Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 64
44 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI 11 af þeim 30 leik- mönnum sem myndað hafa kjarna íslenska landsliðsins í handbolta undanfarið ár vilja helst sjá Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfara Magde- burg og verðandi þjálfara Gum- mersbach í Þýskalandi, taka við landsliðinu af Viggó Sigurðssyni, sem nýlega sagði upp störfum. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Fréttablaðið gerði í vikunni. Sjö leikmenn vildu helst að Geir Sveinsson yrði næsti lands- liðsþjálfari og fimm vildu að Júlí- us Jónasson tæki við liðinu. Þessir þrír höfðu nokkra yfirburði í vali landsliðsmannana, en tveir leik- menn vildu fá Dag Sigurðsson, einn vildi fá Atla Hilmarsson og einn vildi að allt yrði gert til að halda í Viggó Sigurðsson. Tveir af þeim leikmönnum sem rætt var við kusu að deila ekki skoðun sinni og einn hafði ekki skoðun á málinu. Könnunin var gerð á þann veg að haft var samband við þá 30 leikmenn sem spiluðu flesta lands- leiki á síðasta ári og þeir spurðir: „Hvern viltu sjá sem næsta lands- liðsþjálfara?“ Gerð var krafa um aðeins eitt nafn á þjálfara og var valið ekki takmarkað að neinu leyti, þ.e. velja mátti hvern sem er í starfið. Fullri nafnleynd var lofað og því er ekki opinberað hvaða þjálfara hver og einn leikmaður vill sjá taka við landsliðinu. Athygli vakti að margir leik- manna landsliðsins vilja helst að það verði teymi tveggja þjálfara sem stjórni liðinu. Þannig töldu fimm leikmenn að Geir Sveinsson og Dagur Sigurðsson yrðu best til þess fallnir að taka við liðinu saman. Helstu rökin sem helst voru nefnd í því samhengi var að þar fara tveir fyrrum leikmenn sem hvor hefur sínar áherslur í íþróttinni og myndu bæta hvor annan upp að því leyti. Ekki virð- ist mikið traust vera borið til Dags sem eina þjálfara liðsins, en eins og áður segir vilja aðeins tveir leikmenn sjá hann sem næsta þjálfara. Fjórir leikmenn vildu sjá Geir mynda þjálfarateymi lands- liðsins með Júlíusi og einn vildi að Dagur og Júlíus tækju saman við liðinu. Leiða má líkur að því að Alfreð hefði fengið fleiri atkvæði í könn- uninni en raun ber vitni hefði starfslokum hans hjá Magdeburg verið öðruvísi háttað. Nokkrir aðspurðra töldu Alfreð ekki raun- hæfan valkost vegna samninga hans við Magdeburg og Gum- mersbach og völdu því að eigin frumkvæði annan þjálfara í hans stað – þjálfara sem HSÍ ætti raun- hæfan möguleika á að ráða. Könn- unin var hins vegar gerð áður en Fréttablaðið sagði frá því í gær að Alfreð væri að vinna í því að fá starfslokasamning hjá Magde- burg til þess að hann ætti mögu- lega kost á því að taka við íslenska landsliðinu. Það má því ætla sem svo að Alfreð hefði verið með mun meiri yfirburði í kjörinu hefðu sumir aðspurðra leikmanna ekki útilokað hann að fyrra bragði. vignir@frettabladid.is Flestir leikmenn vilja fá Alfreð Stærstur hluti þeirra leikmanna sem leikið hafa með landsliðinu í handbolta síðasta ár vill sjá Alfreð Gísla- son sem næsta þjálfara liðsins. Geir Sveinsson er næstur á óskalista leikmanna og Júlíus Jónasson þriðji. ALFREÐ GÍSLASON Var í fyrstu ekki talinn raunhæfur kostur fyrir HSÍ en er nú að skoða möguleikana á því að gera starfs- lokasamning við Magdeburg. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LANDSLIÐSMENNIRNIR Hafa langflestir sterkar skoðanir á því hvern þeir vilja fá sem næsta þjálfara sinn. Alfreð Gíslason er efstur á óskalista flestra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ATKVÆÐI ÞJÁLFARA Alfreð Gíslason 11 Geir Sveinsson 7 Júlíus Jónasson 5 Dagur Sigurðsson 2 Atli Hilmarsson 1 Viggó Sigurðsson 1 *Tveir leikmenn vildu ekki segja sína skoð- un og einn leikmaður hafði ekki skoðun. > Auðun meiddur Það vakti athygli margra að Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari skyldi ekki velja Auðun Helgason, fyrirliða FH, í landsliðshóp sinn en Auðun lék frábærlega með landsliðinu og FH á síðasta ári. Að sögn Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, er Auðun meiddur á hné og getur ekki leikið næstu þrjár vikurnar og þar af leiðandi kom hann aldrei til greina í landsliðshóp Eyjólfs. KR mætir Krylia í dag KR mætir rússneska félaginu Krylia Sovetov í æfingaleik á La Manga á Spáni í dag en leikinn ber upp á 107. afmælisdag KR. Með Krylia leikur meðal annars Andrey Kanchelskis sem gerði garðinn frægann með Manchester Unit- ed á árum áður. Leikurinn hefst klukkan 17.00 og verður lýst í KR útvarpinu á tíðninni FM 98,3. FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu fellur um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í gær. Liðið nálg- ast óðum 100. sæti á listanum en Ísland er í 96. sæti, á undan Úganda en á eftir Sýrlandi. Fimm efstu þjóðirnar eru sem fyrr Bras- ilía, Tékkland, Holland, Argentína og Frakkland en Spánverjar sem eru með Íslandi í riðli í undan- keppni EM eru í sjötta sæti. Af öðrum þjóðum sem eru með Íslendingum í riðli í undankeppni EM eru Danir og Svíar í fjór- tánda og fimmtánda sæti, Lettar í 67. sæti, Norður-Írar í því 102. og Liechtenstein er neðst, situr í 124. sæti. Trínidad og Tóbagó sem Ísland mætir í vináttulandsleik í lok febrúar er í 51. sæti listans og fell- ur um eitt sæti. - hþh Nýr heimslisti FIFA: Ísland fellur um eitt sæti FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Bran- islav Milicevic er loksins kom- inn til Keflavíkur eftir langa bið en nokkurn tíma hefur tekið að fá atvinnuleyfi fyrir leikmann- inn og þarf staðfestingu frá KSÍ á því að leikmaðurinn sé í raun knattspyrnumaður því fjölmargir virðast sækja um atvinnuleyfi á þeim forsendum að þeir séu knatt- spyrnumenn að því er fram kemur á heimasíðu Keflavíkur. Þar með er nánast komin endanleg mynd á leikmanna- hóp Keflavíkur fyrir sumarið en Buddy Farah kemur í lok mars eða byrjun apríl og Bandaríkja- maðurinn Geoff Miles verður síðan til reynslu hjá félaginu í lok vikunnar en hann er Bandaríkja- maður sem lék með Haukum. - hbg Branislav Milicevic: Kominn til Keflavíkur Íslenski hópurinn sem keppir á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu lifir í vellystingum á staðnum samkvæmt Guðmundi Jakobssyni aðalfararstjóra hópsins. „Hér er allt til fyrirmyndar í alla staði, við erum í fljúgandi gír og mjög ánægð með lífið hérna í Sestriere,“ sagði Guðmundur við Fréttablaðið í gær þegar hópurinn var að fagna glæsilegum árangri Dagnýjar Lindu Kristjánsdóttur sem náði 23. sæti í brunkeppninni. „Það er mikið álag á keppendurnar, sérstaklega eftir brunið þar sem þung högg leggjast á keppendur en lífið hér gengur mjög mikið út á æfingar. Við vöknum fyrir sex á morgnana og erum komin í fjallið um átta. Eftir æfingar dagsins fer hópurinn og hjólar aðeins áður en sjúkraþjálfararnir taka við og nudda þreytuna úr hópnum og gera menn tilbúna í slaginn á ný,“ sagði Guð- mundur og bætti við að Sestriere væri í 1800 metra hæð og því væri nauðsyn- legt að fara aðeins niður til Tórínó til að jafna sig á loftlagsbreytingunni. Keppnisaðstaðan er eins og búast mátti við, öll hin glæsilegasta fyrir íslenska hópinn. „Brekkurnar eru virkilega góðar og þannig úr garði gerðar að það skiptir ekki höfuðmáli hvar þú ert í rásröðinni eins og stundum er þar sem brautin breytist lítið sem ekkert á milli keppanda sem er virkilega mikill kostur,“ sagði Guð- mundu,r en liðið býr vel á hóteli í Sestriere. „Við erum í lokuðu umhverfi á mjög góðu hóteli. Stærri liðin eru svo í sérstöku þorpi sem var byggt fyrir leikana en það er í Tórínó og ég hef eitthvað heyrt af því að menn séu að kvarta undan aðstæðum þar en það er annað uppi á teningnum hjá okkur. Maturinn er mjög fjölbreyttur og góður eins og Ítölunum sæmir og því lifum við hér í vellystingum auk þess sem það tekur okkur aðeins fimm mínútur að komast út í brekkuna sem munar öllu fyrir keppendurnar,“ sagði Guðmundur að lokum, en bætti við að allur hópurinn væri mjög þéttur og samstilltur og hefði það einstaklega gott á leikunum. ÍSLENSKI HÓPURINN HEFUR ÞAÐ GOTT Á VETRARÓLYMPÍULEIKUNUM Í TÓRÍNÓ: Lifa í vellystingum í Tórínó HANDBOLTI Kjartan Steinbach, fyrrverandi formaður dómara- nefndar evrópska handknatt- leikssambandsins, EHF, segir að menn hjá sambandinu líti ummæli serbnesku leikmann- anna, sem héldu því fram að þeim hefði verið skipað að tapa gegn Króötum af þjálfara serb- neska liðsins, Veselin Vujovic, og forráðamönnum serbneska hand- boltasambandsins, mjög alvar- legum augum. „Ég hafði samband við félaga mína hjá sambandinu í morgun og þeir sögðust vera að rannsaka málið. Það verður áhugavert að sjá til hvaða bragðs þeir taka því ég man ekki eftir neinum reglu- gerðum sem taka á slíku athæfi,“ sagði Kjartan sem hefur staðið lengi í eldlínunni og séð ýmis- legt en hann man ekki eftir álíka uppákomu. „Þetta er alveg skelfi- legt ef satt reynist og maður hallast að því að svo sé því ekki fara þessir menn að ljúga upp á sjálfa sig.“ Það var markvörð- urinn Arpad Sterbik, sem leikur með Ólafi Stefánssyni hjá Ciudad Real, sem leysti frá skjóðunni og þeir eru fáir sem efast um sann- leiksgildi orða hans. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin af hálfu HSÍ hvernig bregðast ætti við þessum fréttum. „Málið er mjög alvarlegt og við munum fylgjast með framgöngu þess áður en við tökum ákvörðun um framhaldið,“ sagði Einar. - hbg Handknattleikssamband Evrópu rannsakar meint svik Serba gegn Króötum: Alveg skelfilegt ef satt reynist LEIKURINN UMDEILDI Serbinn Arpad Ster- bik, sem greindi frá gjörðum þjálfara síns, sést hér að verja víti í leiknum umdeilda sem fram fór í St. Gallen.NORDICPHOTOS/AFP Hefur sé› DV í dag? flú Sex lið berjast um Bjarna Guðjóns Á LEIÐ HEIM TIL ÍSLANDS 2x10-l sið 15.2.2006 20:23 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.