Fréttablaðið - 08.02.2006, Qupperneq 69
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
0
3
15
40
90 1. vinningur
130milljónir
Bónus-vinningur
3,5
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.17.
Taktu mi›a–
rö›in gæti veri› komi› a› flér
Nú er potturinn tvöfaldur og stefnir í 90 milljónir.
Ofurpotturinn stefnir í 40 milljónir og
bónusvinningurinn í 3,5 milljónir.
Tvöf
aldu
r
pottu
r2
Eru sveigjanleg starfslok
valkostur?
Ráðstefna í Salnum, Kópavogi,
fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13.15
Setning - Gísli Páll Pálsson formaður Öldrunarráðs Íslands
Erindi:
Tryggvi Þór Herbertsson Hagfræðistofnun H.Í. - Sveigjanleg
starfslok
Örn Clausen lögfræðingur - Vil vinna meðan ég get
Berglind Magnúsdóttir öldrunarsálfræðingur - "Líf eftir
starfslok" kvíðvænlegt eða eftirsóknavert?
Ólafur Ólafsson formaður LEB - Eldri borgarar mun hressari
nú en áður
Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri LL - Borgar sig að flýta
töku ellilífeyris?
Gylfi Ingvarsson aðaltrúnaðarmaður Alcan - Sveigjanleg
starfslok hjá Alcan og hugsanlegar hindranir
Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar - Reynsla
Húsasmiðjunnar af því að ráða eldra fólk til starfa
Fyrirspurnir úr sal
Samantekt - Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM
Ráðstefnustjóri er Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytis.
Ráðstefnulok kl. 16.20
Ráðstefnan er öllum opin
og aðgangur ókeypis
Öldrunarráð Íslands í samvinnu við ASÍ, BHM, BSRB, LEB, SA
og Samband íslenskra sveitarfélaga
Píanóleikarinn Tinna
Þorsteinsdóttir lítur engan
veginn á píanóið sem sjálf-
sagðan hlut. Hún heldur
vægast sagt óvenjulega
píanótónleika á Myrkum
músíkdögum í kvöld.
„Við erum að reyna að útvíkka
píanóið sem form og sem hljóð-
færi,“ segir Tinna Þorsteinsdóttir
um tónleika sem hún heldur í tón-
listarhúsinu Ými í kvöld, þar sem
hún flytur meðal annars þrjú verk
eftir bandaríska tónskáldið Greg
Davis. Einnig flytur hún verk eftir
George Crumb og Giacinto Scelsi,
ásamt því að frumflytja verk eftir
Hilmar Þórðarson.
Tónleikarnir eru tileinkaðir
náttúrunni og píanóinu og einnig
er hugsað til listamannsins Dieters
Roth, en ekki minna en þrjú píanó
þurfa að vera á sviðinu til þess að
Tinna geti flutt öll þessi verk.
Hugmyndin að þessum tónleik-
um kviknaði hjá þeim Tinnu og
Greg Davis fyrir nokkrum árum,
en þau kynntust á námsárum
sínum í Boston.
„Við erum að gera nýjar teg-
undir af undirbúnu píanói,“ en
með „undirbúnu píanói“ er átt við
að ýmsum aukahlutum er bætt við
píanóið til þess að fá úr því öðru-
vísi hljóma.
Í einu verkinu notar Tinna til
að mynda fjöldann allan af slag-
verkshljóðfærum sem þau hafa
komið fyrir í píanóinu.
„Það má segja að píanóið breyt-
ist í slagverkshljómsveit í þessu
verki,“ segir Tinna.
Hún fékk einnig lánaðan flyg-
ilinn hans Dieters Roth til þess
að nota í sannkallaðan tónlistar-
gjörning, sem verður í anda lista-
mannsins.
„Hann var mikill tónlistarmað-
ur sjálfur og gerði ýmsar tilraun-
ir. Þetta er líka mjög tilrauna-
kennt verk. Píanóið verður fyllt
af alls kyns dóti, en ég þori ekki
að lýsa því neitt nánar. En þetta
verður frekar lífrænt má segja.“
Síðast á dagskrá tónleikanna
er frumflutningur á verki eftir
Hilmar Þórðarsson, þar sem
tölvutækninni er beitt með afar
nýstárlegum hætti í samspili við
píanóið.
„Þar er ég að prófa nýja vídeó-
tækni sem gerir mér kleift að
stjórna píanóinu með höndunum í
lausu lofti. Ég fæ þarna tækifæri
til að breyta tónunum sem heyrast
frá píanóinu.“
Tinna segir ótrúlega mikið
umstang fylgja því að gera hljóð-
færin þannig úr garði að hægt
verði að flytja þessi verk. En hún
lofar því að tónleikarnir verði
mikil veisla, ekki síður fyrir
augað en eyrað.
Tónleikarnir í Ými hefjast
klukkan 20 í kvöld. ■
Reynt á þolrif píanósins
MIÐVIKUDAGUR 8. febrúar 2006
GREG DAVIS, TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR OG HILMAR ÞÓRÐARSON Ekki minna en þrjú píanó
og alls kyns aukahluti þarf til þess að gera Tinnu kleift að flytja verkin, sem eru á dagskrá
tónleikanna í Ými. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA