Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 78
8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SÚR HVALUR
30% afsláttur af
harðfiski og hákarli
Opið alla laugardaga 10-14
NFS ER Á VISIR.IS
LÁRÉTT 2 viðbót 6 samþykki 8 stein-
bogi 9 þrá 11 utan 12 mataráhald
14 ummælin 16 frú 17 líða vel 18 for
20 númer 21 betl.
LÓÐRÉTT 1 birta 3 tveir eins 4
óákveðinn 5 ræktað landsvæði 7
hvatning 10 ílát 13 svelg 15 kropp 16
framkoma 19 guð.
LAUSN
HRÓSIÐ
...fær Guðmundur Arnar Guð-
mundsson kynningarstjóri Sirkuss
fyrir að kynna videóblogg fyrir
landanum.
LÁRÉTT: 2 ábót, 6 já, 8 brú, 9 ósk, 11
án, 12 skeið, 14 orðin, 16 fr, 17 una, 18
aur, 20 nr, 21 snap.
LÓÐRÉTT: 1 ljós, 3 bb, 4 óráðinn, 5
tún, 7 áskorun, 10 ker, 13 iðu, 15 nart,
16 fas, 19 ra.
Sigrún Elsa Smára-
dóttir, Samfylking-
unni:
Mig langar auðvitað
að Samfylkingin fái
hreinan meirihluta í
borgarstjórnarkosning-
unum í vor og nái þar
með að hrinda í fram-
kvæmd stefnumálum
Samfylkingarinnar um
gjaldfrjálsa leikskóla. Þá
langar mig líka að brúa
bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með því að bjóða
öllum börnum leikskólapláss við lok fæðingarorlofs,
halda Orkuveitu Reykjavíkur áfram í eign Reykvíkinga
og stuðla með öllum tiltækum ráðum að enn mann-
vænna og betra samfélagi manna í Reykjavík.
Ester Bíbí Ásgeirs-
dóttir, hljóðmaður og
bassaleikari Singa-
pore Sling:
Mig langar að vera betri
leikari en ég leik mig
akkúrat núna svo ég
geti skriðið undir sæng,
sofnað og látið mig
dreyma um betri tíð og
blóm í haga. Janúar- og
febrúarmánuðir fara
ekkert sérstaklega vel
í mig, þetta svartasta
skammdegi, svo mig er
farið að lengja dálítið
eftir sólinni og fegurð
vorsins.
Bergur Þór Ingólfsson,
leikari:
Mig langar að temja
mér nægjusemi því fyr-
irferðarmiklar langanir
mínar snúast um að
eiga frið í hjarta og ró í
sál. Þetta er lífsverk-
efni því við búum í
samfélagi þar sem
mammonstrúin er svo
sterk að sífellt finnst
eitthvað sem togar og
maður telur sig verða
að eignast. Ég veit samt
að hamingjan felst ekki
í leðursófasetti. Mottóið
er því sannfæringin um að hamingjan komi innan frá.
ÞRÍR SPURÐIR
Hvað langar þig einmitt núna?
Þegar unga fólkið er spurt hver
sé uppáhaldsverslunin þess
kemur nafn verslunarinnar
KronKron oft upp. Hingað til
hefur verslunin verið í nokkurra
fermetra húsnæði að Laugavegi
55 en á næstunni mun hún flytja
að Laugavegi 63 í miklu stærra
húsnæði en gengið er inn í versl-
unina Vitastígsmegin. Eigendur
verslunarinnar, Magni Þorsteins-
son hárgreiðslumaður og Hugrún
Dögg Árnadóttir hönnuður hafa
kynnt Íslendinga fyrir framsæk-
inni hönnun en í KronKron hafa
þau selt hönnun Eley Kishim-
oto, Marjan Pejoski, Humanoid,
Vivian Westwood og Wood Wood
svo einhver merki séu nefnd.
Aðspurður um flutningana sagði
Magni að það væri ýmislegt í
pípunum sem ekki væri hægt að
nefna að svo stöddu en eitt væri
víst að þau myndu halda áfram
með merkin og jafnvel bæta ein-
hverjum merkjum við.
„Við féllum fyrir þessu hús-
næði enda er það stórglæsilegt
og hentar okkur voðalega vel.
Þarna er hátt til lofts og vítt til
veggja. Fötin munu njóta sín afar
vel í þessu húsnæði,“ sagði hann í
samtali við Fréttablaðið. Stefnan
er að opna verslunina um næstu
mánaðamót þótt það standi vita-
skuld svolítið tæpt. Magni og
Hugrún munu sjá algerlega um
að hanna verslunina eins og þau
hafa gert hingað til. Skóbúðin
Kron og fataverslunin KronKron
hafa fengið reglulegar andlits-
breytingar og hafa þau ekki
verið hrædd við að blanda saman
litum og prófa eitthvað nýtt.
Magni vildi þó alls ekki gefa
upp hver stíllinn á búðinni yrði,
það myndi koma í ljós þegar hún
opnaði. „Búðin á eftir að breytast
heilmikið en við reynum þó að
halda okkar sjarma þótt plássið
verði miklu meira,“ sagði hann.
Aðspurður um vortískuna sagði
hann hana stórskemmtilega.
„Tískan er fjölbreytt og það eru
margir stílar í gangi. Það er erf-
itt að pikka eitthvað eitt út enda
mun þetta allt koma í ljós þegar
við opnum.“
Á síðustu árum hafa opnað
nokkrar verslanir sem sérhæfa
sig í erlendri tískuhönnun. Magni
segist ekki hræðast samkeppn-
ina þó hann viðurkenni að það
sé ekki markaður fyrir margar
slíkar verslanir.
„Ég held að það sé samt sem
áður alltaf markaður fyrir fal-
leg föt. Það er gaman að geta selt
skó, smáhluti og flíkur frá þess-
um flottu hönnuðum. Ég held að
það hafi verið orðið tímabært að
geta keypt þessi merki á Íslandi
en margir hafa í gegnum tíðina
keypt þessi föt á erlendri grundu.
Við erum með merki sem eru
ofsalega stór á heimsvísu og má
segja að þetta sé bara rjóminn af
því besta,“ segir Magni að lokum
sem var á leið úr landi í inn-
kaupaferð til að eiga örugglega
nóg af vörum þegar nýja versl-
unin opnar. martamaria@frettabladid.is
VERSLUNIN KRONKRON: STÆKKAR UM TUGI FERMETRA
Rjóminn af því besta
HLAKKA TIL AÐ FLYTJA Magni Þorsteinsson og Hugrún Dögg Árnadóttir, eigendur verslunar-
innar KronKron sem brátt flytur í miklu stærra húsnæði.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Össur Skarphéðinsson alþingismað-ur er á ferð um Vestur-Afríkuríkið
Togo ásamt rithöfundunum Þráni Bert-
elssyni og Nirði P. Njarðvík og sjónvarps-
manninum Jóni Ársæli Þórðarsyni sem
eltir Össur á röndum og
safnar efni fyrir þátt sinn
Sjálfstætt fólk. Össur fer
á kostum í ferðalýsing-
um á bloggsíðu sinni og
það er deginum ljós-
ara að þeir félagar
eru í sannkallaðri
ævintýraferð. Össur
lenti meðal annars
í miðri vúdumessu og þegar svarta-
galdursprestarnir hrelldu innfædda
með hvæsandi slöngu gekk Össur fyrir
skjöldu og tók skepnuna taki: „Ég stökk
inn í hringinn við óttablandin fagnaðarlæti
fjöldans. Ég tók slönguna góðu taki rétt
aftan við hvoftinn svo hún næði hvorki
að bíta mig né aðra, öðru aftan við miðju
kykvendisins og hóf hana á loft, einsog
afrískur stríðsmaður sigraðan andstæðing,
við siguróp fólksins.“ Össur segist hafa átt
í ógnarbasli með að hemja slönguna sem
ólmaðist „ógnarþung og öflug“ í höndum
hans. „En það hafðist og ég hefði örugg-
lega unnið kosningu í þessu þorpi eftir
þetta einvígi mitt og vúdúslöngunnar.
En vúdúprestunum sem nota galdras-
löngur til að skapa ótta hjá fólkinu líkaði
þetta ekki og slangan
var að lokum þrifin af
mér og sett í kassa,“
segir Össur sem endaði
daginn á því að synda
allsber í sundlauginni
á Hotel Napoleon
með Jóni Ársæli og
skola þannig af sér
ævintýri dagsins.
Stuðningsfólk Silvíu Nóttar halda áfram að berjast fyrir hagsmunum
sinnar konu þótt útvarpsráð hafi í gær
lýst yfir stuðningi við salómonsdóm Páls
Magnússonar, útvarpsstjóra, sem ákvað
að vísa Silvíu ekki frá forkeppni Eurov-
ision þrátt fyrir að laginu hafi verið dreift
á netinu fyrir frumflutning. Síðdegis í
gær höfðu tæplega 6000 manns skráð
sig á undirskriftalista á netinu þar sem
skorað var á RÚV að láta ákvörðun Páls
standa óhaggaða. RÚV vill ekki gefa upp
hversu margir tóku þátt í símkosningu
eftir þriðju forkeppnina
á laugardaginn
en heyrst
hefur að
Silvía hafi
þar slegið öll
met og fengið
yfirgnæfandi
meirihluta sím-
sendra atkvæða.
-ÞÞ
Heimasíðan tónlist.is hefur ákveðið
að hasla sér völl í útgáfu í gegnum
nýtt útgáfufélag, Cod music, sem
mun einbeita sér að grasrótinni í
íslenskri tónlist.
Hugmyndin er að gefa tólf til
fimmtán flytjendum tækifæri til að
taka upp tónlist við bestu aðstæður
sem fylgt verður eftir með öflugri
markaðssetningu. Í raun er hér um
hefðbundna útgáfu að ræða nema að
tónlistin er aðeins gefin út sem niður-
hal á netinu og í farsíma til að byrja
með. Ef sýnt þykir að að ákveðnir
flytjendur hafi gott efni eftir sjálfa
sig fram að færa sem líklegt er til
að ná hylli verður farið í útgáfu á
geisladiskum í framhaldinu.
Þetta nýja útgáfufélag starfar í
takt við þá þróun að flytjendur hafa
verið að fanga athygli umheimsins
eftir óhefðbundum leiðum í aukn-
um mæli.
„Hugmyndafræðin er að þetta
sé hin nýja útflutningsgrein. Þorsk-
urinn á undir högg að sækja en
íslenska tónlistin nýtur hylli hvar
sem er,“ segir Stefán Hjörleifsson
hjá tónlist.is.
„Það er bara spurning hvenær
þetta tekur yfir. Núna efast enginn
lengur um að netið sé framtíðin,“
segir hann.
Frosti Logason úr hljómsveit-
inni Mínus hefur verið ráðinn verk-
efnastjóri og ásamt honum mun
tónlistarráð velja tilvonandi flytj-
endur. Gert er ráð fyrir að a.m.k.
sex flytjendur verði síðan valdir og
afraksturinn gefinn út á netinu þar
sem gestir fá tækifæri til að hafa
áhrif hverjir þrír verða valdir til
fullbúinnar útgáfu. Nánari upplýs-
ingar er að finna á www.tonlist.is
og á vefsíðunni www.cod.is. -fb
Grasrótin í fyrirrúmi
STEFÁN HJÖRLEIFSSON Stefán er sannfærð-
ur um að netið sé framtíðin, rétt eins og
erlendir tónlistarsérfræðingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI