Fréttablaðið - 08.02.2006, Qupperneq 4
4 8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
OLÍUMÁLIÐ Ríkislögmanni verður
falið að undirbúa skaðabótamál
fyrir hönd ríkissjóðs gegn olíufé-
lögunum vegna ólöglegs verðsam-
ráðs. Þetta var ákveðið á ríkis-
stjórnarfundi í gær.
„Það er verkefni lögfræðinga að
meta upphæð bótakrafna. Ákveð-
in mál voru lögð til grundvallar
í úrskurði samkeppnisyfirvalda,
eins og það hvernig verðsamráðið
snerti Vegagerðina. Við teljum að
á þeim grundvelli geti ríkið reist
skaðabótakröfur til að verja hags-
muni ríkissjóðs og almennings,“
segir Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra.
Tillaga um málshöfðun af
hálfu ríkisins er gerð sameigin-
lega af fjármála-, dómsmála- og
samgönguráðherra. „Menn eiga
að hafa rétt við í viðskiptum og
við eigum að gæta hagsmuna
ríkissjóðs í þessu tilviki og gefum
engan afslátt af því,“ segir Árni.
Reykjavíkurborg og Vest-
mannaeyjabær hafa þegar ákveðið
að gera hliðstæðar skaðabótakröf-
ur, en samanlagðar bótakröfur
þeirra tveggja geta numið vel á
annað hundrað milljónum króna.
Ljóst er því að bótakröfur ríkis-
sjóðs gætu orðið umtalsvert hærri
en sú upphæð.
„Ég fagna þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að slást í
hópinn með Vestmannaeyjabæ,
Reykjavíkurborg og Neytenda-
samtökunum og höfða mál gegn
olíufélögunum og krefja þau um
skaðabætur vegna þess tjóns sem
þau ollu almenningi með lögbrot-
um sínum,“ segir Lúðvík Berg-
vinsson, þingmaður Samfylking-
arinnar, en hann er jafnframt
forseti bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja. Hann segir samráð olíufélag-
anna eina alvarlegustu atlögu að
lífskjörum fólks sem fyrirtæki
hafi staðið fyrir og því mikilvægt
að sótt sé að þeim með úrræðum
sem lög heimila. „Ef stjórnendur
olíufélaganna sæta refsiábyrgð
og félögin greiða sektir og skaða-
bætur felast í því skýr skilaboð til
allra á markaðnum um að svona
brot verði ekki liðin. Hins vegar
vekur það athygli mína að stór
fyrirtæki eins og FL-group, ÍSAL,
Norðurál, Bílanaust, Landssím-
inn og fleiri fyrirtæki skuli ekki
hafa höfðað bótamál, en þau voru
sannarlega þolendur samráðsins,“
segir Lúðvík.
johannh@frettabladid.is
DÓMSMÁL Tuttugu og eins árs göml-
um manni er gefið að sök að hafa
ekið undir áhrifum fíkniefna og
áfengis 22. apríl á síðasta ári. Mál
hans var tekið fyrir í héraðsdómi í
gær.
Lögreglan í Kópavogi stöðvaði
manninn eftir að hann hafði keyrt
vestur Lautasmára en af ökulag-
inu að dæma var hann ófær um að
stjórna bifreiðinni. Þess er krafist
að maðurinn verði dæmdur til refs-
ingar og sviptur ökuréttindum. - mh
Ökumaður í vímu:
Ófær um að
stjórna bílnum
ÞÝSKALAND, AP Þýskur hjúkrunar-
fræðingur, Stephan Letter, viður-
kenndi fyrir dómi í gær að hann
hafi drepið sjúklinga sína er hann
var við störf á
sjúkrahúsi í Suður-
Bæjaralandi. Hins
vegar mundi hann
hvorki hversu
marga sjúklinga
hann hefði drepið,
né hvað þeir hétu.
Letter, sem er
27 ára, er ákærð-
ur fyrir dráp á 29
sjúklingum frá
febrúar 2003 til
júlí 2004. Fólkið
var á aldrinum 40 til 95 ára, þótt
flestir hafi verið eldri en 75 ára.
Verði Letter fundinn sekur getur
hann átt lífstíðarfangelsi yfir höfði
sér. Búist er við að réttarhöldunum
ljúki í maí. - smk
Þýskur hjúkrunarfræðingur:
Játar raðmorð
á sjúklingum
JÁTAR RAÐMORÐ
Stephen Letter
viðurkenndi í
gær að hafa myrt
sjúklinga sína.
Neitað um fóstureyðingu Pólsk
kona hefur kært ríkisstjórn Póllands fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu eftir að
læknar neituðu henni um fóstureyð-
ingu eftir að þeir vöruðu hana við að
meðgangan gæti skaðað sjón hennar.
Fóstureyðing er leyfð í Póllandi ef með-
gangan er talin hættuleg heilsunni.
PÓLLAND
Ríkið krefst bóta
vegna olíusamráðs
Vegagerðin, Landhelgisgæslan og lögreglan voru stórir þolendur verðsamráðs
olíufélaganna og ríkið ætlar nú að krefjast skaðabóta. Skilaboð til allra á mark-
aðnum um að svona brot verði ekki liðin, segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður.
OLÍUTANKAR Í ÖRFIRISEY Ávinningur olíufélaganna af verðsamráðinu nam nærri 6,5
milljörðum króna frá 1996 til 2001 samkvæmt skýrslu Samkeppnisráðs.
LÚÐVÍK BERGVINS-
SON ÞINGMAÐUR
SAMFYLKINGAR-
INNAR „Skilaboð
til allra á markaðn-
um um að svona
brot verða ekki
liðin.“
Gestur Jóns-
son, lögmaður
Skeljungs, vildi
ekki tjá sig efn-
islega um skaða-
bótakröfu ríkisins
þar sem hann
hafði ekki séð
hana. Hún bygg-
ist á niðurstöðu
Samkeppnisráðs
um ólögmætt
samráð olíufé-
lagana.
„Við höfum
engar kröfur
séð af neinu tagi um þetta mál. Það
kemur mér á óvart ef það er grund-
völlur fyrir málshöfðun á hendur olíu-
félögunum,“ sagði Gestur í gær en
forsvarsmenn Skeljungs vildu ekki tjá
sig um málið. - mh
Lögmaður Skeljungs:
Málshöfðunin
kemur á óvart
GESTUR JÓNS-
SON, LÖGMAÐ-
UR SKELJUNGS
Forsvarsmenn
Skeljungs neituðu
að tjá sig um máls-
höfðun ríkisins.
Kristinn Hall-
grímsson, lög-
maður Olíufé-
lagsins hf., segir
það ekki koma
á óvart að ríkið
höfði mál gegn
olíufélögunum
þar sem tíðar-
andinn í þjóðfé-
laginu hafi gefið
tilefni til þess.
„ M i ð a ð
við tíðarand-
ann í þjóðfé-
laginu kemur
þessi ákvörðun
ekki óvart en ég er ekki viss um að
ríkið muni hafa árangur sem erfiði.
Aðstæður eru allt aðrar en til dæmis
í tilviki Reykjavíkurborgar. Þar er um
fullframið brot að ræða þar sem
menn höfðu sannarlega samráð
um hvernig var staðið að útboðum.
Í tilviki ríkisins eru engu slíku til að
dreifa.“ - mh
Lögmaður Olíufélagsins:
Ríkið ekki með
sterka stöðu
KRISTINN
HALLGRÍMSSON,
LÖGMAÐUR OLÍU-
FÉLAGSINS Kristinn
segir það ekki
hafa komið sér á
óvart að ríkið höfði
málsókn.
ÁRNI MATHIESEN
FJÁRMÁLARÁÐ-
HERRA „Við
eigum að gæta
hagsmuna ríkis-
sjóðs í þessu tilviki
og gefum engan
afslátt af því.“
SÖNGVAKEPPNI Útvarpsráð styð-
ur ákvörðun útvarpsstjóra, Páls
Magnússonar, um að lag Þor-
valdar Bjarna Þorvaldssonar,
sem skemmtikrafturinn Silvía
Nótt flytur, haldi áfram í Söngva-
keppni Sjónvarpsins.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, formaður útvarpsráðs, segir
ákvörðun útvarpsstjóra endanlega
og ráðið hafi enga lagaheimild til
að grípa fram fyrir hendurnar á
honum í málinu.
„Útvarpsráð hefur skoðun á
málinu. Þar er samhljóma tónn
um að styðja útvarpstjóra,“ sagði
Gunnlaugur eftir fund ráðsins í
gær.
Kristján Hreinsson, sem samdi
tvo texta laga sem keppa til úrslita
í keppninni, lagði fram kæru til
ráðsins eftir að lagið Til hamingju
Ísland var sett á netið. Hefur hann
sagt lögin í ójafnri stöðu þar sem
aðstandendur lagsins fari ekki að
reglum keppninnar. - gag
Útvarpsráð getur ekki gripið fram fyrir hendur Páls Magnússonar:
Silvía Nótt keppir í úrslitum
ÚTVARPSRÁÐ FUNDAR Lag Silvíu Nóttar verður áfram í undankeppninni fyrir Eurovision.
Útvarpstjóri stendur hér gengt framkvæmdastjóra Sjónvarpsins. Útvarpsráð sést við upphaf
fundar í gær í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJARSKIPTI Netpóstþjónusta Og
Vodafone lá niðri í eina og hálfa
klukkustund í gær og gátu við-
skiptavinir því ekki sent tölvu-
póst frá sér þann tíma.
Samkvæmt upplýsingum Og
Vodafoneþjónustu varð bilunin
vegna fjöldasendinga á ruslpósti
erlendis frá.
Segja þeir tölvuþrjóta nota
svonefndar DoS-árásir til að úti-
loka fólk frá þjónustu á netinu.
Og Vodafone hafi brugðist skjótt
við þegar þeim varð þetta ljóst
og útilokað póstinn.
Baðst Ogvodafone afsökunar
á truflunum sendinganna á vef
sínum í gær. ■
Ruslpóstur til vandræða:
Tölvupóstur
stöðvaðist
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 7.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 62,66 62,96
Sterlingspund 109,64 110,18
Evra 75,13 75,55
Dönsk króna 10,06 10,118
Norsk króna 9,333 9,387
Sænsk króna 8,074 8,122
Japanskt jen 0,5314 0,5346
SDR 90,24 90,78
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,4127