Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 25
][
Fugla- og náttúruskoðunar-
ferð með menningarlegu ívafi
er fyrirhuguð til Búlgaríu og
Rúmeníu í vor.
„Ég get lofað að þessi ferð verð-
ur gríðarlegt veganesti þeim sem
vilja kynnast veröld fuglanna,
bæði útliti þeirra og hátterni,“
segir Jón Örn Kristleifsson sem
skipuleggur ferðina fyrir Fugla-
verndarfélag Íslands.
Hann segir hana henta öllum
náttúruunnendum enda sé farar-
stjórinn Jóhann Óli Hilmarsson
sérfróður um fugla auk þess sem
staðkunnugir menn verði með í
för.
Ferðin stendur frá 22. apríl til
6. maí. Þetta segir Jón Örn vera
besta tíma fyrir fuglaskoðun. „Við
gerum okkur vonir um að sjá um
200 tegundir fugla því þarna eru
ekki einungis varpsvæði ótal teg-
unda heldur fer óhemju mikið af
farfuglum þarna um á leið sinni
frá Asíu og Afríku til varpstöðva
í Evrópu. Kaliakra-höfðinn verð-
ur heimsóttur en hann er frægur
farfuglastaður þar sem storkar
og margt annað fiðurfé fer um
vor og haust. Svo eru fjöllin full
af spennandi fuglum, til dæmis
mismunandi gammategundum
sem eru með stærri fuglum í
Evrópu. Óshólmasvæði Dónár í
Rúmeníu er eitt mesta fuglasvæði
álfunnar. Þar eru stærstu vetrar-
stöðvar fagurgæsar í heiminum,
varpstöðvar flatnefs og margra
fleiri hegrategunda og þarna
verðum við í þrjá daga á stórum
pramma að sigla á milli með kíkja
á lofti. Gaupa, rádýr og villisvín
eru meðal spendýra deltunnar og
yfir 1.600 skordýrategundir hafa
fundist þar auk þess sem gróður-
farið er einstakt.“
Jón Örn segir ekki aðeins nátt-
úrunni gefinn gaumur í ferðinni
heldur einnig ýmsum sögulegum
minjum og nefnir meðal annars
bæinn Nessebar í Búlgaríu sem er
á heimsminjaskrá UNESCO. Þar
verður dvalið í tvær nætur.
Hvað skyldi svo ferðin kosta?
„Verðið er 138.480 frá Kaup-
mannahöfn og allt er innifalið
annað en drykkir sem eru ódýrir
á þessum slóðum,“ segir Jón Örn
að lokum. Nánari upplýsingar eru
á vefnum www.ferdaklubbur.is
gun@frettabladid.is
Fuglaskoðun við Svartahaf
Jón Örn kveðst hafa fengið áhuga á fuglunum frekar seint en nú sé hann forfallinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ferðaskrifstofurnar eru alltaf með ný tilboð á utanlands-
ferðum. Þeir sem eru með útþrá en vita ekki alveg hvert þá langar
ættu að vera duglegir að kynna sér nýjustu tilboðin.
Fjölmargir ferðamenn heimsækja
borgina Manchester ár hvert. Í
borginni er að finna fjölskrúðugt
mannlíf sem er ýmist rautt eða
ljósblátt þegar knattspyrnulið
borgarinnar, Manchester City og
Manchester United, leika sína leiki
í ensku úrvalsdeildinni. Að ganga á
leikdegi niður eftir Sir Matt Busby
Way við heimavöll Man. Utd, Old
Trafford, á leikdegi er mikil upp-
lifun. 70.000 manns koma þá saman
við völlinn og myndast eins konar
karnivalstemming knattspyrnuá-
hugamanna á götunni.
Þó svo að Manchester sé í augum
margra þekktust fyrir knatt-
spyrnuna, þá býður borgin einnig
upp á frábærar verslanir og mjög
gott skemmtanalíf.
Trafford Center er risastór
verslunarmiðstöð þar sem margt
er hægt að kaupa. Í Harvey Nichols
við Corporation Street er einnig
mikið vöruúrval. Góðar verslanir er
sömuleiðis að finna við King Street,
Market Street og High Street.
Wheel of Manchester við
Exchange Square er 60 metra hátt
ljósum prýtt parísarhjól sem býður
upp á óskert útsýni yfir Manchester.
Tilvalið er að skella sér einn hring
með hjólinu í miðborginni eftir að
hafa heimsótt hin fjölmörgu söfn
og verslanir sem Manchester býður
upp á. ■
Manchester er skemmtileg borg heim að sækja.
Lifandi og stór-
skemmtileg borg
Manchester er nýr áfangastaður hjá Icelandair. Borgin þykir frá-
bær verslunarborg og er spennandi fyrir knattspyrnuáhugamenn.
Býsvelgir eru litfagrir fuglar.
MYND/JÓHANN ÓLI HILMARSSON
Þann 17.-19. mars verður hin árlega
Telemarkhátíð haldin á Akureyri.
Dagskráin er með hefðbundnu sniði
og keppt verður í samhliðasvigi,
stökki og svo verður verðlauna-
afhending á laugardagskvöldið
og margt fleira. Þetta er í fimmta
sinn sem hátíðin er haldin á Akur-
eyri. Nánari upplýsingar má finna á
www.isalp.is þegar nær dregur. ■
Telemarkhátíð
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA