Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 60
16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR40
bio@frettabladid.is
„Everybody be cool. You be cool.“
-George Clooney er svalur og hefur aldrei verið
svalari en í From Dusk till Dawn þar sem hann
krafðist þess að allir færu að dæmi sínu.
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
LAUGARD. 18. FEB. 2006
PA
PA
R LAUGAR-
HÚSIÐ OPNAR
KL. 23.00
MIÐAVERÐ
1000 KR.
ALDURS-
TAKMARK
20 ÁRA
DAGS
KVÖLD
Kvikmyndahúsin í Reykja-
vík frumsýna fjórar
ólíkar myndir um helg-
ina. Tvær þeirra, Good
Night, and Good Luck og
Transamerica, blanda sér
í kapphlaupið um óskars-
verðlaunin.
Það er leikarinn George Clooney
sem er allt í öllu í Good Night, and
Good Luck sem hefur vakið mikla
athygli og fengið mikið lof gagn-
rýnenda. Hér segir frá baráttu sjón-
varpsfréttamannsins Edwards R.
Murrow og kommúnistaveiðarans
Josephs McCarthy, en sá fyrrnefndi
reyndi að fletta ofan af annarlegum
tilgangi McCarthys í kommúnista-
ofsóknum sínum og var fyrir vikið
stimplaður kommi.
Clooney leikstýrir myndinni,
er einn handritshöfunda og fer
með veigamikið hlutverk en David
Strathairn leikur Murrow og hefur
uppskorið óskarsverðlaunatilnefn-
ingu fyrir vikið. Myndin er alls
tilnefnd til sex óskarsverðlauna en
auk Strathairns á hún meðal annars
möguleika á verðlaunum sem besta
myndin, fyrir bestu leikstjórn og
besta handrit.
Felicity Huffman, sem leik-
ur Lynette Scavo í Desperate
Housewives, er tilnefnd til ósk-
arsverðlauna sem besta leikkonan
fyrir frammistöðu sína í Transam-
erica. Hún leikur kynskipting sem
er einni aðgerð frá því að breytast
endanlega úr karli í konu. Hún
vinnur baki brotnu til þess að nurla
saman fyrir lokaaðgerðinni þegar
ungur maður hefur samband við
hana og er í leit að föður sínum. Það
kemur á daginn að hún hafði getið
drenginn þegar hún var enn karl-
maður án þess að hafa hugmynd um
það og ákveður því að losa dreng-
inn úr varðhaldi. Hún vill þó ekki
viðurkenna að hún sé faðir drengs-
ins og við það flækjast samskipti
þeirra umtalsvert.
Kyntröllið Casanova þarf vart að
kynna en í nýrri mynd Lasse Halls-
tröm um kappann lendir hann í
kreppu þegar hann verður fyrir því
að ung kona hafnar honum. Þessu
á okkar maður ekki að venjast og
leggur því allt í sölurnar til þess
að ná ástum stúlkunnar sem dirfð-
ist að fúlsa við sjálfum Casanova.
Heath Ledger leikur Casanova en
fyrrum kærasta helsta Casanova
samtímans, sjálfs Jude Law, leikur
stelpuna sem bítur ekki á ryðgaðan
öngul.
Það gustaði af Kate Beckinsale
í svartleðruðu vampírunni Selenu
í Underworld en þar barðist hún
við harðsnúið varúlfakyn. Hún er
mætt aftur til leiks í Underworld
Evolution en þarf nú að takast á
við blóðsugubræður sína sem vilja
koma henni fyrir kattarnef. Hún
reynir því að ná eyrum blóðsugu-
konungsins Marcusar til að biðjast
griða um leið og hún glímir við for-
boðna ást sína á Michael en í æðum
hans rennur varúlfablóð. ■
Kommúnistaveiðar
og blóðsugudráp
GEORGE CLOONEY Kemur víða við sögu í
Good Night and Good Luck sem er líkleg til
afreka á óskarsverðlaunahátíðinni í mars.
KATE BECKINSALE Snýr aftur sem vampíran Selena í Underworld Evolution og þarf nú
bæði að berjast við blóðsugur og varúlfa auk þess sem hún glímir við forboðna ást.
��������������
�������
����������
����
������������������������������
������������������������������
������������
����������
��� �