Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 32
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Norski útgerðarmaðurinn og
Íslandsvinurinn, Kjell Inge
Rökke, brosir breitt þessa dag-
ana, enda vex auður hans hratt
vegna þeirra hækkana sem
orðið hafa á norska markaðnum
frá áramótum.
Finansvavisen telur að hann
hafi grætt um 750 milljónir
króna á hverjum einasta við-
skiptadegi ársins eða alls um
sautján milljarða. Munar þar
mestu að Aker ASA hefur hækk-
að um fimmtung á árinu en rúm
68 prósent hlutafjár þess er í
eigu hans.
Dótturfélag Aker, Aker
Kværner, sem stendur framar-
lega í alls kyns tæknibúnaði
fyrir olíu- og orkuiðnaðinn,
hefur byrjað nýja árið á sömu
nótum og hækkað um þrettán
prósent.
Það er ótrúlegt til þess að
vita að fyrir þremur árum stóð
veldi Rökkes á brauðfótum en
hann bjargaði sér frá gjaldþroti
á elleftu stundu. - eþa
Rökke græðir á tá og fingri
KJELL INGE RÖKKE ÁSAMT GERHARD
SCHRÖDER Auður hans vex frá áramótum.
Bandaríska fjármálafyrirtækið Citigroup hefur
breytt verðmati sínu á lággjaldaflugfélögunum
easyJet og Ryanair úr „kaupa“ í „halda“. Hins
vegar er mælt með kaupum á hlutabréfum í
Lufthansa og Air France.
J.P. Morgan mælir enn með kaupum í easyJet
og gefur upp verðið 400 pens á hlut sem er nokkuð
yfir síðasta markaðsgengi.
Í skýrslu Citigroup um horfur á flugfélaga-
markaði í ár segir að búist sé við að hlutabréf
evrópskra flugfélaga, sem hækkuðu umfram
markaðinn í heild á síðasta ári, þróist í takt við
önnur hlutabréf. Sú endurskipulagninging, sem
hefur verið gerð á rekstri þeirra á undanförnum
árum, mun skila sér í bættri afkomu í ár. Óvissa
ríki þó með þróun eldsneytisverðs og stöðu á
vinnumarkaði. - eþa
LÆKKA VERÐMAT Citigroup hefur lækkað mat sitt á easyJet og
Ryanair úr „kaupa“ í „halda“.
Citigroup lækkar easyJet og Ryanair
Kjartan Gunnarsson hefur verið
tilnefndur í stjórn Carnegie
sem fulltrúi Landsbankans en
Björgólfur Thor Björgólfsson
mun ganga út úr stjórninni en
hann átti þar sæti sem fulltrúi
Burðaráss.
Sænski fjárfestingarbank-
inn skilaði mjög góðri afkomu
á fjórða ársfjórðungi síðasta
árs sem var langt yfir vænting-
um. Einkum þykir frammistaða
bankans á sviði eignastýringar
lofsverð.
Hagnaður bankans var 2,2
milljarðar króna og er afkoman
69 prósentum betri en á sama
tíma árið 2004.
Allt árið hagnaðist bankinn um
5,4 milljarða króna sem er 67 pró-
senta aukning frá 2004. Leggur
stjórn bankans til að nær allur
hagnaðurinn verði greiddur út í
arð og fær Landsbankinn, stærsti
hluthafinn, um 1,1 milljarð í sinn
hlut. - eþa
Kjartan Gunnarsson
í stjórn Carnegie
Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu
(SPMI) jókst um 220 prósent á
milli áranna 2004 og 2005. Alls
nam hagnaður sparisjóðsins um
616 milljónum króna á síðasta
ári, sem er langbesta afkoma
hans frá upphafi, og var arðsemi
eigin fjár um 42 prósent.
Hreinar vaxtatekjur voru 650
milljónir króna og hækkuðu um
þriðjung en hreinar rekstrartekj-
ur voru 1,7 milljarðar sem var 85
prósenta hækkun frá árinu 2004.
Gengishagnaður nam um hálf-
um milljarði króna og vegur þar
þungt hlutabréfaeign í Exista.
Önnur rekstrargjöld voru um
667 milljónir króna sem er 41
prósents hækkun.
SPM á sparisjóðina í Ólafsfirði
og Siglufirði sem báðir skiluðu
hagnaði á síðasta ári, þar af nam
hagnaður Siglufjarðarsjóðsins
um 86 milljónum króna.
Heildareignir samstæðunnar
voru 25 milljarðar króna í árslok
og uxu um 62 prósent á síðasta
ári. Eigið fé var um tveir millj-
arðar sem er helmingsaukning
milli ára. - eþa
GÍSLI KJARTANSSON, SPARISJÓÐS-
STJÓRI SPM Sjóðurinn þrefaldaði hagnað
á milli áranna 2004 og 2005. Arðsemi eigin
fjár var yfir 40 prósent.
Hagnaður SPM
meira en þrefaldast
HÖFUÐ DAGSBRÚNAR Árni Pétur Jónsson forstjóri Og Vodafone, Björn Sigurðsson framkvæmdastjóri Senu, Stefán Hjörleifsson fram-
kvæmdastjóri D3, Guðmundur Arason framkvæmdastjóri Securitas, Gunnar Smári Egilsson forstjóri Dagsbrúnar, Ari Edwald framkvæmda-
stjóri 365 miðla og Viðar Þorkelsson fjármálastjóri Dagsbrúnar stilltu sér upp fyrir myndatöku eftir að tilkynnt var um kaupin á Senu.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Dagsbrún greiðir heldur meira fyrir afþreyingar-
fyrirtækið Senu en Norðurljós fengu fyrir Skífuna
sumarið 2004. Skífan varð að Degi Group sem stofn-
aði Senu utan um afþreyingarreksturinn. Norðurljós
urðu að 365 sem runnu inn í Og Fjarskipti, sem
breytti síðan nafni sínu í Dagsbrún.
Samkvæmt heimildum blaðsins var Skífan seld
á um 3 milljarða króna á sínum tíma, en meta
megi söluverðið nú á 3,2 til 3,5 milljarða króna.
Dagur Group heldur eftir verslunarhlutanum sem
samanstendur af BT-verslununum, Skífunni, Sony
Center og Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Alls eru
þetta 15 verslanir með um 4 milljarða veltu á þessu
ári.
Róbert Melax, forstjóri og eigandi Dags Group,
kveðst ánægður með viðskiptin og er þess fullviss
að þau séu góð jafnt fyrir kaupanda og seljanda.
„Dagur Group er nú orðið tiltölulega hreint verslun-
arfyrirtæki og það langöflugasta á sínu sviði,“ segir
hann og telur um leið að mikil tækifæri hljóti að
felast í því fyrir Dagsbrún að fá Senu yfir til sín.
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar,
segir vissulega rétt að Norðurljós hafi átt Skífuna,
en margt hafi breyst frá þeim tíma. Hann segir
Skífuna á sínum tíma fyrst og fremst hafa verið
selda vegna athugasemda samkeppnisyfirvalda um
að í rekstrinum færi saman heildsala og smásala
á tónlist og tölvuleikjum. „Gerð var krafa um
aðgreiningu þarna á milli, auk þess sem athuga-
semd var gerð við að hluthafar í Norðurljósum
áttu ítök í öðrum verslunarfyrirtækjum sem seldu
tónlist,“ segir hann og kveðst fullviss um að ekki
verði gerðar athugasemdir við kaupin nú. „Engar
athugasemdir voru gerðar við að afþreyingarsviðið,
sem nú heitir Sena og fjölmiðlahlutinn væru undir
sama félagi, heldur snerust athugasemdirnar fyrst
og fremst um verslunarhlutann. Og með því að við
kaupum afþreyingarsviðið út og þar með heild-
söluna, er loksins uppfyllt að fullu það sem lesa
mátti úr úrskurði samkeppnisyfirvalda. Heildsala
tónlistar og tölvuleikja hefur verið aðgreind frá
smásölunni.“
Gunnar Smári segir að innan samstæðunnar sé
að finna víðtæka reynslu í samskiptum við jafnt
stóra erlenda birgja og innlenda framleiðendur.
„Og í því er viss styrkur að geta sótt í reynslu hvers
annars,” segir hann.
Verslunar- og heildsöluhluti
Skífunnar loksins aðskilinn
Dagsbrún hefur keypt Senu, hluta þess sem áður hét Skífan og
Norðurljós seldu. Sena er heldur dýrari en Skífan var öll áður.