Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 30
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá áramótum
Actavis Group -3% 9%
Atorka Group -2% -3%
Bakkavör Group -1% 8%
Dagsbrún 0% -5%
Flaga Group -5% -16%
FL Group 1% 20%
Íslandsbanki 0% 16%
KB banki 3% 26%
Kögun -2% 3%
Landsbankinn -2% 10%
Marel 0% 8%
Mosaic Fashions -2% -6%
SÍF 1% 0%
Straumur 9% 30%
Össur -3% -8%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Vanskil lántakenda í bankakerfinu hafa minnkað
jafnt og þétt undanfarin misseri þrátt fyrir mikla
útlánaaukningu til einstaklinga og fyrirtækja.
Friðrik Halldórsson, framkvæmdastjóri við-
skiptabankaþjónustu KB banka, segir að marg-
þættar ástæður séu fyrir þessari þróun en tvennt
skipti sköpum. Annars vegar hafi efnahagsástand á
Íslandi verið gott og eins hjálpi til að einstaklingar
hafi endurskipulagt peningamálin sín með end-
urfjármögnun húsnæðislána á lægri vöxtum sem
óneitanlega minnki fjármagnskostnað heimilanna.
„Fólk ákvað að hætta að eyða peningum í óþarfa
kostnað eins og dráttarvexti.“
Friðrik nefnir að aukin umsvif í þjóðfélaginu
komi fyrirtækjum til góða og þau eigi þar með auð-
veldara að standa í skilum með sín lán.
Í uppgjöri Íslandsbanka á fjórða ársfjórðungi
fyrir viðskiptabankasvið á Íslandi kemur fram
að greitt hafi verið út af afskriftarreikningi 59
milljónir króna samanborið við 640 milljóna króna
framlag á sama tímabili fyrir ári síðan. Þá var lítið
útlánatap á starfsemi dótturfélaga í Noregi á síðasta
ári. Framlag á afskriftarreikning er nú skilgreint í
rekstrarreikningi sem virðisrýrnun útlána í rekstr-
arreikningi. Um síðustu áramót nam virðisrýrnun
útlána og krafna hjá Íslandsbankasamstæðunni
sem hlutfall af lánum, kröfum og ábyrgðum um
0,2 prósentum samanborið við hálft prósent í loks
árs 2004.
Sömu sögu er að segja af uppgjöri KB banka.
Þar er greinilegt að vanskil fara minnkandi og nam
virðisrýrnun útlána á árinu 2005 alls 2.450 millj-
ónum króna en 3.825 árið 2004 þrátt fyrir mikinn
vöxt útlána á síðasta ári. Virðisrýrnun sem hlutfall
af heildarútlánum nam aðeins 0,15 prósentum á
síðasta ári.
Hjá Landsbankanum var samsvarandi hlutfall
0,58 prósent og hafði lækkað úr 0,73 prósentum
árið áður. Landsbankinn lagði um 6,2 milljarða á
afskriftarreikning á síðasta ári.
VANSKIL LÆKKA Þrátt fyrir að meira sé lánað til einstaklinga og
fyrirtækja hefur útlánatap bankanna minnkað. Markaðurinn/Valli
Vanskil í bankakerfinu
minnka en útlán aukast
Lægri fjármagnskostnaður af húsnæðislánum og hagstætt
árferði skýra minni vanskil.
Ú T L Á N A T Ö P O G A F S K R I F T A R E I K N I N G A R B A N K A N N A Í Á R S L O K 2 0 0 5 *
Íslandsbanki KB banki Landsbankinn
Virðisrýrnun útlána og krafna 1,9 2,5 6,2
Virðisrýrnun útlána og krafna/lánum, kröfum og ábyrgðum 0,20% 0,15% 0,58%
Staða afskriftareiknings 8,9 13 13,1
Hlutfall útlána í afskriftarreikningi 0,76% 0,70% 1,31%
Heimild: LÍ * Allar upphæðir í milljörðum
Lífleg viðskipti hafa verið með
stofnfjárhluti í Sparisjóði vél-
stjóra að undanförnu. Yfir 30
prósent stofnfjár í SPV hafa
skipt um hendur en þetta eru
yfir þúsund bréf.
Samfara hefur gengi bréf-
anna tvöfaldast frá því snemma
í desember og hækkað um 60
prósent frá áramótum. Kannski
má því segja að SPV hafi hækk-
að mest allra bankastofnana það
sem af er ári.
Eftir því sem næst verður
komist eru kaupendur úr öllum
áttum auk MP fjárfestingar-
banka sem á tæp tíu prósent
stofnfjárbréfa. Félag í eigu
Þorsteins M. Jónssonar, sem
kenndur er við Kók, keypti stór-
an hlut af Vélstjórafélaginu á
dögunum.
Enginn miðlægur markaður
er með stofnfjárbréfin og hefur
gengið því verið mismunandi
á milli þeirra verðbréfafyrir-
tækja sem miðla bréfunum.
Mikil viðskipti voru fyrir
stuttu á genginu 46 en hæst
hafa bréfin farið í 50. Fyrstu
opinberu viðskiptin með bréf
í SPV fóru fram á genginu 24
þannig að hækkunin nemur 90-
100 prósentum.
Verðmæti eins stofnfjárhlut-
ar er nú um 1.882.320 kr. miðað
við gengið 48. Áður en viðskipti
fóru af stað fyrir frumkvæði
MP Fjárfestingarbanka áttu
stofnfjáreigendur sex hluti að
hámarki, sem eru að nafnverði
235 þúsund, og því er mark-
aðsverðmæti fyrir fullan hlut
komið í ellefu milljónir króna.
MP fjárfestingarbanki keypti
á genginu 24-27 og hefur hlut-
ur hans því tæplega tvöfald-
ast. Bankinn hefur þó einungis
atkvæðisrétt á sex bréfum.
Heildarvirði stofnfjár er
sex milljarðar miðað við hæsta
gengi sem er líklega svipað og
allt eigið fé sparisjóðsins um
síðustu áramót. - hh / eþa
MIKIL VIÐSKIPTI Í SPV Fjórðungur stofnfjár hefur skipt um hendur og gengið hækkað
hratt. Hluturinn er um 1,8 milljóna króna virði. MARKAÐURINN/STEFÁN
Þriðjungur í SPV
skiptir um hendur
Tvöföldun gengis á tveimur mánuðum. Eitt bréf
nærri tveggja milljóna króna virði.
Íslandsbanki endurgreiddi í gær
viðskiptavinum sínum sem eru í
Vild, Gullvild eða Platínum hluta
af greiddum vöxtum skuldabréfa.
Um það bil 10 þúsund viðskipta-
vinir bankans fengu endurgreidd-
ar samtals 50 milljónir króna
vegna vaxtagreiðslna árið 2005.
Endurgreiðsla vaxta tekur
til skuldabréfalána sem veitt
eru í útibúum bankans, svo sem
almennra skuldabréfalána og
óverðtryggðra og erlendra hús-
næðislána. Viðskiptavinir þurfa að
hafa staðið í skilum á árinu 2005 til
að hljóta endurgreiðslu. - hhs
50 milljónir
til bakaUppgjör Össurar sem birt var í
gær var talsvert undir vænting-
um greiningaraðila. Hagnaður á
fjórða ársfjórðungi nam 3,1 millj-
ón bandaríkjadala eða ríflega 195
milljónum króna. Meðaltalsspá
greiningardeildanna sagði til um
266 milljóna króna.
Greining Íslandsbanka hafði
spáð fyrir um 349 milljóna dala
hagnað. Miðað við spá hennar
voru tekjur félagsins ríflega 5
milljónum bandaríkjadala undir
væntingum. Í Morgunkorni
Íslandsbanka segir að í afkomu-
spá fyrirtækisins hafi verið gert
ráð fyrir að framlegð af vörusölu
yrði um 60,6 prósent en raunin
hafi verið um 59 prósent. Vegna
lægri framlegðar af vörusölu og
lægri tekna hafi EBITDA verið
7,9 milljónir dala en í afkomu-
spá hafi verið gert ráð fyrir 12
milljónum dala.
Hagnaður alls ársins 2005 nam
11,7 milljónum bandaríkjadala
eða 734,7 milljónum íslenskra
króna. Á sama tíma í fyrra nam
hagnaðurinn 15,2 milljónum
bandaríkjadala. Sala ársins nam
160,7 milljónum bandaríkjadala
sem jafngildir 10,1 milljarði
íslenskra króna, samanborið við
124,4 milljónir í fyrra.
Hlutabréf í félaginu höfðu
lækkað um 2,38 prósent um tvö-
leytið í gær. - hhs
Össur undir væntingum
JÓN SIGURÐSSON, FORSTJÓRI ÖSSUR-
AR Afkoma Össurar var talsvert undir vænt-
ingum markaðsaðila.