Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 74
34 8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
5 6 7 8 9 10 11
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Stjarnan og Þór Ak. mætast
í DHL-deild karla í handbolta.
19.15 Fram og FH mætast í DHL-
deild karla í handbolta.
19.15 Fylkir og Haukar mætast í
DHL-deild karla í handbolta.
19.15 Valur og Víkingur/Fjölnir
mætast í DHL-deild karla.
19.15 KA og ÍR mætast í DHL-deild
karla í handbolta.
19.15 Selfoss og Afturelding mæt-
ast í DHL-deild karla í handbolta.
19.15 ÍBV og HK mætast í DHL-
deild karla í handbolta.
19.15 Grindavík og Haukar mæt-
ast í Iceland Express-deild kvenna í
körfubolta.
19.15 Breiðablik og KR mætast
í Iceland Express-deild kvenna í
körfubolta.
19.15 Keflavík og ÍS mætast í
Iceland Express-deild kvenna í körfu-
bolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 Bestu bikarmörkin á Sýn.
19.30 Enska bikarkeppnin á Sýn.
22.20 Handboltakvöld á Rúv.
> Jóhann Birnir á þrjá kosti
Jóhann Birnir Guðmundsson á þrjá kosti
varðandi hvar hann leikur næsta sumar.
Sænskt lið hefur áhuga á að skoða hann
á næstunni. Jóhann sagði í samtali við
Fréttablaðið að samningamál hans við
lið á Íslandi væri í biðstöðu á meðan
mál hans og sænska
félagsins, sem hann
vildi ekki gefa upp hvað
var, væri enn í skoðun.
Jóhann verður ekki
áfram hjá Örgryte en
hans gömlu félagar
í Keflavík leggja
mikla áherslu á
að fá hann til sín
auk þess sem
hann er ofarlega
á óskalista hjá
Íslandsmeisturum
FH.
Sören Åkeby þjálfari Malmö í Svíþjóð
er ánægður með þá takta sem Emil
Hallfreðsson hefur sýnt honum á
þeim vikum sem hann hefur verið
hjá félaginu. Emil er í láni hjá
Malmö frá Tottenham en sænska
liðið lenti í fimmta sæti í sænsku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili
og Åkeby stefnir ótrauður á topp-
baráttuna á því næsta sem byrjar
í apríl.
Það var Ólafur Kristjáns-
son fyrrverandi þjálfari
Fram sem benti Åkeby á
Emil þegar hann var enn
hjá FH og hefur sænski
þjálfarinn því fylgst
með Emil lengi en
auk þess talaði hann
við ungmennalandsliðsþjálfara
Svía sem bentu honum á að
Emil væri mjög góður leik-
maður enda lék hann Sví-
ana grátt í 4-1 sigri ung-
mennalandsliðs Íslands
þar sem hann lagði upp
þrjú markanna.
„Hann er mjög sér-
stakur en skemmtilegur.
Við fórum í æfingaferð til
Suður-Afríku, þar var Emil
veikur og gat ekki tekið þátt í
æfingunum en síðan við komum
aftur til Svíþjóðar hefur hann
lagt mjög hart að sér og hefur
hrifið mig.
Hann er mjög hraður og
teknískur sem nýtist okkur
vel auk þess sem hann er líkamlega
sterkur,“ sagði Åkeby við Fréttablaðið í
gær en hann hefur mikla trú á Hafnfirð-
ingnum.
„Ég bind miklar vonir við að hann
muni eiga gott tímabil hér. Hann er
byrjaður að tala smá sænsku og þegar
hann verður nánast altalandi gerir það
honum auðveldlega fyrir.
Hann er ungur og verður bara betri
og betri og við munum gefa honum tíma
til að aðlagast. Hann einbeitir sér vel og
það er einnig kostur að hann getur spil-
að bæði á vinstri kantinum eða í framlín-
unni,“ sagði Åkeby og bætti við að hann
væri virkilega ánægður með að klófesta
loksins Hafnfirðinginn efnilega, Emil
Hallfreðsson.
SÖREN ÅKEBY ÞJÁLFARI MALMÖ UM NÝJASTA LIÐSMANN SINN EMIL HALLFREÐSSON:
Sérstakur en skemmtilegur
HANDBOLTI Eins og kunnugt er
sagði Viggó Sigurðsson upp samn-
ingi sínum við HSÍ fyrir áramót
þar sem hann var ósáttur við
kjör sín og vinnuaðstæður. Viggó
sagðist þrátt fyrir það vera til í
að stýra landsliðinu áfram en þá á
öðrum forsendum en í dag. Stjórn
HSÍ fundaði um málefni lands-
liðsþjálfara í hádeginu í gær og
niðurstaðan af þeim fundi var sú
að ákveðið hefur verið að ræða við
þrjá til fjóra aðila um starfið og
Viggó Sigurðsson er einn þeirra.
Hann er þó ekki settur í forgang.
„Ég get staðfest að við munum
ræða við Viggó en önnur nöfn vil
ég ekki nefna eins og er en um
er að ræða þrjá til fjóra einstakl-
inga,“ sagði Guðmundur Ingvars-
son, formaður HSÍ, en þegar hann
er spurður hvort það væri í for-
gangi að ræða við Viggó svaraði
Guðmundur neitandi.
Guðmundur staðfesti enn frem-
ur í samtali við Fréttablaðið í gær
að ekki kæmi til greina að semja
eingöngu við þjálfara fram yfir
leikina við Svía í sumar sem koma
til með að ráða miklu um framtíð
íslenska landsliðsins. Samið yrði
að minnsta kosti eitthvað fram á
næsta ár en Guðmundur stefnir á
að klára þessi mál á næstu tveim-
ur til þremur vikum.
Mennirnir sem Guðmundur
ræðir um eru samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins Geir Sveinsson,
Júlíus Jónasson, Atli Hilmarsson
og Alfreð Gíslason. Heimildir
blaðsins herma að mjög takmark-
aðar líkur séu á því að Alfreð fái
starfið enda er hann búinn að ráða
sig í vinnu hjá Gummersbach frá
og með sumrinu 2007. Þar að auki
er hann á starfslokagreiðslum frá
Magdeburg fram til þess tíma og
við þær greiðslur getur HSÍ ekki
keppt. Ofan á það bætist að starfið
hjá Gummersbach gæti mögulega
losnað fyrr. Nafn Guðmundar
Guðmundssonar, fyrrum lands-
liðsþjálfara, hefur einnig verið
nefnt í umræðunni síðustu daga
en heimildir blaðsins herma að
hann sé ekki á lista stjórnar HSÍ.
Áreiðanlegar heimildir Frétta-
blaðsins herma að stjórn HSÍ hafi
takmarkaðan áhuga á því að gera
nýjan samning við Viggó Sigurðs-
son en renni þess í stað mjög hýru
auga til Geirs Sveinssonar, fyrr-
um landsliðsfyrirliða. Fréttablað-
ið hefur einnig heimildir fyrir
því að Viggó hafi átt átakafund
með handknattleiksforystunni í
nóvember og miðað við það sem
fram fór á þeim fundi eru litlar
sem engar líkur á að Viggó verði
áfram þjálfari.
Fréttablaðið setti sig í samband
við Geir Sveinsson í gær og spurði
að því hvað hann myndi gera ef til
hans yrði leitað?
„Fyrir það fyrsta þá er enginn
búinn að ræða við mig um starfið.
Það var rætt við mig á þeim tíma
sem Viggó var ráðinn og að ég
skyldi setjast að samningaborðinu
þá sýndi að ég hafði áhuga á starf-
inu. Ég myndi gera það sama í
dag,“ sagði Geir en heimildamenn
Fréttablaðsins telja ekki ólíklegt
að fari svo að hann verði ráðinn
muni Júlíus Jónasson verða hans
hægri hönd.
henry@frettabladid.is
Geir að taka við af Viggó sem
landsliðsþjálfari í handbolta?
Formaður HSÍ, Guðmundur Ingvarsson, segir að Viggó Sigurðsson sé ekki í forgangi í viðræðum um lands-
liðsþjálfarastarfið. Þrír til fjórir menn koma til greina í starfið og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er
Geir Sveinsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, efstur á lista stjórnar HSÍ. Geir hefur áhuga á starfinu.
SÍÐASTI LEIKURINN? Viggó Sigurðsson og Bergsveinn Bergsveinsson sjást hér saman á
hliðarlínunni gegn Noregi á EM. Þetta var líklega þeirra síðasti leikur með landsliðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NÆSTI LANDSLIÐSÞJÁLFARI? Geir Sveinsson
sést hér stýra Val FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DHL-deild kvenna:
GRÓTTA-FRAM 34-29
Mörk Gróttu: Ivana Veljkovic 10, Agnes Árnadóttir
6, Karen Schmidt 6, Arndís Erlingsdóttir 5, Krist-
ín Þórðardóttir 3, Þórunn Friðriksdóttir 2, Gerður
Einarsdóttir 2.
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 31/1.
Mörk Fram: Annette Köbli 12, Sara Sigurðardóttir
4, Stella Sigurðardóttir 4, Hildigunnur Einarsdóttir
3, Eva Hrund Harðardóttir 2, (4 með eitt mark).
Varin skot: Guðrún Bjartmarz 7.
HK-HAUKAR 28-31
FH-VÍKINGUR 29-19
Mörk FH: Maja Grönbæk 15, Ásdís Sigurðardóttir
5, Katrín Vilhjálmsdóttir 2, Þóra B. Helgadóttir 2,
Eva Albrechtsen 2, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir
1, Birna Helgadóttir 1, Berglind Björgvinsdóttir 1.
Mörk Víkingur: Hekla Daðadóttir 7, Helga Guð-
mundsdóttir 3, Barbara Fisher 2, Natasa Daml-
janovic 2, Ásta Agnarsdóttir 2, Anna Árnadóttir 2,
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir 1.
KA/ÞÓR-VALUR 23-30
ÍBV-STJARNAN 24-23
Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 9, Simona Vintila 6,
Renata Horvath 4, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Elísa Sig-
urðardóttir 1, Ragna Karen Sigurðardóttir 1, Ester
Óskarsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 9,
Rakel Dögg Bragadóttir 6, Elsbieta Kowal 3, Hind
Hannesdóttir 2, Kristín Clausen 1.
Enska bikarkeppnin:
BIRMINGHAM-READING 2-1
1-0 Mikael Forssell (30.), 1-1 Hunt (51.), 2-1 Gray
(67.).
CRYSTAL PALACE-PRESTON 1-2
1-0 Ward (26.), 1-1 Dichio (35.), 1-2 Dichio (88.).
Afríkukeppnin:
NÍGERÍA-FÍLABEINSSTRÖNDIN 0-1
0-1 Didier Drogba (47.).
EGYPTALAND-SENEGAL 2-1
1-0 Hassan, víti (37.), 1-1 Niang (51), 2-1 Zaki
(81).
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Það verður mikið um
dýrðir þegar óskarsverðlaunin
verða afhend í 78. sinn í byrjun
marsmánaðar. Jose Reina, mark-
maður Liverpool, telur að Arjen
Robben verði á hátíðinni, í harðri
baráttu um verðlaun fyrir leik í
aðalhlutverki þar sem hann mætir
meðal annars Joaquin Phoenix og
Heath Ledger.
Reina og Robben voru í aðal-
hlutverki á sunnudaginn þegar
markmanninum var vikið af velli
fyrir að slá til Robbens sem féll í
grasið. „Ég er brjálaður út í Robb-
en, rauða spjaldið átti alls ekki
rétt á sér sem er mjög svekkjandi.
Robben er stórleikari og gerði
nógu vel til að eiga skilið óskars-
verðlaunin,“ sagði Reina.
Reina ósáttur við Robben:
Ætti að fá
óskarinn
Þormóður í Stjörnuna
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hefur Þormóður Egilsson, fyrrum fyrirliði
KR, ákveðið að spila með 1. deildarliði
Stjörnunnar næsta sumar og á víst
aðeins eftir að skrifa undir samning
þess efnis. Munnlegt samkomulag ku
liggja fyrir.
HANDBOLTI Það var fyrst og fremst
Írisi Björk Símonardóttur að
þakka að Grótta/KR tók góða
forystu sem þær létu aldrei af
hendi. Íris varði 31 skot í leikn-
um á meðan Ivana Veljkovic fór
á kostum í sókninni og skoraði tíu
mörk.
„Vörnin var mjög góð og þannig
náði ég að taka mína bolta auk þess
sem við kláruðum færin okkar vel
og það var það sem skildi á milli
í leiknum. Við misstum aðeins
dampinn í síðari hálfleiknum en
við komum sterkar til baka og
kláruðum þetta bara örugglega,“
sagði Íris Björk brosmild í leiks-
lok en hún lagði grunninn að sigri
Gróttu/KR í leiknum.
„Sigurbjörg Jóhannsdóttir er
lykilleikmaður fyrir okkur og
það var virkilega slæmt að missa
hana,“ sagði Magnús Jónsson,
þjálfari Fram, eftir leikinn. Sig-
urbjörg meiddist í upphitun fyrir
leikinn og munaði um minna fyrir
lið Fram.
„Okkar leikaðferðir ganga
einfaldlega ekki upp með Sigur-
björgu utan liðsins og það var það
sem skipti sköpum fyrir okkur
í leiknum. Varnarleikurinn var
lélegur og við kláruðum færin
okkar mjög illa,“ sagði Magnús.
Það var Anett Köbli sem dró
vagninn fyrir gestina úr Safa-
mýrinni. Hún skoraði tólf mörk
sem dugði þó engan veginn til
fyrir Fram í leiknum.
- hþh
Grótta/KR vann öruggan 34-29 sigur á Fram í DHL-deild kvenna í gær:
Sigur Gróttu/KR aldrei í hættu
ANETT KÖBLI Gróttu/KR gekk illa að stöðva
Köbli sem skoraði tólf mörk í leiknum
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM