Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 50
MARKAÐURINN 8. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR22
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Hvert er umfang peningaþvætt-
is í heiminum og er hægt að gefa
sér eitthvað um stöðuna hér?
Umfang peningaþvættis í
heiminum er gríðarlegt. Ýmsar
kannanir hafa verið gerðar og
margir talið að ekki sé hægt að
gefa upp nákvæmar upphæðir
til að meta umfang peninga-
þvættis en talið er að um þús-
und trilljónir Bandaríkjadala
séu þvættaðar árlega.
Ekki hefur farið fram formleg
athugun á umfangi peninga-
þvættis á Íslandi og því erfitt
að segja til um það. Þó má líta
til þess að í skýrslu starfshóps
til að meta umfang skattsvika
á Íslandi kom fram að umfang
skattsvika næmi tugum millj-
arða. Ef sú tala er talin með
umfangi fíkniefnabrota, augð-
unarbrota, innherjasvika og
fleira er ljóst að
um verulegar
fjárhæðir er að
ræða sem geta
tengst peninga-
þvætti. Það er
því samfélagsleg
skylda okkar
allra að sporna
hér við fæti.
Hér er um mikið
alvörumál að
ræða.
Eru líkur á
að mafíur eða
hryðjuverkahópar
horfi til Íslands
sem vænlegs vett-
vangs peninga-
þvættis?
Eftir því sem
Ísland er meira
í umfjöllun fjár-
mála á alþjóða-
vettvangi sem
framsækin og
rík þjóð, þeim
mun sýnilegri
erum við og því
líklegra að þessir hópar fari
að prófa að þvætta peninga á
Íslandi. Þessir hópar eru sífellt
að leita nýrra tækifæra til að
þvætta peninga og fjármagna
hryðjuverk.
Hvaða hópar eru það hér sem
líklegastir eru til að þurfa á pen-
ingaþvætti að halda?
Hér á landi myndi ég telja
að líklegast væri um aðila að
ræða sem stunda skipulagða
glæpastarfsemi sem tengist
fíkniefnaviðskiptum og auðgun-
arbrotum.
Hvaða afleiðingar gæti áfellis-
dómur FATF haft á fjármála-
markað og fyrirtæki hér?
Áfellisdómur af hálfu FATF
gæti haft slæm áhrif á fjár-
málamarkað, fyrirtæki og
samfélagið í heild. Samkvæmt
tilmælum FATF ber fjármála-
fyrirtækjum að gefa sérstakan
gaum að viðskiptasamböndum
og viðskiptum við persónur,
þ.m.t. fyrirtæki og fjármála-
stofnanir, frá löndum sem fara
ekki, eða á ófullnægjandi hátt,
að FATF-tilmælunum. Þetta
gæti torveldað útrás íslenskra
fyrirtækja og jafnvel orðið til
þess að fjármálafyrirtæki fái
lakari lánshæfismöt en ella.
Hversu mikla áherslu leggur
Fjármálaeftirlitið á eftirlit með
mögulegu peningaþvætti?
Þrátt fyrir að hlutverk
Fjármálaeftirlitsins samkvæmt
núgildandi löggjöf sé mjög tak-
markað telur Fjármálaeftirlitið
mikilvægt að eftirlit með
mögulegu peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka sé í
viðeigandi horfi. Eftirlitið felur
í sér athuganir á málefnum
peningaþvættis hjá eftirlits-
skyldum aðilum og jafnframt
að veita þeim ráðgjöf. Vegna
þess er Fjármálaeftirlitið að
bæta við starfsmanni sem á að
vinna sérstaklega
að eftirliti með
aðgerðum gegn
peningaþvætti
og fjármögnun
hryðjuverka hjá
eftirlitsskyldum
aðilum.
Hverju þarf að
breyta í lagaum-
hverfinu hér til að
betur verði tekið
á peningaþvætti?
Nauðsynlegt er
að uppfæra eldri
löggjöf í samræmi
við hin 40 FATF
tilmæli og 9 sér-
stök tilmæli ásamt
því að innleiða
þriðju peninga-
þvættistilskipun-
ina. Ýmislegt þarf
að kveða skýrar á
um og sérstaklega
er nauðsynlegt að
viðeigandi aðilar
séu meðvitaðir um
þær reglur sem
um þá gilda og fylgi þeim.
Hvaða breytinga er að vænta
hér á landi á næstunni varðandi
aðgerðir gegn peningaþvætti?
Ljóst er að á næstunni munu
verða miklar breytingar varð-
andi aðgerðir gegn peninga-
þvætti. Von er á nýrri löggjöf
um aðgerðir gegn peninga-
þvætti. Fjármálaeftirlitið hefur
undanfarið verið að vinna að
leiðbeinandi tilmælum um ráð-
stafanir fjármálafyrirtækja,
vátryggingafélaga og vátrygg-
ingamiðlara gegn peninga-
þvætti og verður umræðuskjal
birt til umsagnar fljótlega.
Bæta við sig manni
í peningaþvættið
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Kristins Arnars
Stefánssonar
lögfræðings hjá
Fjármálaeftirlitinu
Huga þarf að forvörnum vegna peningaþvættis
hjá fleiri starfsstéttum en starfsfólki fjármálafyr-
irtækja, er meðal þess sem fram kom á málþingi
sem Orator, félag laganema, hélt í Háskóla Íslands
fyrir helgi.
Jafnframt upplýsti Kristinn Arnar Stefánsson,
lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, að í gangi
væri endurskoðun á lagaumhverfi og viðbúnaði
vegna peningaþvættis í tilefni af úttekt FATF
(Financal Action Task Force on Money Laundering)
á stöðu mála hér. FATF er samstarfsvettvangur
ríkja gegn peningaþvætti innan OECD. Hópurinn
hefur gefið út tilmæli um aðgerðir í 40 liðum og
fylgir þeim eftir með miklum þrýstingi.
Auk Kristins héldu erindi á málþinginu Sigþrúður
Ármann lögfræðingur á alþjóðasviði Viðskiptaráðs
Íslands og Högni Einarsson lögreglufulltrúi á
efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Í erindum
sínum fjölluðu þau um gildandi löggjöf og aðgerðir
gegn peningaþvætti, sem og alþjóðlegt samstarf.
FLÝTA ÞARF UMBÓTUM
Peningaþvætti er gjarnan orðað við glæpastarf-
semi af ýmsum toga, eiturlyfjasölu, vændi og hvers
kyns ólöglega atvinnustarfsemi. Í máli fyrirlesar-
anna þriggja á málþingi Orators kom
þó fram að þvættið einskorðaðist ekki
við þessa hefðbundnu glæpastarfsemi.
„Sá sem svíkur undan skatti þarf jú líka
að koma undanskotinu í umferð,“ sagði
Kristinn og taldi slíkt sport ekki öllum
ókunnugt. „Ha, er það þá peninga-
þvætti?“ kvað einn lögfræðineminn við í forundran
og uppskar rannsakandi augnaráð fyrirlesara, sem
játtu því í kór að víst væri það svo.
Kristinn Arnar sagði í erindi sínu miklu skipta
að koma á nauðsynlegum umbót-
um varðandi varnir gegn peninga-
þvætti hér í samræmi við tilmæli
FATF áður en skilað verður skýrslu
til hópsins, 24. þessa mánaðar, um
aðgerðir gegn peningaþvætti, en
von er á fulltrúum hans hingað í
apríl. „Hópurinn gerði könnun á
Noregi í fyrra og þeir fengu mikla
og harða gagnrýni, þrátt fyrir að
hafa lagt mikið upp úr því að vinna
í þessum málum,“ sagði Kristinn
sem einnig á sæti í nefnd sem
skipuð hefur verið um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögn-
un hryðjuverka. Hann segir áfell-
isdóm FATF geta haft áhrif á láns-
hæfismat fjármálafyrirtækja. „Á
næstu vikum munum við því sjá
talsverða vinnu í þessum mála-
flokki, lagafrumvörp um aðgerðir
gegn peningaþvætti og má viðurkenna að hér sé
verið að kippa málunum í lag.“
STARFSFÓLK BANKA HALDI VÖKU SINNI
Sigrþrúður Ármann sagði í erindi sínu að pen-
ingaþvætti væri sívaxandi vandamál í heiminum,
enda forsenda þess að að þeir sem glæpastarfsemi
stunda fái nýtt illa fengið fé sitt í lögmætum til-
gangi. „Peningaþvætti er þegar einstaklingur eða
lögaðili tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinn-
ings af broti sem er refsivert samkvæmt almenn-
um hegningarlögum, svo sem auðgunarbroti eða
meiri háttar skatta- eða fíkniefnalagabroti, broti
gegn tollalögum, lögum um ávana- og fíkniefni,
áfengislögum og lyfjalögum. Það er
líka peningaþvætti þegar aðili geymir
eða flytur ávinning af broti, aðstoðar
við afhendingu ávinninings eða stuðl-
ar á annan sambærilegan hátt að því
að tryggja öðrum ávinning af broti,“
sagði hún, en þar með geta ýmsir
reynst meðsekir um peningaþvætti. „Það er sem
sagt refsivert að maður njóti ávinnings af broti sem
annar hefur framið.“ Sigþrúður fór hvernig verk-
lagsreglur fjármálastofnana miða að því að vinna
gegn peningaþvætti, til dæmis
með því að kalla ávallt eftir gildum
persónuskilríkjum þegar stofnað
er til viðskipta, eða með almennri
árvekni, svo sem með því að veita
því eftirtekt þegar detta inn færsl-
ur á erlenda reikninga sem ekki
hafa verið hreyfðir lengi.
FJÖLDI DÆMA UM SAKFELLINGAR
Högni Einarsson sagði að í gegn-
um árin hefðu komið upp nokkur
dæmi hér á landi þar sem erlendir
glæpamenn hafi skyndilega farið
að leggja peninga inn á reikninga
sem jafnvel hefðu verið stofnað-
ir nokkrum árum fyrr, en ekkert
verið notaðir. Hann tók í máli sínu
nokkur dæmi um sakfellingar fyrir
peningaþvætti, bæði í héraðsdómi
og Hæstarétti, til dæmis í Stóra
fíkniefnamálinu svokallaða á árunum 1998 til 2000.
Þar rannsakaði efnahagsbrotadeildin peningaþátt-
inn sérstaklega og komst að því að um 110 milljónir
króna í gjaldeyri hefðu verið notaðar til fíkniefna-
kaupa og til að borga fyrir ferðir og annan kostnað.
Við rannsókn slíkra mála segir hann lögreglu njóta
góðs af tilkynningum bankanna um grunsamleg
viðskipti, en hér til hliðar má sjá í töflu hver þróun
samstarfs banka og lögreglu hefur verið í þeim
efnum.
Högni sagði fleiri en fíkniefnasala hafa verið
dæmda fyrir peningaþvætti og rifjaði upp að
Íslandsbanki hefði fyrir nokkrum árum kært gjald-
kera sem tók við peningum hjá vini sínum, sjóðs-
stjóra hjá Kaupþingi og þáði greiðslu fyrir, en sá
þurfti að koma í umferð ólöglegum innherjagróða.
Allir voru fyrirlesarar málþingsins sammála um
að auka þyrfti eftirlit með peningaþvætti og það
þyrfti að ná út fyrir fjármálastofnanir einar, svo
sem til lögfræðinga, lögfræðistofa, fasteignasala
og hverra þeirra sem í aðstöðu væru til að þvætta
peninga. Þá kom fram að í smíðum væri „þriðja
peningaþvættistilskipunin“ frá Evrópusambandinu,
sem legði auknar skyldur á fjármálastofnanir, svo
sem um að flokka viðskiptavini í áhættuflokka auk
þess sem ákvæði væru um að viðskipti með reiðufé
yfir ákveðinni upphæð yrðu gerð tilkynningaskyld.
Aðgerðir gegn peninga-
þvætti nái til breiðari hóps
FYRIRLESARAR BERA SAMAN BÆKUR SÍNAR Sigþrúður
Ármann hjá Viðskiptaráði og Kristinn Arnar Stefánsson hjá
Fjármálaeftirlitinu skoða gögn Högna Einarssonar hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra. Fréttablaðið/GVA
ÁHUGAFÓLK UM PENINGAÞVÆTTI Laganemar fjölmenntu í
stofu 101 í Lögbergi til að hlýða á fyrirlestra um peningaþvætti og
veltu vöngum yfir vandanum með fyrirlesurum. Fréttablaðið/GVA
M Á L I Ð E R
Peningaþvætti
Ár Fjöldi tilkynninga
1994 1
1995 9
1996 2
1997 11
1998 25
1999 51
2000 113
2001 125
2002 189
2003 241
2004 301
2005 283
Heimild: Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
T I L K Y N N I N G A R T I L
L Ö G R E G L U U M
P E N I N G A Þ V Æ T T I S G R U N