið lokað víða um land og til þess
notaðir opinberir fjármunir. Það
var gert án þess að fyrir lægi úttekt
á því hvort þessi ríkishagræðing
skilaði nokkru.
Einn meginrökstuðningurinn
fyrir styrkjum til íslensks land-
búnaðar er að um byggðastyrki sé
að ræða. Þeim mun sorglegra er
að hugsa til þess að opinberir fjár-
munir fóru í það að loka fyrirtækj-
um á þeim landsvæðum sem standa
í mikilli varnarbaráttu. Önnur hlið
á þessu er að stóru sláturhúsin, s.s.
á Sauðárkróki, eru í auknum mæli
mönnuð með erlendu verkafólki.
Þessi röksemd virðist því falla flöt
um sjálfa sig.
Annað sem er athyglisvert er
að við virðumst vera kaþólskari en
páfinn í slátrunum. Hér eru teknar
upp ströngustu reglur um slátrun
á meðan sala á heimaslátruðu er
leyfð víða í Evrópusambandinu.
Rök sem stundum eru nefnd til
sögunnar fyrir því að leyfa ekki
sölu á heimaslátruðu kjöti eða frá
minni sláturhúsum eru annars
vegar dýraverndarsjónarmið og
hins vegar öryggi matvæla. Ég er
á því að um yfirskyn sé að ræða
þar sem í kerfinu felst að skepnur
eru fluttar landshorna á milli til
slátrunar í fjarlægum sláturhúsum
þótt hægt væri að sinna verkinu í
heimabyggð. Það telst varla góð
meðhöndlun á dýrum. Öll þessi ofs-
týring veldur því fyrst og fremst
óhagræðingu og illri meðferð á
saklausum skepnum.
Hið sama má segja um mjólk-
urframleiðsluna en þar hefur
styrktarkerfið þróast út í óefni og
má rökstyðja að stuðningurinn
hafi runnið að miklum hluta út úr
atvinnugreininni. Allar líkur eru
til þess að þetta styrkjakerfi muni
breytast á næstu árum þar sem
alþjóðasamningar munu gera ráð
fyrir að framleiðslutengdir styrkir
dragist verulega saman.
Forsætisráðherra hefur sett á
fót nefnd til þess að leita leiða til að
lækka verð á matvælum á Íslandi.
Ég efast um að neytendur geti búist
við miklu af því nefndarstarfi í
ljósi verka Framsóknarflokksins
á síðustu misserum. Nefndir eru
settar á laggirnar, s.s. um fjármál
stjórnmálaflokka, endurskoðun
sjávarútvegsstefnu og byggðamál.
Dæmin sanna hins vegar að hugur
fylgir ekki máli hjá stjórnarflokk-
unum við að taka á málum sem
blasir við að nauðsynlegt sé að taka
á. Þvert á móti er málum drepið á
dreif og treyst á gullfiskaminni
landsmanna.
Flestum ætti þó að vera orðið
ljóst að ef það á að koma t.d. fjár-
málum stjórnmálaflokka upp á
borðið þarf að skipta út spilltum
stjórnvöldum Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks, rétt eins og ef það á
að lækka matarverð þarf að koma
Framsóknarflokknum frá völdum.
Höfundur er þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. ■
Matarverðið á Íslandi
UMRÆÐAN
MATVÆLAVERÐ
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON
Forsætisráðherra hefur sett á
fót nefnd til þess að leita leiða
til að lækka verð á matvælum
á Íslandi. Ég efast um að neyt-
endur geti búist við miklu af
því nefndarstarfi í ljósi verka
Framsóknarflokksins á síðustu
misserum.
Rúmlega fjórðungi fjárlaga rík-
isins er varið til heilbrigðismála.
Nýting fjármuna, skipulag og
rekstur heilbrigðiskerfisins er
því mál sem varðar samfélagið
allt. Í mannauði heilbrigðiskerf-
isins felst dýrmæt auðlind.
Heilbrigðisþjónusta á Íslandi
er að mörgu leyti til fyrirmyndar.
Innan hennar starfar afar hæft
starfsfólk sem sótt hefur mennt-
un víða um heim. Aðgengi er
gott fyrir þá sem eru bráðveikir
eða slasaðir og árangur á mörg-
um sviðum er eftirtektarverður
og með því besta sem þekkist í
heiminum, s.s. lágt hlutfall ung-
barnadauða, hátt hlutfall þeirra
sem lifa stóráfall af, árangursrík
glasafrjóvgun, framúrskarandi
meðferð kransæðasjúklinga, og í
krabbameinslækningum.
Eftir stendur hins vegar að
þesssum árangri má fyrst og síð-
ast þakka starfsfólki heilbrigð-
iskerfisins. Stjórnvöld hafa hins
vegar veigrað sér við að móta
skýra stefnu í þessum þýðing-
armikla málaflokki. Verulega
skortir á heildrænt skipulag
þessa umfangsmikla málaflokks.
Það þarf því að ráðast í endur-
bætur og forðast ómarkvissar og
illa ígrundaðar niðurskurðartil-
lögur.
Samfylkingin vill endurbæta
heilbrigðiskerfið með það að
leiðarljósi að kerfið verði mark-
vissara og betra fyrir notend-
ur. Samfylkingin vill efla heil-
brigðisþjónustuna sem atvinnu,
þjónustu - og útflutningsgrein.
Forsenda endurbóta í heilbrigð-
isþjónustu er að markmið jafnað-
arstefnunnar um jafnan aðgang
óháð efnahag standi óhaggað.
Þegar kemur að breytingum í
heilbrigðiskerfinu þarf öryggi og
aðgengi sjúklinga ætíð að vera í
öndvegi.
Enginn stjórnmálaflokkur
hefur lagt í jafnviðamikla vinnu
í stefnumótun í heilbrigðismál-
um og Samfylkingin undanfar-
in misseri. Niðurstaða þessarar
stefnumótunar felst m.a. í að skil-
greina hlutverk heilbrigðisstofn-
ana og heilbrigðissviða ásamt
flutningi verkefna til sveitarfé-
laga eða svæðisbundinna sam-
taka þeirra, s.s. heilsugæsla,
öldrunarmál, málefni fatlaðra og
geðsjúkra.
Samfylkingin vill sömuleiðis
brjóta upp heilbrigðis- og trygg-
ingarráðuneyti í tvö ráðuneyti
og aðskilja kaupanda og seljanda
þjónustunnar. Kostnaðargreina
þarf heilbrigðisþjónustu og taka
upp blandaða fjármögnun á heil-
brigðisstofnunum þar sem fjár-
magn er látið fylgja sjúklingum
í auknum mæli. Jafnaðarmenn
vilja jafnframt nýta markaðs-
aðferðir þar sem það á við til að
tryggja hagkvæmni m.a. í rekstri
án þess að þó komi niður á grund-
vallarforsendunni um jafnt
aðgengi allra að heilbrigðisþjón-
ustu óháð efnahag.
Nauðsynlegt er að efla heilsu-
gæslu og heimahjúkrun og skoða
kosti þess að gefa fagfólki aukið
rekstrarlegt sjálfstæði ásamt því
að fjölga valkostum fyrir aldr-
aða og geðsjúka. Stórauka þarf
valfrelsi, forvarnir og endurhæf-
ingu í heilbrigðiskerfinu og koma
upp rafrænni sjúkraskrá.
Fjárfestingar í menntun og
heilbrigði eru vísasta leiðin til
þess að efla hagvöxt og hagsæld
og meðal annars af þeim ástæð-
um eru þau forgangsmál Sam-
fylkingarinnar.
Höfundur er varaformaður
Samfylkingarinnar.
Heilbrigðisþjónusta í
fremstu röð
UMRÆÐAN
HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTA
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON
Fjárfestingar í menntun og
heilbrigði eru vísasta leiðin til
þess að efla hagvöxt og hag-
sæld og meðal annars af þeim
ástæðum eru þau forgangsmál
Samfylkingarinnar.
Jens Guð skrifar:
Ég heyrði á Rás 2 brot úr Spurninga-
keppni grunnskólanna í kvöld, 6. feb.
Skemmtilegur og vel heppnaður þáttur
heyrðist mér. Í einni af mörgum áhuga-
verðum spurningum var spurt að því
í hvaða hljómsveit bassaleikarinn Bill
Wyman sé. Rétt svar var sagt vera: The
Rolling Stones.
Hvorugt liðið var með svar. Þetta kom
því ekki að sök. Hinsvegar er Bill Wyman
ekki bassaleikari The Rolling Stones. Að
vísu tók hann við bassagítarleik í The
Rolling Stones af bassaleikara sem síðar
gerði garðinn frægan með Pretty Things.
En það eru ár og dagar síðan Bill yfirgaf
The Rolling Stones.
Fyrir 2 áratugum stofnaði hann Willie
& The Poor Boys ásamt m.a. Jimmy
Page (áður gítarleikara Led Zeppelin)
og Paul Rogers (áður söngvara Free en
síðar Queen). Fyrir röskri áratylft stofn-
aði hann The Rythm Kings með m.a.
Gary Brooker (fyrrum hljómborðsleikara
Procul Harum), Peter Frampton (áður
gítarleikara Humble Pie og síðar illilega
ofmetnum sóló-poppara) og blúsgítar-
leikaranum Albert Lee.
The Rolling Stones er ein af merkustu
hljómsveitum rokksögunnar. Ég kalla
sýslumann Árnessýslu til vitnis um það.
Þeir höfðu hærri tekjur en nokkur önnur
hljómsveit af hljómleikaferð um Banda-
ríki Norður-Ameríku í fyrra. Sem segir
nokkuð um stöðu þessarar merku hljóm-
sveitar, sem þó vissulega hefur átt sín
slæmu tímabil á 44ra ára ferli. Og segir
heldur ekki alla söguna um hin mörgu
og merku afrek The Rolling Stones.
BRÉF TIL BLAÐSINS