Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 34
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR6
E R L E N T
������������
������������������������������ ����������������������
���
�����
����
�����������������������������
����������� � ���������
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Osló er dýrasta borg heims sam-
kvæmt árlegri könnun Economist
Intelligence Unit (EIU). Velti hún
þar með Tókýó, sem verið hafði
dýrust undanfarin þrjátíu ár, úr
sessi. Tókýó vermdi þó annað
sætið á undan Reykjavík sem
varð í því þriðja. Tískuháborgin
París deildi fjórða sætinu með
japönsku borginni Osaka.
„Það kemur ekki á óvart að
Osló tekur toppsætið af Tókýó.
Gríðarlegur vöxtur hefur verið
í Noregi á meðan japanska jenið
hefur veikst og verðhjöðnun ríkt
í landinu,“ sagði í skýrslu EIU.
Könnunin náði til hundrað og
þrjátíu borga. Athygli vakti að
Teheran, höfuðborg Írans, var
borga ódýrust en hún vermdi
toppsætið í könnun EIU fyrir
fjórtán árum. -jsk
Osló dýrasta borgin
Tókýó velt úr sessi eftir fjórtán ára setu.
Reykjavík í þriðja sæti.
Forsvarsmenn mjólkurrisans
Arla segja birtingu skopmynda
af Múhameð spámanni í Jótlands-
póstinum hafa kostað fyrirtækið
allt að sex milljarða íslenskra
króna. Arla er í eigu danskra og
sænskra aðila.
Arla hefur víðtæka starfsemi
í Mið-Austurlöndum en hefur
nú sagt upp hundrað og sjötíu
starfsmönnum þar sem nánast
ekkert er keypt af varningi frá
fyrirtækinu.
Skopmyndirnar voru fyrst
birtar í Jótlandspóstinum í sept-
ember á síðasta ári og síðar end-
urprentaðar í fjölda evrópskra
dagblaða. Birtingin fór heldur
illa í múslíma; mótmælagöngur
hafa verið haldnar víðs vegar um
Evrópu og ráðist hefur verið á
norræn sendiráð í múslimalönd-
um.
„Það tók okkur fjörutíu ár
að byggja upp fyrirtæki í Mið-
Austurlöndum og tuttugu ár í Sádi-
Arabíu. Öll þessi vinna er farin
í vaskinn,“ sagði Louis Honore,
talsmaður Arla, og bætti við:
„Við höfum gert allt sem í okkar
valdi stendur. Birtum meira að
segja heilsíðuauglýsingar í helstu
dagblöðum þar sem við skýrðum
frá okkar hlið á málinu. En allt
kemur fyrir ekki, við töpum einni
milljón punda á dag.“
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Dana, segir stjórn-
völd í landinu ekki geta beðist
afsökunar fyrir hönd frjáls og
óháðs fjölmiðils. Hann hefur þó
reynt að miðla málum og meðal
annars hitt sjötíu og sex erlenda
sendifulltrúa undanfarna viku.
- jsk
Tapa einni milljón
punda á dag
Mjólkurfyrirtækið Arla hefur tapað sex milljörðum króna
eftir birtingu skopmynda af Múhameð spámanni. Múslimar
hunsa norrænar neysluvörur.
EVRÓPA ER MEINIÐ, ÍSLAM ER SVARIÐ Birtingu skopmynda af Múhameð spámanni
hefur verið mótmælt víða um heim. Norrænn varningur á undir högg að sækja í múslima-
löndum og hafa mörg fyrirtæki orðið illa úti.
Félögin í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu keyptu nýja leik-
menn fyrir sjötíu og sjö milljarða
íslenskra króna í janúar. Er það
rúmlega fjörutíu prósenta aukn-
ing frá fyrra ári.
Knattspyrnulið eyða að jafnaði
háum fjárhæðum í janúar en þá
opnast svokallaður félagaskipta-
gluggi að nýju eftir að lokað
hefur verið fyrir félagaskipti frá
því að tímabilið hófst.
Stórliðin Manchester
United og Arsenal eyddu
mest, United tæpum 1,4
milljarði og Arsenal litlu
minna. Athygli vakti
að meistaralið Chelsea
eyddi ekki krónu en Jose
Mourinho framkvæmda-
stjóri hefur að því er
virðist ótakmarkaðan
aðgang að botnlausum
vösum rússneska auðjöf-
ursins Romans Abrahamovich.
Þrátt fyrir mikil fjárútlát í
janúar telja sérfræðingar að liðin
haldi fastar um pyngjuna en áður
„Ég held að þessi miklu fjárút-
lát hafi verið undan-
tekningin sem sann-
ar regluna. Flest
liðin, að Chelsea
frátöldu, fara
varlegar en
áður. Við teljum
að sú þróun muni
halda áfram og
minna fé verði
varið í leik-
m a n n a k a u p , “
sagði Dan Jones
hjá Deloitte &
Touche. - jsk
Meteyðsla í janúar
Ensku úrvalsdeildarliðin keyptu fjölda leik-
manna í janúar. Sérfræðingar segja liðin þó
halda fastar um pyngjuna en áður.
Virði bréfa í indversku kauphöllinni hefur
aukist gríðarlega undanfarið og fór BSE-
vísitalan í fyrsta skipti yfir tíu þúsund stig
á mánudag. Vísitalan komst hæst í tæp tíu
þúsund og þrjú stig en endaði daginn í níu
þúsund níu hundruð og áttatíu stigum.
Rúmlega fjörutíu prósenta ávöxtun
varð að meðaltali í Kauphöllinni árið 2005.
Sérfræðingar sjá ekkert í spilunum sem
bendir til þess að að hægjast fari á og hafa
spáð því að BSE-vísitalan fari yfir tólf þús-
und stig á árinu.
Átta prósenta hagvöxtur hefur verið
að meðaltali í landinu undanfarin ár og
hefur erlendum fjárfesta fjölgað eftir því.
Útlendingar keyptu indversk verðbréf fyrir
um 700 milljarða íslenskra króna á síðasta
ári. „Þetta undirstrikar enn og aftur hversu
vel okkur hefur gengið. Það er engin tilviljun
að erlendir fjárfestar telja Indland vænlegan
kost,“ sagði Jayesh Sheth, forstjóri ráðgjaf-
arfyrirtækisins Kantilal Chaganlal. - jsk
Góð ávöxtun í Indlandi
Indverska BSE-vísitalan er í hæstu hæðum. Útlendingar keyptu indversk
verðbréf fyrir 700 milljarða á síðasta ári.
FRÁ NÝJU-DELÍ Virði bréfa í ind-
versku kauphöllinni jókst um fjörutíu
prósent á síðasta ári. Ekkert lát virðist
ætla að verða á hækkunum.
T Í U D Ý R U S T U
B O R G I R H E I M S
1. Osló
2. Tókýó
3. Reykjavík
4-5. Osaka
4-5. París
6. Kaupmannahöfn
7. Lundúnir
8. Zürich
9. Genf
10. Helsinki
Hagnaður breska lággjaldaflug-
félagsins Ryanair nam tæpum
2,8 milljörðum íslenskra króna á
síðasta fjórðungi ársins 2005. Er
það rúmlega hundrað og fimmtíu
m i l l j - ónum krónum meira
en á sama tímabili í
fyrra.
í
tilkynningu frá Ryanair kom
fram að fjöldi farþega hefði auk-
ist um tuttugu og sex prósent frá
fyrra ári og að ef ekki hefði verið
fyrir verðhækkanir á eldsneyti
hefði hagnaður fyrirtækisins
verið mun meiri.
Ryanair flýgur til þrjú hund-
rað og þriggja áfangastaða og
hyggst bæta við átján í apríl á
þessu ári.
- jsk
Ryanair hagnast
ELDSNEYTIÐ DÝRT
Ryanair skilaði methagnaði á síðasta
fjórðungi ársins 2005. Forsvarsmenn
fyrirtækisins segja hátt eldsneytisverð
valda því að hagnaðurinn varð ekki
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Við leggjum áherslu á
langtímasamband og
sérhæfðar lausnir sem taka
mið af sérstökum
aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
Vildarþjónusta fyrirtækja
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Hærri innlánsvextir
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu