Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 40
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
Framgangi Kína og Indlands undanfarin ár
hefur verið líkt við ris Þýskalands á 19. öld og
Bandaríkjanna á 20. öldinni. Það er því ekki
að undra að allra augu beinist að risunum
tveimur í austri enda hefðu slík valdaskipti
ófyrirséðar afleiðingar fyrir heimsbyggð-
ina alla. Hagkerfi beggja landa vaxa með
ógnarhraða. Kína náði nærri 10 prósenta
hagvexti á síðasta ári og sölsaði undir sig
sæti Bretlands sem fjórða stærsta hagkerfi
heims. Áætlað er að hagvöxtur Indlands hafi
verið á milli 7,5 til 8 prósent árið 2005. Það er
því ekki um að ræða smávægilegar breyting-
ar á löndunum tveim sem hafa að geyma tvo
fimmtu hluta alls mannkyns.
AÐSTÆÐUR LANDANNA UM MARGT LÍKAR
Margt er líkt með Kína og Indlandi. Mjög
miklar andstæður ríkja í báðum löndum.
Tíundi hluti Indverja býr við samsvarandi
kjör og Íslendingar og þessi millistétt fer ört
stækkandi. Eftir sem áður er
stór hluti Indverja bláfátæk-
ur en hlutföllin milli milli-
stéttarinnar og hinna er að
breytast hratt. Sama er uppi á
teningnum í Kína. Bæði lönd-
in reiða sig að miklu leyti
á landbúnað og hafa tekið
stór skref í áttina að minnka
fátækt eftir að hafa farið rót-
tækar leiðir að efnahagsum-
bótum. Mikill fólksfjöldi er
vandamál beggja þjóða sem
skapar gríðarlega þörf fyrir
náttúruauðlindir á borð við
land, vatn og orku. Bæði ríkin
að finna leiðir til að stemma
stigu við umhverfisvandamálum. Þar að auki
standa þau frammi fyrir ytri deilum, Kína
við Bandaríkin vegna Taívans og Indland við
Pakistan vegna Kasmír. Að auki líta ríkin
hvort til annars, bæði sem fyrirmynd og ógn
en ekki síst tækifæri sem hefur að mestu
leyti ekki verið nýtt.
HAMLAR LÝÐRÆÐIÐ FRAMÞRÓUN?
Við fyrstu sýn virðast aðstæður Kína og
Indlands svipaðar. Eitt atriði sker þó ræki-
lega á milli þeirra – Indland býr við lýðræði
og hefur gert frá sjálfstæðistökunni 1947 en
Kína er einræðisríki. Þá sem fylgst hafa með
þróuninni í Kína og Indlandi greinir á um
hvort skorturinn á lýðræði standi Kínverjum
fyrir þrifum eða ekki. Þorvaldur Gylfason,
prófessor við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla Íslands, sem
hefur skoðað málefni landanna,
tilheyrir fyrri hópnum. Honum
þykir lyginni líkast hversu langt Kína
hefur komist með núverandi fyrirkomulagi.
Hann telur að Kínverjum sé ekki stætt á því
að halda sínu striki eins og hefur verið. Þeir
verði annaðhvort að hægja á efnahagsumbót-
unum eða veita fólki færi á að koma komm-
únistaflokkinn frá völdum í kosningum. Þeir
verði að veita fólki færi á samkeppni á
stjórnmálavettvangi eins og þeim þykir núna
sjálfsagt að það sé samkeppni í efnahags-
lífinu. Það er þó spurning hvað þeim tekst
lengi að halda fólki við réttindaskortinn með
því að láta tekjur þess aukast frá ári til árs.
Þorvaldur telur að til langs tíma litið verði
þær andstæður sem nú eru við lýði í þjóð-
félaginu ósættanlegar. Spurningin sé bara
hvað orðin „til langs tíma litið“ þýði
og það viti enginn. „Ég er jafnviss
um það eins og ég sit hér að eftir
25 ár verði annaðhvort kommún-
istaflokkurinn farinn frá völdum
í Kína eða þeir hafa þurft að
hægja á umbótunum,“
segir Þorvaldur. Á þessu
byggist sú skoðun hans
að framtíðin sé í raun
bjartari fyrir Indland
þrátt fyrir að Kína hafi
sýnt meiri framþróun
síðustu ár.
KÍNVERJAR LENGRA Á
VEG KOMNIR
Þegar frá er talið að
Indverjar búa við lýð-
ræði en Kínverjar ekki
vakna spurningar um
samanburð að ýmsu öðru
leyti. Sá samanburður er
Kínverjum í vil nánast
hvar sem fæti ber niður.
Kínverjar eru lengra
komnir en Indverjar
hvort sem að því kemur
að útrýma ólæsi eða að
opna efnahagslífið fyrir
erlendri samkeppni og laða að erlent fjár-
magn. Framleiðsla á mann var þriðjungi
FORSÆTISRÁÐHERRA KÍNA, WEN
JIABAO, OG FORSÆTISRÁÐHERRA
INDLANDS, MANMOHAN SINGH Myndin
er tekin við undirskrift samkomulags milli
Kína og Indlands í apríl í fyrra. Því var ætlað
að leysa landamæradeilu landanna sem
staðið hefur yfir í meira en fjóra áratugi.
Samningurinn var liður í að auka efnahagslega
samvinnu asísku risanna en tækifæri þeirra
liggja ekki síst í auknum viðskiptum sín á milli.
Ekki bara sólin sem rís í austri
Kína og Indland og yfirvofandi heimsyfirráð þeirra voru mál málanna á heimsviðskiptaþingi World Economic Forum í Davos í lok síðasta mán-
aðar. Í nýlegu áliti fjárfestingarbankans Goldman Sachs er áætlað að árið 2035 verði Kína komið fram úr Bandaríkjunum og Indland fram úr
Japan hvað varðar stærð hagkerfisins. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði framgang og framtíðarhorfur risanna tveggja.
5.000
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1975 1978 1981 1984 1987 1990 1993 1996 1999 2002
* í dollurum á verðlagi 2000
Kína
Indland
H A G V Ö X T U R Á M A N N 1 9 7 5 - 2 0 0 3 *
Töluverð reynsla hefur skapast hér á landi af við-
skiptum við Kína og hafa þau aukist ár frá ári frá
því að markaðsumbætur hófust þar um 1974. Árið
2004 stóð Kína fyrir 3,8 prósentum af öllum inn-
flutningi til landsins og 0,6 prósent af útflutningi.
Textílvörurnar eru langstærstur hluti af inn-
flutningi frá Kína til Indlands. Þegar kemur að
útflutningi skipar sjávarútvegurinn veigamestan
sess. Mörg íslensk sjávarútvegsfyrirtæki stunda
viðskipti í Kína og hafa yfir að ráða háþróuðum
verksmiðjum þar. Samgöngufyrirtækin hafa einn-
ig komið sér fyrir í Kína, til að mynda hafa bæði
Eimskip og Samskip skrifstofur þar og Icelandair
leigir flugvélar þangað. Íslandsbanki opnaði nýlega
skrifstofu í Shanghai í því miði að þjónusta íslensk
og norsk fyrirtæki sem hafa hafið starfsemi í Kína.
För íslenskrar sendinefndar á vegum
Útflutningsráðs, Samtaka fiskvinnslustöðva og
Kínversk-íslenska viðskiptaráðsins til Kína árið
2003 sýndi hversu miklar væntingar íslenskt við-
skiptalíf hefur til kínverska markaðarins. Fjölmörg
íslensk fyrirtæki slógust með í þá í för og til góðra
viðskiptasambanda var stofnað.
Kínverjar hafa alla tíð sýnt viðskiptum við aðrar
þjóðir áhuga. Þeir reka til að mynda allstórt sendi-
ráð á Íslandi sem er eitt af því sem gerir aðganginn
greiðari fyrir þá sem hyggja á viðskipti við Kína.
Ísland og Kína
K Í N A
Innflutningur
Ár Millj.kr. (fob) % af heild
2002 6112 2,9%
2003 7719 3,6%
2004 9806 3,8%
Útflutningur
Ár Millj.kr. (fob) % af heild
2002 1310 0,6%
2003 1327 0,7%
2004 1128 0,6%
Við fyrstu sýn virðast aðstæður
Kína og Indlands svipaðar. Eitt
atriði sker þó rækilega á milli
þeirra – Indland býr við lýðræði
og hefur gert frá sjálfstæðistök-
unni 1947 en Kína er einræðisríki.