Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 46
MARKAÐURINN
A U R A S Á L I N
8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR18
H Á D E G I S V E R Ð U R
Ásgeir Baldurs gegnir starfi framkvæmda-
stjóra Vátryggingafélags Íslands sem er
hluti VÍS samsteypunnar. Samsteypa sem
hefur að undanförnu tekið miklum breyt-
ingum og vaxið umtalsvert. Félagið stendur
á gömlum grunni og varð til við samein-
ingu Samvinnutrygginga og Brunabótafélags
Íslands. „Þetta voru hvort tveggja gagnkvæm
félög sem er algengt í vátryggingarekstri,
en er reyndar á undanhaldi,“ segir Ásgeir
og útskýrir að það fyrirkomulag þýði að
vátryggingatakar séu eigendur félaganna.
Rekstur tryggingafélags er fremur flók-
inn og byggir á að verðleggja sig rétt miðað
við tjón framtíðarinnar. Hinn hluti hefðbund-
innar starfsemi er að ávaxta þann sjóð sem
geymdur er til að mæta tjónum í framtíðinni.
„Vátryggingafélög eru fjármálafyrirtæki og
atvinnugreinin er frábrugðin öðrum grein-
um. Við erum alltaf að berjast við að meta
áhættuna rétt og verðleggja okkur út frá því.
Það er hins vegar samkeppnin sem ræður
verðlagningunni og það virðist sem trygg-
ingarfélögin séu almennt að verðleggja sig
of lágt miðað við endanlegan tjónakostnað.
Það er eitthvað sem ekki mun ganga til lengri
tíma litið. Það sem heldur uppi afkomu trygg-
ingafélaganna eru fjárfestingartekjunnar.
Grunntryggingareksturinn skilar ekki mikl-
um afgangi. Fjárfestingartekjurnar verða
ekki svona góðar endalaust og það er það sem
við verðum að hafa í huga til lengri
tíma að jafnvægi sé í trygg-
ingahlutanum.“
ÖRYGGI OG HUGARRÓ
Ásgeir hefur starfað
hjá VÍS frá árinu 2000.
Hann lærði viðskipta-
fræði í Bandaríkjunum,
en tók MBA nám hér
á landi. „Ég fór öfuga leið
miðað við marga aðra,“ segir hann
og brosir. Hann sinnti markaðsmálum og
þjónustusviði í upphafi þeggar hann kom til
starfa hjá VÍS árið 2000. Tryggingabransinn
er sérstakur að því leyti að kúnninn er yfir-
leitt illa stemmdur þegar reynir á viðskiptin.
„Nærgætni og þjónusta skiptir miklu máli og
kúnninn hefur miklar væntingar til þjónust-
unnar þegar hann þarf á henni að halda. Við
erum að selja vöru sem seljandi og kaupandi
vona að aldrei reyni á. Í raun erum við að
selja öryggi og hugarró.“
VÍS hefur tekið miklum breytingum að
undanförnu. „Við fórum í naflaskoðun árið
2003 og skilgreindum félagið og mótuðum
stefnuna. Við höfum mikinn metnað og sáum
að vátryggingamarkaðurinn á Íslandi væri
ekki nægjanlegur til að fullnægja þeim metn-
aði sem við höfðum til vaxtar. Við þurftum
því að horfa í kringum okkur.“ Ásgeir segir
að stefnan hafi verið sett á fjármálaþjónustu
og öryggisþjónustu. „Við settum okkur ann-
ars vegar metnaðrfull markmið til ársins
2006 og hins vegar til ársins 2013. Þá var
eigið fé 4,5 milljarðar og eignir í kringum 27
milljarða. Nú er eigið fé um 30 milljarðar og
heildareignir í kringum hundrað milljarða. Í
raun má segja að árið 2005 höfum við verið
búin að ná mörgum af þeim markmiðum
sem við settum okkur fyrir árið 2013 sem
mörgum þótti óraunhæft.“ Ásgeir að lykill-
inn að árangrinum liggi í því að starfsmenn
hafi tekið þessu mjög vel. „Við náðum að
breyta fyrirtækinu og fyrirtækjamenning-
unni. Félagið varð þjónustudrifnara og við
fórum að hlaupa hraðar. Við náðum að breyta
því sem við vildum breyta.“ Félagið keypti
fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu og eignað-
ist meirihluta í Öryggismiðstöð Íslands.
MARMIÐIN NÁÐUST FLJÓTT
„Vegna þess hvað fötin sprungu utan af okkur
fljótt, þá fórum við í endurskipulagningu og
tókum upp nýtt skipurit sem miðar að
því að geta vaxið erlendis og
lagt áherslu á fjármála-
starfsemi og fjárfest-
ingar, jafnframt því
að gera skýrari skil
milli eftirlitsskylds
hluta starfseminnar
og annarrar starf-
semi. Þannig uppfyllum
við betur skyldur okkar
gagnvart eftirlitsaðilum.“
VÍS hefur hafið útrásina með kaupum í
Bretlandi, en með þeim hefur félagið búið
sér til stökkpall til frekari sóknar og byggt
upp tengsl. „Við höfum verið að vinna með
íslenskum fyrirtækjum erlendis, meðal ann-
ars í Bretlandi og Danmörku.
Við sáum að við höfum margt
að bjóða á erlendum mark-
aði. Við höfum lengi verið að
kynna okkur erlenda markaði
og fjárfest í þekkingu á þeim.
Það býr mikil þekking í fyrir-
tækinu og við teljum að hún
nýtist okkur einnig á erlend-
um mörkuðum.“ Meðal þess
sem hann nefnir er beinni
samskipti við viðskiptavini,
en algengt er að trygging-
ar erlendis fari í gegnum
sjálfstæða tryggingamiðlara
fremur en að bein samskipti
séu milli tryggingafélagsins
og viðskiptavina. „Við höfum
metnað til að vera stærsta
tryggingafélag á Íslandi, en
við gerum okkur grein fyrir
því að hvert prósent í mark-
aðshlutdeild er miklu dýrara
hér en erlendis.“
IÐGJÖLD OF LÁG
VÍS hóf snemma forvarnarstarf og trygg-
ingafélög hafa í vaxandi mæli lagt lóð á
vogarskálar þess að auka öryggi í samfé-
laginu. „Frá árinu 1994 höfum við verið
með öflugt forvarnarstarf með aðaláherslu á
umferðaröryggi ungs fólks. Við höfum varið
til þess um 200 milljónum á síðustu fjórum
árum. Það er sameiginlegur hagur okkar og
viðskiptavinanna að lækka tjónakostnaðinn.
Forvarnarstarfið verður áfram mikilvægur
þáttur hjá okkur. Þetta er mál allra og skilar
sér bæði til okkar og samfélagsins.“
Erfitt er fyrir venjulegan neytanda að átta
sig á hvenær tryggingaiðgjöld eru sanngjörn.
Ásgeir segist oft verða var við umræðu um
samtryggingu í verðlagningu. „Tjón á móti
iðgjöldum á Íslandi eru þannig að kollegar
okkar á Norðurlöndum skilja ekki hvað við
erum að gera. Þegar litið er á afkomu trygg-
ingafélagnna sér hver maður að hún er borin
uppi af góðum árangri í fjárfestingum. Við
greiðum nú meira út í tjón en við fáum í
iðgjöld ef tillit er tekið til rekstrarkostnaðar.
Vonandi mun tjónum fækka, en ég held að
þörf sé á að hækka iðgjöldin. Samkeppnin
hefur hins vegar haldið þessu niðri. Hún er
af hinu góða og gerir það að verkum að við
þurfum sífellt að leita leiða
til að hagræða og standa
okkur betur. Hér eru fjár-
hagslega sterk tryggingafé-
lög með víðtækt þjónustu-
net,“ segir hann og bætir
við að ekki megi vanmeta
mikilvægi þess að trygg-
ingafélög séu fjárhags-
lega sterk. „Fólk vill ekki
tryggja hjá félagi sem er
fjárhagslega óstöðugt. Ég
held að fyrir neytendur sé
umhverfið hér mjög gott á
þessum markaði.“
Ásgeir hefur metnaðar-
full markmið og keppnis-
skapið er ekki langt undan.
Hann spilaði fótbolta með
Breiðabliki upp í meistara-
flokk og síðar með Völsungi
á Húsavík þegar hann kom
heim frá námi. Hann segist
ekki hafa nýtt sér fótboltann til að fá náms-
styrk í Bandaríkjunum. „Ég lét hin akadem-
ísku gildi ráða vali á skóla,“ Þrátt fyrir að
bregða á leik með félögum í fótbolta eru
fótboltaskórnir komnir upp í hillu. „Ég var
löngu búinn að ákveða að leggja skóna á
hilluna þegar ég yrði þrítugur og ég stóð
við það.“ Á vellinum spilaði Ásgeir vörn, en
núna er það sóknin sem gildir á velli við-
skiptanna.
ÁSGEIR BALDURS, FRAMKVÆMDASTJÓRI VÍS. VÍS hefur sett sér metnaðarfull markmið og Ásgeir nýtir keppnisskapið
til að ná þeim. MARKAÐURINN/E.ÓL
Gjörbreytt tryggingafélag í erlendri sókn
VÍS hefur tekið miklum breytingum að undanförnu. Ásgeir Baldurs er framkvæmda-
stjóri tryggingafélagsins og hefur verið í hringiðu breytinga á því. Hafliði Helgason
hitti hann og ræddi við hann um tryggingafélagið, vöxtinn og útrásina.
Ásgeir Baldurs
Starf: framkvæmdastjóri VÍS
Fæðingardagur: 17. nóvember 1972
Maki: Björg Jónsdóttir
Börn: Rúnar Freyr f. 1991, Jóhanna Huld f. 2002
Hádegisverður fyrir tvo
á Vox
Hádeigisverðarhlaðborð.
Drykkir
Vatn og kaffi
Alls krónur 5.410
▲
H Á D E G I S V E R Ð U R I N N
Með Ásgeiri
Baldurs
framkvæmdastjóra VÍS
Aurasálin var yfir sig hrifin þegar
fréttir bárust af því að Dagsbrún
væri búin að kaupa Securitas.
Þetta er stórsigur fyrir okkur
Baugsliða í samfélaginu því með
kaupunum nálgast enn frekar
sá dagur þegar Baugur verður
raunverulegur valkostur við
íslenska ríkið.
Eins og allir vita þá er ríkis-
valdinu venjulega skipt upp í
þrjár greinar: Löggjafarvald,
framkvæmdavald og dómsvald.
Með tilkomu Securitas inn í
Baugsveldið er grunnur lagður
að framkvæmdavaldi. Baugur
hefur því tekið að sér að upp-
fylla hjá fólki grunnþörfina um
öryggi en aðrar grunnþarfir í
samfélaginu eru einmitt flestar
á hendi Baugsveldisins.
Þetta er ákaflega jákvæð þróun
að mati Aurasálarinnar en
Baugsveldið á þó enn langt í
land með að ná íslenska ríkinu.
Íslenska ríkið, sem Halldór
Ásgrímsson stjórnar, býr við
þann munað að geta skyldað
börn til þess að sitja undir
menntun í tíu ár. Baugsveldið
býr þarna við mjög ójafna
aðstöðu enda er enginn skyldað-
ur til þess að horfa á Stöð 2 og
NFS. Hér er pottur brotinn og
er Aurasálin illa svikin ef málið
verður ekki tekið upp af sam-
keppnisyfirvöldum.
Ríkið hefur einnig yfirburði á
sviði heilbrigðisþjónustu. Þar
á Dagsbrún enn sem komið er
fá svör en augljóst er að næsta
skref Dagsbrúnar hlýtur að
vera á sviði heilbrigðismála.
Samlegðaráhrifin sem geta skap-
ast við að bjóða sjónvarp, síma,
internet, öryggisþjónustu og
heilbrigðisþjónustu blasa við.
Nú þegar Dagsbrún og
Baugsveldið hafa haslað sér völl
á sviði framkvæmdavalds liggur
í augum uppi að löggjafarvald
og dómsvald eru næst. Ekki
efast Aurasálin um að lögin sem
sett yrðu í Baugsveldinu væru
miklu hagkvæmari og gagn-
særri heldur en þau sem samin
eru í ráðuneytum og á Alþingi.
Dómsvaldið yrði líka miklu hrað-
virkara ef það væri einkavætt.
Menn væru þá dæmdir til þess
að vinna í matvöruverslunum
eða sem ljósamenn á NFS. Fyrir
vikið væri hægt að lækka kostn-
að og auka hagkvæmni ásamt
því að framfylgja réttætinu.
Gróði Dagsbrúnar í fyrra var
ekki nægilega mikill að mati
Aurasálarinnar. Með því að
bæta öryggisgæslu inn í rekst-
urinn hlýtur þetta að lagast
mjög mikið. Það eina sem þarf
að gera er að hræða fólk nógu
mikið til þess að kaupa þjón-
ustu Securitas. Og augljóst er
að Dagsbrún er í framúrskar-
andi aðstöðu til þess að koma
hræðsluáróðrinum á framfæri
í gegnum ódýrar auglýsingar.
Bissness hugmyndin er skotheld.
Með öll tæki ríkisvaldsins á hendi
sinni geta hluthafar í Dagsbrún
horft fram á betri og bjartari tíð.
Allt á einum stað