Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 41
MARKAÐURINN
meiri í Indlandi en í
Kína árið 1950 en síðan
þá hefur Kína vaxið
örar en Indland. Verg
landsframleiðsla á
mann í Kína óx um 5,7
prósent á ári að jafn-
aði á móti 2,5 prósent-
um í Indlandi á tíma-
bilinu 1960 til 2003.
Framleiðsla á mann
ellefufaldaðist í Kína
á þessu 43 ára tíma-
bili en þrefaldaðist á
Indlandi á sama tíma.
Stór ástæða þess að
Kínverjar eru lengra á
veg komnir með opnun
hagkerfisins er að
umbætur í Kína hafa
staðið tvöfalt lengur
en í Indlandi. Indland
hóf efnahagsumbætur
sínar um svipað leyti
og múrarnir féllu í Austur-Evrópu. Þangað
höfðu Indverjar sótt sína fyrirmynd um
áætlunarbúskap. Það var óáran í indversku
efnahagslífi og stjórnvöld sáu að nú þurfti að
söðla um en þau gerðu það með hægð, ekki
með stórum stökkum. Kínverjar byrjuðu hins
vegar að opna sitt hagkerfi um 1978 og hafa
því talsvert forskot á Indverja.
INDVERJAR VERÐA AÐ HEMJA FÓLKSFJÖLGUN
Eitt af því sem hefur stutt við umbætur í
Kína er að vel hefur tekist með að hemja
fólksfjölgun. Nú eru þar tvær barnsfæðingar
á hverja fjölskyldu að meðaltali. Ástæða þess
hversu vel hefur gengið þar er vafalítið sú
að stjórnvöld geta gefið þegnum sínum slík
fyrirmæli. Yfirvöld í Indlandi hafa ekkert
slíkt boðvald yfir fjölskyldulífinu í dreifðum
byggðum Indlands.
Fólksfjöldaspár benda til þess að Indland
fari fram úr Kína á næstu fimmtán til tut-
tugu árum. Indverskar konur eiga ennþá þrjú
börn að jafnaði á meðan kínverskar konur
eignast tvö. „Færri börn í hverju fjölskyldu
þýðir að hægt er að gera betur við hvert
barn. Þetta kalla hagfræðingar á köldu máli
„fjárfestingu í mannauði“. Þegar börnin eru
færri er hægt að leggja meiri rækt við þau
og þá gerbreytast skilyrði þeirra til þess að
hasla sér völl í atvinnugreinum
þar sem þau eiga til dæmis kost
á vel launuðum störfum,“ segir
Þorvaldur sem segir þetta eitt
brýnasta verkefni sem Indverjar
standa frammi fyrir.
FRAMTÍÐARHORFUR INDLANDS
GÓÐAR
Þorvaldur er bjartsýnn á fram-
tíðarhorfur bæði Indlands og
Kína. Hann er þó ívið bjartsýnni
á framgang Indlands og segir
ástæður þess að í Kína eru uppi
mjög alvarleg vandamál sem geti
staðið Kínverjum fyrir þrifum.
Ber þar fyrst að nefna að einkaframtakinu
var gefinn laus taumur í efnahagslífinu án
þess að ráðist væri gegn ríkisfyrirtækjunum
og þau einkavædd. Hann líkir því við að skapa
skilyrði fyrir nýjan gróður að dafna og láta
hann vaxa yfir þann sem fyrir er. Þetta þýðir
það að gömlu ríkisbankarnir eru ennþá til í
Kína og mikið af pólitískum lánveitingum frá
fyrri tíð sem hvíla þungt á bönkunum. Þetta
segir hann eitt dæmi af mörgum um það að
það kunni að reynast Kínverjum dýrkeypt að
hafa ekki gengið rösklegar til verka. Það eigi
tíminn þó eftir að leiða í ljós. Á síðustu mán-
uðum einkavæddi Kína og skapaði stærsta
banka heims og finnst mörgum að í slíkar
einkavæðingar hefði þurft að fara í ríkari
mæli og fyrr. Í Indlandi horfa þessi mál
allt öðruvísi við. Þar er samlíf einkageir-
ans og hins opinbera mun skilvirkara.
Gott bankakerfi er ein af lykilstoðum sem
þarf til að þjóðfélagi vegni vel til langs
tíma litið og þarna standa Indverjarnir
mun betur að vígi.
LÚTA SÖMU LÖGMÁLUM OG AÐRIR
Margir hafa tilhneigingu til að líta
svo á að Kína og Indland séu hvort
um sig svo stór lönd að ekki
henti að bera vöxt þeirra saman
við önnur lönd. Þorvaldur segir
þau samt sem áður falla undir
sömu lögmál og önnur lönd
hvað varðar efnahagslega vel-
gengni. Indland og Kína vaxi
nú mjög hratt vegna þess að
þau hafa lagt rækt við að mennta
fólkið sitt, að spara og fjárfesta og laða til
sín erlent fjármagn og draga úr fólksfjölgun.
Sömu sögu mætti segja megi um örríki eins
og Ísland og risaveldin í austri. Hann segir
þetta einmitt gera það að verkum að Kína vex
helmingi hraðar en Indland og að Kínverjar
séu nú orðnir helmingi efnaðri en Indverjar
þrátt fyrir að hafa staðið jafnfætis þeim fyrir
tuttugu árum. Það sé einfaldlega vegna þess
að þeir hafi gengið helmingi lengra í að drífa
upp menntunina, erlendu fjárfestinguna og
draga úr fólksfjölguninni.
13MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006
Ú T T E K T
Ekki bara sólin sem rís í austri
Kína og Indland og yfirvofandi heimsyfirráð þeirra voru mál málanna á heimsviðskiptaþingi World Economic Forum í Davos í lok síðasta mán-
aðar. Í nýlegu áliti fjárfestingarbankans Goldman Sachs er áætlað að árið 2035 verði Kína komið fram úr Bandaríkjunum og Indland fram úr
Japan hvað varðar stærð hagkerfisins. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði framgang og framtíðarhorfur risanna tveggja.
5.000
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1975 1978 1981 1984 1987 1990 1993 1996 1999 2002
* í dollurum á verðlagi 2000
Kína
Indland
H A G V Ö X T U R Á M A N N 1 9 7 5 - 2 0 0 3 *
Indland hefur ekki átt eins mikil viðskipti
við Ísland og Kína. Markaðsumbætur hófust
ekki í Indlandi fyrr en árið 1991 og stutt síðan
Íslendingar fóru að eiga viðskipti þar. 0,4 prósent
af heildarinnflutningi til landsins árið 2004 kom
frá Indlandi, að mestu textílvörur líkt og í tilfelli
Kína, en útflutningur þangað er einungis brot af
heildarútflutningi Íslands.
Nokkur íslensk fyrirtæki hafa haslað sér völl
í Indlandi. Ber þar fyrst að nefna Sæplast sem
hóf rekstur verksmiðju í Gujarat-fylki fyrir
tæpum tíu árum. Stærst íslenskra fyrirtækja á
markaðnum er hins vegar án efa Actavis sem
á í gríðarmiklum viðskiptum við Indland og
keypti þar nýverið lyfjaþróunarfyrirtæki. Ekki
má svo gleyma Eskimo Models sem fór inn á
Indlandsmarkað ekki alls fyrir löngu og hefur
meðal annars haslað sér völl í auglýsinga- og
kvikmyndagerð í Bollywood.
Í lok þessa mánaðar er fyrirhuguð ferð við-
skiptasendinefndar frá Íslandi til Nýju-Delí
sem um 15 til 20 íslensk fyrirtæki taka þátt í.
Tilefnið er opnun íslensks sendiráðs þar í borg.
Megináherslan verður lögð á fyrirtækjastefnu-
mót auk þess sem haldin verður viðskiptaráð-
stefna og móttaka.
Ísland og Indland
I N D L A N D
Innflutningur
Ár Millj.kr. (fob) % af heild
2002 2487 1,2%
2003 1771 0,8%
2004 1129 0,4%
Útflutningur
Ár Millj.kr. (fob) % af heild
2002 42,8 0,0%
2003 58,3 0,0%
2004 62.4 0,0%
„Ég er jafnviss um það eins og ég
sit hér að eftir 25 ár verði annað-
hvort kommúnistaflokkurinn farinn
frá völdum í Kína eða að þeir hafa
þurft að hægja á umbótunum,“ segir
Þorvaldur. Á þessu byggist sú skoð-
un hans að framtíðin sé í raun bjart-
ari fyrir Indland þrátt fyrir að Kína
hafi sýnt meiri framþróun síðustu ár.