Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 44
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Óli Kristinn Ármannsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína
Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is
VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu
á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í staf-
rænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR16
S K O Ð U N
Stefnumótun í verndun hugverka-
réttinda er nauðsynlegt skilyrði
til að geta verið þátttakandi í
nýju heildarhagkerfi („global
economy“), þar sem óáþreifan-
leg verðmæti eru að verða stærri
og stærri hluti af verðmætum
fyrirtækja.
Það er oft sagt að við búum
í „nýju hagkerfi“. Þetta þýðir
m.a. að stöðugt stærri hluta af
vexti viðskiptalífsins er hægt að
þakka óáþreifanlegum verðmæt-
um, þ.e. verðmætum sem eru
ekki af efnislegum toga. Í dag
er áætlað að um það bil 70%
af verðmætum fyrirtækja séu
vegna óáþreifanlegra verðmæta
(tilvísun: Brookings Institute),
sem ekki reiknast beint inn í árs-
uppgjör fyrirtækja.
Slík óáþreifanleg verðmæti
geta verið óskráð réttindi í formi
höfundarréttar (copyright), iðn-
aðarleyndarmála og verkþekk-
ingar („know how“), eða þau geta
t.d. verið skráð í formi einka-
leyfa, vörumerkja eða hönnunar.
Á alþjóðlegan mælikvarða falla
slík réttindi undir samnefnarann
„Intellectual Property Rights“,
sem er venjulega skammstafað
IPR.
HVERS VEGNA IPR-STEFNUMÓTUN?
Fyrirtæki með einkaleyfi hefur
rétt til að koma í veg fyrir að
aðrir stundi atvinnustarfsemi
innan þess tæknilega sviðs sem
lýst er í einkaleyfakröfunum. Það
að fá einkaleyfi á nýjum afurð-
um og nýrri tækni er venjulega
nauðsynlegt til að komast hjá
eftirlíkingum. Einkaleyfi geta
náð yfir almenn og breið svið eða
sérstakar lausnir og eru þau veitt
til 20 ára. Hægt er að bera einka-
leyfi saman við sérstaka löggjöf
sem bannar misnotkun á þeirri
tækni sem einkaleyfið nær yfir
í öllum þeim löndum þar sem
það er skráð. Til viðbótar við
að tryggja einkarétt á tæknilegu
forskoti þá ver einkaleyfi fjár-
festingar, tryggir ávöxtun, hindr-
ar samkeppnisaðila og hefur í
för með sér verðmætaaukningu
fyrir fyrirtæki. Mikilvægt er að
hafa í huga að einkaleyfi er opin-
bert skjal, sem hindrar að aðrir
geti fengið einkaleyfi fyrir sömu
uppfinningu. Þessu til viðbótar
er vert að nefna að einkaleyfi er
samfélagsleg auðlind fyrir bæði
tækni- og vísindalega þekkingu.
Það er nefnilega þannig að eig-
andi einkaleyfis hefur fullkom-
inn rétt til þess að koma í veg
fyrir að aðrir notfæri sér tækn-
ina í viðskiptalegum tilgangi.
Á svipaðan hátt er vörumerki
kennimark fyrirtækis sem og
þeirrar vöru eða þjónustu sem
fyrirtækið hefur á sínum snær-
um. Vörumerkjaskráning gefur
tilsvarandi einokun til notkun-
ar á vörumerkinu og jafnframt
hindrar aðra í að nota sama eða
samsvarandi merki.
Hönnunarvernd er einnig
mikilvægt verkfæri til að koma
í veg fyrir að aðrir geti líkt eftir
sjónrænni áherslu á vöru fyr-
irtækis, nefnilega útlit þeirr-
ar vöru sem fyrirtækið hefur
skapað. Hönnun er oft notuð
sem vernd samhliða einkaleyf-
um, en getur einnig verið notuð
ein og sér. Vara getur nefnilega
verið vernduð á marga vegu,
t.d. með einkaleyfum, hönnun og
vörumerkjum.
Með því að samtvinna mis-
munandi tegundum vernda er
hægt að ná ákveðnu markaðs-
forskoti. Við að fá t.d. einkaleyfi
af nýrri vöru næst 20 ára mark-
aðs einræði. Á þessum 20 árum
gefst tækifæri til að hanna og
þróa vörumerki sem notendur
þekkja og halda tryggð við eftir
að einkaleyfið fellur úr gildi.
HVAÐ ER IPR STEFNUMÓTUN?
IPR stefnumótun fjallar m.a. um
að beita einkaleyfum á fagmann-
legan hátt. Hún fjallar um að
vinna að áætlunum um hvaða
markmiðum fyrirtæki vill ná.
Einkaleyfi eru mikilvægt áhald
sem hefur áhrif á að hve miklu
leyti markmiðið næst. Þegar
fyrirtæki hefur sett sér ákveðið
markmið, t.d. hvaða vöru skal
framleiða, þarf að ákveða hvaða
einkaleyfastaða er nauðsynleg til
að markmiðið náist. Út frá þessu
meta fyrirtækin hvaða einka-
leyfaumsóknir skal leggja inn.
Mikilvægt er að framkvæma
bæði innan- og utanhússgrein-
ingu á fyrirtækinu. Það þarf
að skoða óáþreifanlegar eign-
ir fyrirtækisins, og í hvaða átt
fyrirtækið er að þróast. Einnig
ber að horfast í augu við hvaða
raunhæfa möguleika fyrirtækið
hefur innan tiltekins samkeppn-
issviðs, og samtímis þarf að kort-
leggja styrk þess og veikleika.
Að auki verður að framkvæma
ytri greiningu á markaðnum og
ytri samkeppnisaðstæðum.
Markmiðið með þessari stefnu-
mótun er að tryggja fjárfesting-
ar vegna rannsókna og þróunar,
tryggja að nýjar vörur og ný
tækni verði ekki nýtt af öðrum,
og að sjálfsögðu að tryggja nýja
markaði. Þessu markmiði er
hægt að ná með samsetningu af
einkaleyfum, vörumerkjum og
hönnun.
Fjárhagslegt gildi af slíkum
verndum skal meta með tilliti
til hugsanlegra sölu- og leyfis-
tekna (“licence”), og einnig út frá
því hvar fyrirtækin hafa, innan
ákveðins viðskiptasviðs, rétt til
að starfa (“freedom-to-operate”
greining).
IPR-stefnumótun – skilyrði til að
geta tekið þátt í hinu nýja hagkerfi
Guðmundur Þór
Reynaldsson
einkaleyfa-
lögfræðingur
og starfar hjá
Plougmann og
Vingtoft í Danmörku
O R Ð Í B E L G
Í dag er áætlað að um það bil 70% af verðmætum
fyrirtækja séu vegna óáþreifanlegra verðmæta, sem
ekki reiknast beint inn í ársuppgjör fyrirtækja.
Ætlar þú
að grípa
tækifærið?
Viltu veita starfsmönnum þínum tækifæri til að
marka fyrirtæki þínu varanlega sérstöðu í ört
vaxandi samkeppni?
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, nytsamlegt, áhugavert, krefjandi,
skemmtilegt, mjög gott, þægilegt, lipurt, góð skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi,
góð þjónusta.
Þriggja vikna fyrirtækjanámskeið Hraðlestrarskólans eru sérsniðin að
þörfum atvinnulífsins. Aukinn lestrarhraði, skilningur og markvissari
upplýsingaöflun starfsmanna þinna gæti opnað þínu fyrirtæki
aðgang að stórkostlegu tækifæri. Ert þú tilbúinn að grípa það?
Hafðu samband í síma 586-9400, sendu póst á jovvi@h.is
eða kíktu á http://www.h.is
„Námið er mjög markvisst og
ýtir skemmtilega við gömlu
heilasellunum.“
Sigurður Jónsson,
59 ára afgreiðslumaður
Rétt eins og Íslendingar eru uppnæmir fyrir þeirri upphefð sem
kemur að utan, virðast margir á sama hátt fyllast þórðargleði þegar
útlendingar draga okkur og það sem við fáumst við í efa.
Útrás viðskiptalífsins hefur óneitanlega fylgt aukin athygli og hún
ekki alltaf jákvæð. Erlendis furða menn sig skiljanlega á þeim vexti
og sókn sem íslenskt viðskiptalíf hefur verið í að undanförnu. Þar
hafa menn leitað ýmissa skýringa og hafa þær ekki allar verið jafn
gáfulegar.
Sum þessara skrifa hafa sennilega stjórnast af því að helstu skýr-
ingarnar á því að íslenskt efnahagslíf hefur blómstrað og íslensk-
um fjárfestum hefur vegnað vel eru ekkert sérlega spennandi eða
ævintýralegar. Aukið athafnafrelsi, einkavæðing banka, öflugt líf-
eyrissjóðakerfi, hagstæðari aldurssamsetning þjóðar en í nágranna-
löndunum, erlendar stórframkvæmdir og meiri hagvöxtur en víðast
annars staðar eru ekki spennandi skýringar fyrir þá sem vilja krydda
frásögn sína. Þá er skemmtilegra að horfa til harmleikjanna og sjá
fyrir sér oflátunga eins og Ikarus sem flaug of nærri sólinni sjálfum
sér til tjóns. Eða að fabúlera um Ísland sem peningaþvottavél fyrir
rússnesku mafíuna.
Við þessa umræðu verðum við að búa, en verra er þegar hún er
tekin upp hér heima af þeim sem eiga að vita betur. Við höfum sjálf
bestu forsendurnar til þess að átta okkur á því sem stendur að baki
vexti og viðgangi íslensks viðskiptalífs.
Að undanförnu hafa birst greiningar erlendra banka á íslensku
bönkunum. Þær greiningar hafa verið býsna gildishlaðnar og fram-
setningin einkennst af nokkrum hálfkæringi. Þar hefur meðal ann-
ars verið gengið svo langt að efast um réttmæti lánshæfiseinkunna
virtra matsfyrirtækja á íslensku bönkunum. Þessa umræðu ber að
taka alvarlega, ekki á þeim forsendum að hún sé rétt, heldur á þeirri
forsendu að hún getur verið skaðleg. Fjármálakerfið stendur nú
traustari fótum en nokkru sinni fyrr og vöxtur bankakerfisins hefur
opnað nýjar dyr fyrir athafnafólk þjóðarinnar. Það er því sérkennilegt
þegar greina má kokhrausta gleði, jafnvel hjá þeim sem telja sig búa
yfir yfirsýn og ábyrgð, þegar augljósar rangfærslur birtast í erlendri
umfjöllun.
Fjármálafyrirtæki eru ekki bara venjuleg fyrirtæki. Þau eru ein af
stoðum samfélagsins. Stjórnendur þeirra og þeir sem um þau fjalla
undir formerkjum fagmennsku, eiga að bera meiri virðingu fyrir
staðreyndum en svo að róið sé undir þegar vegið er ómálefnalega að
þessum stoðum. Bankarnir verða hins vegar að taka þessa umræðu
alvarlega og leggja sig í framkróka um að kynna starfsemi sína og
svara skýrt þegar þeir eru dregnir í efa.
Það er eðlilegt að stoðir bankakerfisins séu umfjöllunarefni og að
forvígismenn þeirra séu krafnir svara ef efasemdir vakna. Því hlut-
verki þurfa bankarnir að sinna af sömu kostgæfni og öðrum þáttum
starfseminnar. Hér á landi höfum við komið okkur upp samsvarandi
stofnunum til að hafa eftirlit með fjármálakerfinu og til eru í þeim
löndum sem við berum okkur saman við. Auk þess undirgangast bank-
ar rannsókn og yfirferð alþjóðlegra matsfyrirtækja sem eiga allt sitt
undir því að meta hlutina rétt. Slíkir aðilar hafa margfalt betri aðgang
að upplýsingum um eignir og stöðu bankanna en markaðsaðilar svo
sem greiningadeildir annarra banka.
Eiginfjárhlutfall bankanna hefur aldrei verið hærra og eignadreif-
ing þeirra aldrei jafn mikil. Sé ekki nema litið til þessara tveggja
þátta, má sjá að íslensk fjármálafyrirtæki búa yfir verulegum styrk.
Líka þótt á móti blási. Það þýðir hins vegar ekki að menn geti slegið
af kröfum sínum um fagleg vinnubrögð og varúð sem nauðsynleg er í
rekstri fjármálafyrirtækja.
Vitleysan verður ekkert betri þótt hún komi að utan.
Bankakerfið hefur
aldrei verið sterkara
Hafliði Helgason
Ristir dýpra
BBC | Neil Heathcote, greinahöfundur á vefsíðu BBC,
er staddur í Dubai og fjallar um hvernig múslimar
sniðganga danskar vörur. Hann segir verslanir víðs
vegar í arabaheiminum hafa tekið danskan varning
úr hillunum, meira að segja franska matvörukeðj-
an Carrefour. Heathcote segist hafa farið í búðir í
Dubai í leit að dönsku smjöri og osti en ávallt gripið
í tómt; í staðinn sé boðið upp á vörur frá Nýja-
Sjálandi, Tyrklandi eða Sádi-Arabíu. Hann telur
jafnframt að í þetta skipti risti mótmælin dýpra
en oft áður. Margsinnis hafi verið reynt að hvetja
múslima til hunsa bandarískar vörur, til að mynda
svaladrykki frá Coca-Cola eða bifreiðar frá Ford.
Slíkar tilraunir hafi hins vegar runnið fljótlega út
í sandinn. Danir hafi hins vegar ráðist gegn því
allra heilagasta – sjálfri trúnni og spámanninum
Múhameð. „Þeir hafa saurgað spámanninn okkar
og óhreinkað trúna. Við höfum fullan rétt til að mót-
mæla,“ hefur Heathcote eftir reiðum viðskiptavini
lítillar kjörbúðar í Dubai.
Birtir til í Japan?
Guardian | Justin McCurry gerir efnahagsástandið í
Japan að umfjöllunarefni í The Guardian og spyr
hvort hagkerfið sé í raun að rétta úr kútnum eins
og gefið hefur verið í skyn. McCurry segir ekki
hægt að neita
því að ýmislegt
bendi til þess að
hið versta sé að baki; Nikkei-vísitalan hafi hækkað
um fjörutíu prósent á síðasta ári og ekkert lát virð-
ist á. Atvinnuframboð sé nægilegt, líf að færast í
fasteignamarkaðinn og framleiðni aukist mánuð
eftir mánuð. Meira að segja neytendur hafi tekið
við sér og eytt rúmlega 3,2 prósentum meira í fyrra
en árið á undan. Þá sé allt útlit fyrir að tímabil
verðhjöðnunar sé að baki; vísitala neysluverðs hafi
hækkað lítillega undanfarna mánuði en sjö ár eru
síðan vísitalan hækkaði tvo mánuði í röð. McCurry
varar þó Japana við að fagna of snemma. „Erlendar
skuldir Japana eru gríðarlegar og þeir reiða sig um
of á útflutning. Spyrjum að leikslokum.“
U M V Í Ð A V E R Ö L D