Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 38
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR10
F R É T T A S K Ý R I N G
Íslensku bankarnir segja gagnrýni erlend-
ra greiningarfyrirtækja á stöðu þeirra
að stórum hluta byggða á misskilningi og
ætla að efla til þeirra upplýsingagjöf. Þeir
segja greiningarfyrirtækin rugla fram-
virkum samningum saman við eign bank-
anna. Þá benda bankarnir á að afkoma
þeirra sé góð burtséð frá gengishagnaði,
jafnvel mun betri en gerist og gengur hjá
grónum bönkum á meginlandi Evrópu. Þá
segja bankarnir að með auknum umsvif-
um erlendis séu þeir síður háðir sveifl-
um á hlutabréfamarkaði hér. Fram kom í
máli Björgólfur Guðmundsson, formanns
bankastjórnar Landsbankans, á aðalfundi
hans um helgina, að um 35 prósent af
heildarútlánum bankans séu til erlendra
aðila og stór hluti innlendra lána sé til
fyrirtækja sem hafi nær allar tekjur í
erlendum myntum.
SKÝRSLUR VEKJA SPURNINGAR
Skýrslur greiningarfyrirtækjanna tveggja,
Barklay’s Capital Research og Credit
Sights, sem komu út rétt fyrir mánaða-
mót, urðu hins vegar til að vekja nokkurn
óróa og spurningar í hugum margra. Fyrir
helgi var til að mynda lögð fram á Alþingi
fyrirspurn til viðskiptaráðherra þar sem
kallað var eftir áliti Fjármálaeftirlitsins
á skýrslum greiningarfyrirtækjanna.
Í skýrslunum er meðal annars dregið í
efa lánshæfismat virtra matsfyrirtækja
á bönkunum, en þau fá mjög víðtækan
aðgang að gögnum bankanna við sínar
úttektir. Það veikir óneitanlega gagnrýni
greiningarfyrirtækjanna tveggja að hún
virðist, að minnsta kosti að hluta, byggð
á misskilningi. Engu að síður geta áhrif
neikvæðra skrifa um bankana verið nokk-
ur þar sem þau geta haft áhrif á viðhorf
fjárfesta til kaupa í skuldabréfum bank-
anna, en þeir fjármagna starfsemi sína að
stærstum hluta með útgáfu slíkra bréfa á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
„Alveg klárt er að um bankana gildir
ekki að illt umtal sé betra en ekkert,“
segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri í
Landsbankanum. Hann segir bankana helst
geta brugðist við þeirri tegund af gagnrýni
sem sett var fram í lok síðasta mánað-
ar í skýrslum greiningarfyrirtækjanna
Barclays Capital og Credit Sights með því
að veita skýrari og betri upplýsingar á sem
flestum stöðum. „Á mánudaginn vorum við
með fund í London þar sem mættir voru
tæplega 300 manns. Þar fórum við yfir
afkomu bankans og á þetta eflaust eftir að
skila sér á næstunni í betri upplýsingum
gagnvart markaðnum.“
Hann segir ljóst að stór hluti gagnrýn-
innar byggi á hreinum og klárum misskiln-
ingi sem þurfi að leiðrétta og vísar alfarið
á bug orðum um óheilbrigð eignatengsl.
„Eitt sem okkur hefur dottið í hug og erum
að vinna að núna er að stofna sérstakt félag
um framvirka samninga. Hingað til hefur
þetta allt verið skráð á Landsbankann, en
fræðilegur möguleiki væri að vera með
eitthvert millifélag með öðru heiti til að
koma í veg fyrir misskilning,“ segir hann
og nefnir sem dæmi að Landsbankinn í
Lúxemborg eigi ekki eitt einasta bréf,
heldur sé þar um að ræða vörslureikninga
fyrir viðskiptavini, sem að sama skapi
mætti stofna sérstakt félag um. Með þessu
segir hann hægt að eyða misskilningi um
að bréfin væru áhætta eða eign bankans.
GRUNNAFKOMAN ER GÓÐ
Sigurjón segir greiningarfyrirtækin
gjarnan staldra við hversu stór hluti
starfsemi bankanna sé fjármagnað-
ur með útgáfu skuldabréfa á erlendum
mörkuðum. „Skýringin á því er einföld.
Þjóðin er ung og hér hafa ekki safnast
upp stórkostlegir sjóðir. Því hefur alltaf
þurft að afla erlends lánsfjármagns til að
byggja upp innlent atvinnulíf. Þá er búið
byggja hér upp þannig kerfi að þunginn
af sparnaði einstaklinga er með skipuleg-
um hætti færður inn í lífeyrissjóðakerfið,
ekki bankana,“ segir hann og bætir við
að til viðbótar hafi stuðningur bankanna
við útrás fyrirtækja og útlán á erlendum
mörkuðum kallað á meira fjármagn sem
skýri aukningu undanfarinna ára.
Eins segir Sigurjón þá áherslu sem
greiningarfyrirtækin leggja á hlut geng-
ishagnaðar bankanna skjóta skökku við.
„Auðvitað er rétt að ekki er hægt að
gera ráð fyrir slíkum gengishagnaði á
hverju ári og að hlutabréfaverð hækki
alltaf. Enda erum við búnir að setja
inn í skýringar hjá okkur að reikna inn
svokallaða grunnafkomu, en þar sést und-
irliggjandi afkoma bankans óháð öllum
gengishagnaði.“ Þá segir hann ekkert
fyrirsjáanlegt um niðursveiflu hér auk
þess sem stoðir íslenska bankakerfisins
hafi breyst þannig að sífellt stærri hluti
sé óháður íslenskum aðstæðum. „Sama
á við um öll stærstu íslensku fyrirtækin,
sem auðvitað eru stærstu viðskiptavinir
bankanna.“
Ástæða þess hversu greiningarfyrir-
tækjunum er starsýnt á gengishagnað
bankanna kann að vera að þeir eiga meira
af hlutabréfum en algengt er um aðra
banka á Norðurlöndum. Sigurjón segir þó
horfa öðruvísi við ef miðað er við þýska
eða bandaríska banka. „Að maður tali nú
ekki um stærri fjárfestingarbanka. Ef
Landsbankinn er tekinn sem dæmi liggur
þetta á bilinu fjögur til fimm prósent af
heildareignum. Um áramót áttum við um
það bil 60 milljarða í hlutabréfum af 1.400
milljarða efnahag, það eru rétt rúmlega
fjögur prósent.“
DRIFKRAFTUR BREYTINGA
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslands-
banka, segist hafa átt fund með fulltrúa
Credit Sights og hefur trú á því að tekist
hafi að koma á framfæri leiðréttingu á
ákveðnum rangfærslum í skýrslu fyrir-
tækisins um bankana. Líkt og Sigurjón
í Landsbankanum segir Bjarni beinlínis
rangt að um svokallað krosseignarhald
sé að ræða í tilviki Íslandsbanka, enda
sé verið að rugla saman eignarhaldi og
framvirkum samningum. „Bankinn á ekki
í sínum stærstu hluthöfum,“ segir hann.
Á mánudag hélt bankinn svo stóran fund
með fjárfestum í London til að kynna
afkomuna og taldi Bjarni að sá fundur
gæti hjálpað til með umræðu um íslensku
bankana. Sama dag hélt Landsbankinn
sambærilegan fund.
Bjarni segir ljóst að áhugi greining-
arfyrirtækja á íslensku bönkunum sé
meiri en nokkru sinni. „Íslensku bank-
arnir þurfa því að sinna þessari upp-
lýsingagjöf mun meira en áður, enda
sumir hlutir gerðir öðruvísi á Íslandi en
annars staðar og það þarf að útskýra.“ Þá
segir Bjarni einnig verið að skoða hluti
á borð við að stofna sérstakt félag til að
halda utan um framvirka samninga bank-
ans. „Íslenska bankakerfið hefur verið
drifkraftur breytinga í Norður-Evrópu
og hefur í rauninni umhverfst á mjög
stuttum tíma,“ segir hann og undrast því
ekki þótt menn staldri við þessa þróun í
greiningarfyrirtækjum.
Bjarni segir Íslandsbanka alla tíð hafa
lagt mikla áherslu á dreifingu í fjár-
mögnun bankans, að hægt sé að sækja
fjármagn til margra landa og efnahags-
svæða og ólíkra tegunda fjárfesta. „Á
síðasta ári náðum við í 6.000 milljónir
evra á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í
yfir 200 útgáfum, þannig að sú starfsemi
er orðin gríðarlega umfangsmikil. Og
að sama skapi hefur staðan batnað mjög
mikið. Árið 1998 þegar Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins fór í sína fyrstu alþjóða-
fjármögnun var 100 prósent af áhættunni
gagnvart Íslandi og þar af um 55 pró-
sent gagnvart íslenskum sjávarútvegi.“
Bjarni segir engu að síður ljóst að bankar
hér reiði sig í meira mæli á alþjóðlega
skuldabréfamarkaðinn en bankar í öðrum
löndum Evrópu. „Íslenski markaðurinn
er svo lítill og býður ekki upp á annað en
krónufjármögnun, en af okkar efnahags-
reikningi eru ekki nema um 15 prósent
sem fjármögnuð eru í krónum.“
FJÖR Í FJÁRMÁLAGEIRA Útrás bank-
anna hefur vakið athygli og aukið áhuga á
þeim hjá greiningarfyrirtækjum erlendis.
Það kallar um leið á aukna upplýsingagjöf
bankanna til þeirra. Myndin er tekin í verð-
bréfafyrirtækinu Teather & Greenwood í
London en Landsbankinn keypti fyrirtækið
í byrjun síðasta árs. Fréttablaðið/Teitur
Bankarnir segja gagnrýni byggða á misskilningi
Bæði Íslandsbanki og Landsbanki funduðu með fjárfestum í Bretlandi á mánudag. Íslensku bank-
arnir reyna að bregðast við gagnrýni greiningarfyrirtækja á rekstur þeirra. Óli Kristján Ármannsson
greinir frá viðbrögðum bankanna, sem búast við að aukin upplýsingagjöf skili brátt árangri.