Fréttablaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 32
16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR6
,,Ég hef aldrei efast. Það er um slíka
sérstöðu og gæðavöru að ræða. Það
væri annað ef ég væri að koma með
enn ein kúrekastígvélin,“ segir
Berglind Gestsdóttir, sem opnaði
verslunina Trippen á Rauðarárstíg
14 fyrir tæpri viku. Áhugi fólks
hefur verið mikill og skóbirgðirn-
ar í búðinni minnka stöðugt.
Trippen er þýskt fyrirtæki
sem framleiðir skó ásamt fáeinum
töskum. Aðeins eru til níu Trippen-
verslanir í heiminum, fjórar í Japan,
fjórar í Þýskalandi og núna ein á Íslandi.
Skórnir eru allir handunnir og hver búð
fær einungis eitt til tvö pör af hverju skó-
númeri. Ekkert færiband er að finna í
verksmiðjunni í Þýskalandi og heldur
engan lager. Það er því ekki fyrr en
verslanirnar panta til sín skópör að
skósmiðirnir taka til við að sauma.
,,Ég hef ekki enn fengið alla sending-
una til mín því þeir hafa ekki undan
að sauma,“ segir Berglind, sem fær
skóna til sín glænýja og nánast heita
úr kassanum.
Tveir Þjóðverjar, sem eru jafn-
framt eigendur Trippen, standa á bak
við hönnun skónna. Ákveðið þema er á
skóm hverrar árstíðar en í búðinni hérlend-
is er bæði að finna vetrar- og sumarlínuna.
,,Í vetur var mikið hugsað um íþróttir og
fyrirmyndin meðal annars glímuskór
og motocross-stígvél. Sumarlínan er
dálítið grísk og rómantísk. Enn frem-
ur eru þar minni úr ævintýrum svo
sem Aladdín.“ Það vakti athygli blaða-
manns að hvergi var að finna háhælaða
skó í búðinni. ,,Hverju skópari fylgir lesefni
um það hvernig fara skuli með fæturna sína
og af hverju þú átt ekki að vera í háhæluðum
skóm. Einnig eru þar leiðbeiningar um meðferð
skónna,“ segir Berglind, sem virðist ekki minna
heilluð af skónum en blaðamaðurinn sjálfur.
mariathora@frettabladid.is
Hárvörur fyrir rautt og lita› rautt hár
4 verð í gangi
500 - 1000 - 1500 - 2000
Komdu og gerðu
langbestu kaupin
í bænum!
Frábært úrval á kvenfatnaði
í öllum stærðum
MÖRKINNI 1 - REYKJAVÍK
Gjöfin
handa henni
Gerið góð kaup
Verðdæmi
Sloppur 17.800,- nú 8.900,-
Jakki 8.640,- nú 1.990,-
GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Engir skór til á lager
Skóbúðin Trippen hefur vakið verðskuldaða athygli hérlendis. Trippen er þýskt merki sem leggur
áherslu á gæði fremur en gróða.
NFS ER Á VISIR.IS