Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 49
H A U S
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
21MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006
SIGURÐUR HELGASON er nýr stjórnarfor-
maður hugbúnaðarfyrirtækisins Calidris.
Sigurður er fyrrverandi for-
stjóri Flugleiða/FL Group og
Icelandair og stjórnarmaður
hjá IATA, alþjóðasamtökum
flugfélaga. Sigurður hefur yfir
30 ára reynslu í flugrekstri og ferðaiðn-
aði. Þar af var hann forstjóri Icelandair
um 20 ára skeið og þar með sá forstjóri
sem lengst hefur setið á forstjórastóli
nokkurs flugfélags í heiminum. Auk
Sigurðar skipa stjórn Calidris þau Guðni
B. Guðnason og Halla Tómasdóttir.
Varamenn eru Kolbeinn Arinbjarnarson
og Magnús Ingi Óskarsson.
Calidris er íslenskt fyrirtæki sem selur
sérhæfðar hugbúnaðarlausnir til flugfé-
laga á alþjóðamarkaði. Meðal viðskipta-
vina fyrirtækisins eru leiðandi flugfélög
eins og Emirates, Finnair og Icelandair.
Starfsmenn eru 30 talsins og fram-
kvæmdastjóri er Arna Harðardóttir.
Orkuveita Reykjavíkur hefur
gert samning við Og Vodafone um
afhendingu á BlackBerry-sam-
skiptatækjum. BlackBerry er
farsími sem gerir notanda einn-
ig mögulegt að skoða tölvupóst
og viðhengi skjala. BlackBerry
er einkum sniðinn að þörfum
atvinnulífsins,
þeirra sem vilja
eiga þess kost
að nálgast
upplýsingar
án tillits til
s t a ð s e t n -
ingar og
tíma, svo
sem á
f e r ð a -
l ö g u m
e ð a
u t a n
vinnu-
staðar.
Orkuveita Reykjavíkur valdi
BlackBerry Enterprise-lausn
sem tryggir notendum aðgang
að tölvupósti um póstþjón sem
er samtengdur póstþjóni fyrir-
tækisins. Með þessum hætti geta
notendur meðal annars skoðað
viðhengi og samþætt þjónustu
fyrir síma, vafra, dagbók og
aðrar upplýsingar án
vandræða.
BlackBerry er hluti
af Vodafone Mobile
Office sem er heildstætt
þjónustuframboð Og
Vodafone fyrir atvinnu-
lífið. Í upphafi verða
þrjár Mobile Office-lausn-
ir í boði hjá Og Vodafone:
BlackBerry, Vodafone
Mobile Connect-gagnakort
og Vodafone World-áskrift
í útlöndum. Fleiri lausnir í
Mobile Office eru væntanlegar
á næstu mánuðum.
Orkuveitan fær Blackberry
Stefnumótun Actavis til fyrirmyndar
ÞRJÚ FYRIRTÆKI ÖÐRUM FREMRI Í STEFNUMÓTUN Avion Group, Actavis og
Bakkavör hlutu tilnefningu til Þekkingarverðlaunanna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sagði það stórkostlegt að fylgjast með þróun og vexti fyrirtækjanna þriggja.
ACTAVIS HLAUT ÞEKKINGARVERÐLAUNIN 2006 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti Þekkingarverðlaunin 2006 og Róbert Wessman, forstjóri Actavis, veitti
þeim viðtöku.