Fréttablaðið - 08.02.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Þúsundir viðskiptavina fá
endurgreiðslu ...
Árlega verðlaunar Íslandbanki skilvísa viðskiptavini með því að endurgreiða
allt að 6% af vaxtagreiðslum skuldabréfa*. Þessa dagana fá viðskiptavinir
endurgreiðslu inn á reikning sinn, en þær nema samtals tugum milljóna króna.
Þú getur líka komist í raðir viðskiptavina sem fá endurgreitt.
Kynntu þér fleiri kosti Gullvildar á isb.is með því að hafa samband við næsta
útibú Íslandsbanka eða þjónustuverið í síma 440 4000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
0
9
1
Önnur fríðindi:
• 200 fríar debetkortafærslur
• Ókeypis gulldebetkort
• Ókeypis greiðsluþjónusta
• 50% afsláttur af gullkreditkorti
• Betri vaxtakjör
... og margt fleira
- vertu gó›u vanur
... sem munar um!
Dæmi um endurgreiðslu
29 ára einstaklingur með 9 milljóna erlent húsnæðislán
fær endurgreiddar rúmlega 22 þúsund krónur.
* gildir ekki um verðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum
������������������������������
���������������
�������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
����������
�����������������
Líklega hefði ég aldrei lært frönsku hefði ég ekki heillast
af franskri kvikmynd þegar
ég var 17 ára. Þar var fólk svo
ástríðufullt að óhamingjusöm
kona makaði framan í sig pasta-
rétti og maðurinn hennar elskaði
hana svo mikið að hann kæfði
hana með kodda íklæddur kven-
mannsfötum. Svona er þá gaman
í Frakklandi, hugsaði ég með mér,
og fór strax að leggja drög að ferð
þangað. Ekki hafði ég dvalist þar
lengi þegar ég áttaði mig á því
að fólk eins og það sem lýst var
í myndinni hlyti að búa í öðrum
götum en ég lagði leið mína um en
það var allt í lagi og nægar furður
ber enn fyrir augu mín þegar ég
bregð mér til Frakklands.
ÞEGAR ég horfi á franskt sjón-
varp eru þær hins vegar víðs
fjarri. Þar snúast heilu þættirnir
um að kenna foreldrum að láta
börnin sín ekki fara að sofa með
kók í pela. Í öðrum þætti sjást
stútungsfraukurnar Danielle og
Béatrice kenna sóðum að þrífa
heimili sín og reyna að brýna
fyrir þeim að bera bakteríurnar
úr klósettskálinni ekki í ísskáp-
inn. Þær séu ekki til átu.
Á norrænu stöðvunum sem ég
hef aðgang að er efnisvalið allt
annað. Þar er boðið upp á vand-
aðar heimildamyndir um allt frá
sögu Súdans til lífshlaups Elvis
eða bara venjulegt fólk sem hefur
rifið sig upp frá Kaupmanna-
höfn og gert upp falleg býli úti á
Jótlandi. Í fræðsluþáttunum er
fólki ekki kennt að sleppa því að
skeina sig á ostasneiðunum, held-
ur hvernig meta á verðmæti antík-
gripa. Varla getur verið svona
mikill reginmunur á gáfnafari
og þrifnaði frönsku þjóðarinnar
annars vegar og Skandinava hins
vegar. Líklegra er að ég hafi bara
ekki aðgang að stöðvunum sem
bjóða upp á þætti um sænska sóða
eða þeim frönsku þar sem fjallað
er um Elvis og antík frá morgni
til kvölds. Þetta sýnir í raun það
eitt að fjölmiðlar bregða upp tak-
markaðri mynd af heiminum.
ÞVÍ miður næ ég ekki Sirkus en af
því sem ég hef heyrt og af mynd-
brotinu úr þættinum Splash TV að
ráða sem birtist í fréttatíma fyrir
skömmu er mér ljóst að Keflavík
er ekki öll þar sem hún er séð.
Án efa eiga þessir þættir eftir að
verða mikil lyftistöng fyrir bæj-
arfélagið. Einhver unglingurinn
á eftir að reka augun í öll þessi
brjóst sem sprengja utan af sér
hverja skyrtuna á fætur annarri
og hugsa með sér, svona er þá
gaman í Keflavík. Áður en við
verður litið eiga hnakkarnir eftir
að taka aftur upp Keflavíkurgöng-
una og breyta henni í berlínskt
Love parade. ■
Ef koffín svæfir
hann ekki...
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI