Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 2
2 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� BANDARÍKIN Bandarísk yfirvöld búa yfir gagnagrunni sem hefur að geyma nöfn 325 þúsund manna sem grunaðir eru um aðild eða stuðning við hryðjuverk. Frá þessu greinir bandaríska dagblað- ið Washington Post. Blaðið hefur eftir nafnlausum heimildarmönnum hjá banda- rísku leyniþjónustunni að fjöldi fólks á listanum hafi fjórfaldast frá árinu 2003 en getur þess þó að líklega séu nokkuð margir skráð- ir undir nokkrum nöfnum og því nái listinn yfir um 200 þúsund manns. Flestir þeir sem eru á listanum eru sagðir erlendir rík- isborgarar. ■ Hryðjuverkavarnir vestra: Yfir 200.000 á lista grunaðra LÖGREGLUMÁL Þrír piltar, fjórtán, fimmtán og sextán ára, réðust inn á stjórnarfund hjá félagi dagforeldra í Kópavogi í fyrrakvöld og ógnuðu þeim sem á fundinum voru með skærum. Tveimur kvennanna tókst að yfirbuga einn piltanna og náðu af honum því sem hann hafði tekið af konunum sem fundinn sátu. Fyrr um kvöldið höfðu sömu piltar gert tilraun til þess að ræna konu á sjötugsaldri sem var að taka peninga út úr hraðbanka í bensín- stöð Select í Smáranum í Kópavogi. Piltarnir þrír höfðu ekki erindi sem erfiði þar sem konan varðist ráns- tilrauninni fimlega og hlupu pilt- arnir á brott í kjölfarið. Rúmlega klukkutíma seinna ruddust piltarnir með látum inn á stjórnarfund hjá félagi dagforeldra og kröfðust þess að fá afhenta alla þá peninga sem stjórnarmeðlimir voru með á fundinum. Enginn í stjórn félags dagfor- eldra vildi tjá sig undir nafni við Fréttablaðið, en mikil hræðsla greip um sig hjá þeim sem á fundin- um voru þegar piltarnir þrír rudd- ust inn. Lögreglan í Kópavogi vissi ekki hvers vegna piltarnir réðust inn á fund dagforeldra en svo virðist sem þeir hafi ákveðið með skömmum fyrirvara að ráðast inn á stjórnarfundinn. Barnaverndar- nefnd var fljótt kölluð til eftir að lögreglan hafði handsamað piltana og mun hún áfram vinna að málinu í samstarfi við foreldra þeirra. Kolbrún Ögmundsdóttir, starfs- maður félagsþjónustunnar í Kópa- vogi, segir starfið meðal annars felast í því að skoða hvað það er sem veldur því að börn fara út á braut afbrota. „Lögreglan kallar okkur til þegar börn og unglingar brjóta af sér. Við reynum að nálgast málin með það að markmiði að skoða vel það sem að baki brotunum liggur og bregðast við aðstæðum ef við telj- um þess þörf.“ Piltarnir sem voru að verki hafa margsinnis komið við sögu lögreglu áður fyrir ýmis minni háttar afbrot. magnush@frettabladid.is Vopnaðir unglingar heimtuðu peninga Þrír unglingspiltar í Kópavogi reyndu að ræna konu á sjötugsaldri og ruddust inn á stjórnarfund dagforeldra í fyrrakvöld. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir allir komið við sögu lögreglu áður. Barnavernd vinnur nú í máli piltanna. RÚSSLAND, AP Hið þráláta ofbeldi sem viðgengst í rússneska hernum á sér rætur í samfélagi sem er gegnsýrt af glæpum og hnignandi siðferði. Þetta sagði rússneski varnarmálaráðherrann Sergei Ivanov í gær, en hann vildi með þessum orðum beina sök frá hernum í kjölfar þess að uppvíst varð um hroðalegan níðingsskap sem nýliðar í hernum mega þola. Ivanov ræddi nýliðamisþyrm- ingar í hernum í svörum við fyr- irspurnum í neðri deild rússneska þingsins. Tilefnið var það sem hinn átján ára gamli nýliði Andrei Sychev mátti þola í skriðdreka- herdeildarskóla í Úralfjallaborg- inni Tsjeljabinsk um áramótin. Það þurfti að taka af honum báða fætur og kynfærin eftir misþyrm- ingar eldri hermanna. „Já, það áttu sér stað hneyksl- anleg atvik sem gengu fram af öllu sómakæru fólki. Já, því miður eiga glæpir og misþyrmingar sér stað í hernum, og við víkjumst ekki undan ábyrgð,“ sagði Ivanov. „En það er óhjákvæmilegt að geta þess að þessir glæpir eiga sér stað að minnsta kosti að hluta til vegna þess að herinn er hluti af rúss- nesku þjóðfélagi í heild. Í landi voru byrja hinir eldri að níðast á hinum yngri strax í leikskóla,“ sagði ráðherrann. - aa IVANOV SVARAR ÁSÖKUNUM Tjáði þing- heimi að rætur níðingsháttar í hernum lægju í rússnesku samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Varnarmálaráðherra Rússlands um þrálátar misþyrmingar í hernum: Segir níðingshátt landlægan BRETLAND, AP Breska þingið sam- þykkti í gær frumvarp til laga sem banna mönnum að lofsyngja hryðjuverk, en þar með náði Tony Blair forsætis- ráðherra mikil- vægum áfanga- sigri í baráttu sinni fyrir ráð- stöfunum sem hann telur nauð- synlegar til að koma í veg fyrir hryðjuveraárás- ir í landinu. Neðri deildin samþykkti frumvarpið með 315 atkvæðum gegn 277 og sendu það þar með aftur til lávarðadeildar- innar sem hafði áður hafnað því að í því væri talað um „lofsöng“ hryðjuverka. „Menn sem lofsama hryðjuverk hjálpa til við að skapa andrúms- loft þar sem hryðjuverk eru álitin að einhverju leyti réttmæt,“ sagði Charles Clarke innanríkisráðherra í umræðum fyrir atkvæðagreiðsl- una í gær. ■ Bresk hryðjuverkavarnalög: Banna lofsöng hryðjuverka TONY BLAIR HÚSIÐ SEM PILTARNIR RUDDUST INN Í Piltarnir ruddust inn með látum og ógnuðu þeim sem sátu fund dagfor- eldra. Áður reyndu þeir að ræna eldri konu við hraðbanka í Smáranum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL ÁSTRALÍA, AP Myndum af meintum pyntingum bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu var sjónvarpað í Ástralíu í gær. Að sögn talsmanna SBS sjón- varpsstöðvarinnar eru þær frá árinu 2003 og hafa ekki verið birtar áður. Arabíska sjónvarpstöðin al-Jaz- eera sýndi nokkrar af myndunum í gær, og má búast við að þær ali enn frekar á reiðinni í garð Vesturlanda sem þar blossar nú. Yfir 25 fyrrver- andi meðlimir Bandaríkjahers dúsa nú í fangelsi vegna meðferðar sinnar á föngum í Abu Ghraib fangelsinu. - smk Pyntingum sjónvarpað: Bandaríkjaher er ásakaður PYNTINGAR Áströlsk sjónarpsstöð sýndi í gær myndir af meintum pyntingum banda- rískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Aldís, á að setja þennan samning á ís? „Tvímælalaust og geyma hann kyrfilega læstan ofan í dýpsta frysti hjá Kjörís.“ Aldís Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðis- manna í Hveragerði og framkvæmdastjóri Kjöríss, hefur eindregið lagst gegn samningi sem meirihlutinn í bæjarstjórn hefur sam- þykkt um sölu lands til byggingar 900 íbúða í bænum. ALNÆMI Alls hafa 183 greinst með alnæmissmit hér á landi, 141 karl og 42 konur. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyr- irspurn Guðrúnar Ögmundsdótt- ur, Samfylkingunni. Helmingur þeirra sem greinst hafa með alnæmi hefur smitast við kynmök samkynhneigðra. Um þriðjungur hefur smitast við kynmök gagnkynhneigðra og einn af hverjum tíu hefur smitast við fíkniefnaneyslu í æð. Aðeins fjórir undir tvítugu hafa greinst með alnæmissmit, þar af eitt barn sem smitaðist af móður sinni. - jh Alnæmissmitaðir hér á landi: Karlar þrefalt fleiri en konur STARFSMANNALEIGUR Héraðsdóm- ur Reykjavíkur hefur sýknað verktakafyrirtækið Impregilo og portúgölsku starfsmannaleiguna Nett af því að greiða 20 milljóna króna skuld ásamt vöxtum vegna félagsgjalda og gjalda í orlofs- og sjúkrasjóð hjá Afli – starfsgreina- félagi Austurlands vegna starfs- manna á Kárahnjúkum. Héraðsdómur hefur einn- ig sýknað verktakafyrirtækið Impregilo og portúgölsku starfs- mannaleiguna Select I. Servic- ios af kröfu um greiðslu skuldar ásamt vöxtum upp á rúmlega 15 milljónir króna vegna félagsgjalda og gjalda í orlofs- og sjúkrasjóð af starfsmönnum á Kárahnjúkum. Magnús Norðdahl, lögfræðing- ur ASÍ, segist undrandi á niður- stöðunni því að allt launafólk eigi rétt á sjúkratryggingum á vinnu- markaði, félagsaðild í stéttarfé- lagi hafi ekkert með það að segja. „Við erum ekki sammála þess- ari niðurstöðu og erum að ráða ráðum okkar í framhaldinu. Ágreiningurinn er áfram til stað- ar,“ segir hann. - ghs IMPREGILO SÝKNAÐ Impregilo og tvær starfsmannaleigur þurfa ekki að greiða í sjúkrasjóð samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Myndin er úr safni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Impregilo og starfsmannaleigur sýknaðar í Héraðsdómi Reykjavíkur: Sleppa við 20 milljóna gjöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.